Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1967, Blaðsíða 136
132
ENDURSKOÐUN VÖLUSPÁR
Seið hón kunni. E leggur hins vegar enga áherzlu á íþróttina, en getur þess, að
Heiður hafi beitt henni, hvars hón kunni, þótt áður hafi ærin áherzla verið lögð
á athafnasemi Heiðar (2. vo.). - Seið lwn leikinn breytir E í Seið hón hug leikinn.
Hið fyrra (Hún seið mann, sem hafði áður verið leikinn.) er sterkara en hið síðara
(Hún seið hug manns, svo að hann varð leikinn.).
Allar þessar breytingar hníga í eina átt: að draga úr, milda. Hins sama gætir í
H 31. í stað stígandinnar (K 42)
---fj glð veit hón frœða,
fram sé ek lengra
of ragna rgk —
kemur flatneskjan (H 31)
---fram sé ek lengra,
fjglð kann ek segja
of ragna rgk —.
I þessum dæmum á hlut að máli hin mikla gyðja Völuspár. En allt ber að sama
brunni: E gerir eins lítið úr hinum „hvíta seið“ og hann má - og afneitar örlögun-
um að sama skapi.
4) Vísurnar K 27-29 bera allar vitni rammri örlagatrú (Sbr. A, 6. og 7. atriði.).
Tvær þeirra (28, 29) fellir E brott alveg, en ein (27) fær að standa óbreytt (H 23).
Hvað veldur? Segja má, að E svari því sjálfur:
K 56. Finnask æsir
á Iöavelli
ok of moldþinur
máttkan dœma
ok 9 fimbultýs,
fornar rúnar.
H 52. Hittask æsir
í íðavelli
ok of moldþinur
máttkan dœma
ok minnask þar
á megindóma
ok á fimbultýs
fornar rúnar.
Kenninguna ó fimbultýs (K 56) skilur enginn án þess að brjóta fyrst til mergjar
K 27. Það hefur E ekki gert. Þess vegna telur hann stofn kenningarinnar: þ, vera
forsetningu: á, og setur allt úr skorðum. En úr því bætir E á sinn hátt (H 52) - og
svarar um leið, hvað olli.
5) Vísurnar K 31 og 32 eru skýlaus sönnun um undirgefni ása undir örlögin (Sbr.
A, 8. atriði.), enda fellir E þær brott gersamlega. Vísan K 33 er svo samgróin K 32,
að hún hlaut að fylgja með.
Segja má með sanni, að meyjar OSins í K 30 hafi svifið í lausu lofti, eftir að
vísurnar á undan og eftir voru horfnar. Auk þess eru valkyrjur eins konar örlaga-
dísir, sem efla varnir ása með því að „kjósa feigð á menn“ (Sn.-E.). Var þess því
engin von, að E gerði sér far um að bjarga þeim.