Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1967, Blaðsíða 9
LANDSBÓKASAFNIÐ 1966
9
Systkini sr. Einars Sturlaugssonar prófasts á Patreksfirði (d. 23. sept. 1955),
Guðborg og Hjörtur, færðu safninu prédikanir og tækifærisræður sr. Einars, enn-
fremur fjóra minjagripi úr eigu hans.
Af eldri handritagjöfum, er skráðar voru á árinu, skal nefna íslandsklukkuna í
eiginhandarriti Halldórs Laxness, A-D gerð. Gaf höfundur það dr. Sigurði Nordal,
en hann síðan Landsbókasafni.
Þá voru skráð margvísleg handrit, er Steindór Steindórsson yfirkennari á Akur-
eyri safnaði vestan hafs fyrir nokkrum árum, t. a. m. handrit Sigurbjarnar Guð-
mundssonar frá Nýhóli á Hólsfjöllum, komin frá sonardóttur hans, Guðbjörgu
Björnsson að Mountain í Norður-Dakota, ennfremur handrit úr fórum Marinós Briem
í Riverton, Manitoba, o. m. fl.
Af keyptum handritum skal nefna m. a.: J. E. Davis. Dagbók úr leiðangri um Fær-
eyjar, ísland og Grænland 18. júlí - 24. nóvember 1860. Dagbókinni fylgja tvö bréf,
er Davis hefur skrifað konu sinni frá Reykjavík.
Fáein bréf frá Einari Benediktssyni skáldi, Hlín Johnson og Sigurði Guðmunds-
syni skólameistara til Gunnfríðar Jónsdóttur myndhöggvara.
Af eldri handritum keyptum, er skráð voru á árinu, skal getið hins mikla kvæða-
og vísnasafns Einars Þórðarsonar frá Skeljabrekku.
Af nýjum handritagjöfum frá árinu 1966, er bíða skráningar eða verða ekki til
afnota fyrst um sinn, skal þessara minnzt:
Frú Rósa Daðadóttir Hjörvar, ekkja Helga Hjörvar rithöfundar, ákvað með bréfi
26. október að gefa Landsbókasafni meginhluta handrita hans. Er hér um margvís-
leg handrit að ræða, handrit þýddra verka og frumsaminna, einkum útvarpserinda,
auk merkilegs bréfasafns, er frú Rósa hefur raðað og búið um af mikilli alúð. Hand-
rit Helga verða afhent í nokkrum áföngum.
Steinn Dofri ættfræðingur, er lézt 1. apríl 1966, arfleiddi Landsbókasafn að öllum
handritum sínum.
Snæbjörn Jónsson bóksali gaf Landsbókasafni meðal annars bréfasafn sitt, geysi-
mikið að vöxtum. Snæbjörn hefur sem umsvifamikill útgefandi, rithöfundur, bóka-
maður og bóksali um áratugi átt bréfaskipti við fjölda manna innanlands og utan,
og skal hér einungis nefndur einn, Sir W illiatn Craigie, einkavinur Snæbjarnar og
Islendinga.
Þorsteinn Jósepsson, ritliöfundur og blaðamaður, er lézt 29. janúar sl., gaf hingað
á árinu allmikið safn bréfa og handrita, er hann liafði fengið frá Jóhannesi P. Páls-
syni lækni, nú búsettum á Vancouver Island, skammt norðan Victoríu. Eru í safn-
inu bréf til Jóhannesar frá Stephani G. Stephanssyni, Rögnvaldi Péturssyni, Jóhanni
M. Bjarnasyni, Guttormi J. Guttormssyni, Páli Bjarnasyni og ýmsum fleiri nafnkennd-
um Islendingum vestan hafs.
Hér fara á eftir nöfn þeirra manna og aðila, er gefið hafa eða afhent handrit árin
1965 cg 1966, án þess að frá þeim handritum verði sérstaklega skýrt:
Frú Anna Eiríks, Reykjavík. - Arnór Sigurjónsson rithöfundur, Reykjavík. -