Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1967, Blaðsíða 199
ÓLAFUR PÁLMASON
SÆNSKAR EINDÆMABÆKUR
í LANDSBÓKASAFNI
I Landsbókasafni eru rúmir fjórir tugir erlendra bóka eða brota, sem kalla má
fornprent, ef til þess eru taldar bækur prentaðar utan Norðurlanda fyrir 1551 og
Norðurlandabækur fram til 1600.* Að minnsta kosti ellefu þessara bóka eru ein-
dæmabækur (unica), að því er talið hefur verið.
Meðal hinna erlendu eindæmabóka eru fjögur sænsk guðsorðarit, prentuð í Stokk-
hólmi 1562 af Amund Laurentsson. Ritin eru þessi:
[Then Swenska Psalmeboken.]
Talið er, að um 20 blöð vanti framan af eintakinu. Enn fremur vantar þrjú blöð
aftar, Bi og Iiv-v.
Catechismus.
Heilt eintak.
Euangelia och Epistler.
Heilt eintak. í bókinni getur hvorki prentara né prentstaðar, en Laurentsson
hefur vafalaust einnig prentað hana.
[Passio.]
Hér er aðeins aftasta blaðið úr bókinni. Á því eru þrjár línur af niðurlagi texta
og oddi (kólófon). Blaðið hefur verið ákvarðað með samanburði við síðari út-
gáfur frá 1572 og 1578.
Rit þessi eru öll bundin í eitt bindi. Bandið virðist vera frá 19. öld. Bindið ber
merki allmikillar notkunar og er talsvert skorið, mest að ofan, svo að sums staðar
snertir skurðurinn þar stafi, enn fremur við fremra jaðar á fáeinum síðum. Blöð-
in eru nú 12.1x8.8 sm.
Saga þessa bindis verður ekki rakin langt aftur. Landsbókasafn keypti það á upp-
boði, er fram fór í Góðtemplarahúsinu í Reykjavík 26.-30. nóv. 1906, en þar voru
boðnar upp bækur sr. Þorvalds Bjarnarsonar á Melstað.** Sr. Þorvaldur var ötull
* Hér eru þessi mörk höíð einungis vegna þess, að við þau var miðað, er próf. Pétur Sigurðsson
greindi frá elztu erlendum bókum í Landsbókasafni, þeim er safnið hafði þá eignazt, í Ritauka-
skrá 1939. Þessu má ekki rugla saman við vögguprent (incunabula, er stundum hefur einnig verið
nefnt fornprent), en það eru bækur prentaðar fyrir 1501. 1 Landsbókasafni eru sjö slíkar bækur.
** Uppboðsbók fyrir Reykjavíkur kaupstað 1904-07 í Þjskjs. - Ritaukaskrá Landsbókasafnsins
1906, Rv. 1908, 7. bls.: „Psalmabook, Catechismus, Evangelia och Epistler. Stli. 1562,“