Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1967, Blaðsíða 10
10
LANDSBÓKASAFNIÐ 1966
Bjarni Vilhjálmsson skjalavörður, Reykjavík. - Björn Kristjánsson fyrrum alþing-
ismaður, Reykjavík. — Dr. Björn Sigfússon háskólavörður, Reykjavík. — Dánarbú
dr. Alexanders Jóhannessonar, Reykjavík. - Daníel Fjeldsted læknir, Reykjavík. -
Geir Jónasson bókavörður, Reykjavík. - Guðrún Steingrímsdóttir, Nýlendu á Mið-
nesi. - IJandritanefnd íslendinga í Edinborg. - Háskóli íslands, Reykjavík. - Hild-
ur Valfells, Reykjavík. - Ingólfur Einarsson verzlunarmaður, Reykjavík. - Magnús
Pétursson, Reykjavík. - Nils Gadde tónskáld, Kolvik (Svíþjóð). - Ólafur F. Hjart-
ar bókavörður, Reykjavík. - Sigríður og Steinunn Björnsdætur, Reykjavík. — Sig-
urður Benediktsson bóka- og listaverkasali, Reykjavík. - Sveinbjörn Jónsson, formað-
ur Bandalags ísl. leikfélaga, Reykjavík. - Sr. Sveinn Víkingur, Reykjavík. - Valdi-
mar Þorvaldsson, Suðureyri.
Landsbókasafn flytur öllum gefendum handrita beztu þakkir.
MYNDADEILD Birgir Finnsson lét af starfi sem umsjónarmaður myndadeildar
1. desember, en við því tók Donald Ingólfsson ljósmyndari.
Landsbókasafn þakkar Birgi brautryðjendastarf hans í myndagerð á vegum safns-
ins.
SÝNINGAH Landsbókasafn efndi á árinu til tveggja sýninga í lestrarsal
safnsins. Var hin fyrri helguð þriggja alda afmæli Jóns biskups
Vídalíns 21. marz 1966, og stóð hún vikuna 21.-26. marz.
Síðari sýningin var haldin vikuna 7.-12. nóvember og tileinkuð Passíusálmum
Hallgríms Péturssonar, en á árinu voru liðnar þrjár aldir frá fyrstu útgáfu sálm-
anna á Hólum 1666.
Á báðum þessum sýningum voru sýndar prentaðar bækur og handrit og skýring-
ar látnar fylgja eftir ástæðum.
Ólafur Pálmason bókavörður valdi verk til sýninganna og samdi skýringar.
Aðsókn að sýningunum var allgóð, einkum hinni síðari, og sóttu hana m. a. fjöl-
margir nemendur Menntaskólans í Reykjavík, er komu í fylgd kennara sinna.
Landsbókasafn léði handrit á sýningu, sem haldin var í Háskólabókasafninu í Stras-
bourg á Frakklandi 12. marz - 3. apríl, en efni þeirrar sýningar var að bregða upp
myndum af menningarsambandi Elsassbúa og Norðurlandaþjóða allt frá fornu fari.
Þess skal að lokum getið, að Landsbókasafn léði fjölda handrita og fáeinar bæk-
ur á sýningu þá, er Hið íslenzka bókmenntafélag efndi til í Þjóðminjasafni íslands
í minningu 150 ára afmælis félagsins 30. marz 1966.