Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1967, Blaðsíða 165
ENDURSKOÐUN VÖLUSPÁR
AUKIN TENGSL
161
Engum getur dulizt, að fyrsti fjórðungur K 17:
Unz þríar kvgmu
ór því liði,
er í beinum tengslum við síðari helming K 8:
unz þríar kvgmu
þursa meyjar
ámáttkar mjgk
ór Jgtunheimum.
Einnig er ljóst, að orðin œsir, gflgir ok ástkir at húsi (K 17, 3.^1. vo.), höfða beint
til K 7 og fyrri helmings K 8, þar sem lýst er iðjusemi ása (K 7, öll vísan), trú
þeirra á æðri máttarvöld (K 7, 3.-4. vo.), heilbrigðri lífsnautn (K 8, 1.-2. vo.) og
auðæfum (K 8, 3.-4. vo.), þ. e. gullöld ása, sem stóð, meðan þeir voru „öflugir og
heimakærir“.
Fyrrnefndu tengslin eru E fullljós, en hin síðarnefndu ekki (Sbr. 145. bls.). Þess
vegna finnst honum ástæða til að efla böndin, - auðvitað vegna dvergaþáttar (K
9-16, H 9—16), — og það hyggst hann gera með því að þurrka út 2. vísuorð K 17
(ór því liði) og setja í staðinn 6. vísuorð K 8 (þursa meyjar). Þannig verður allur
fyrsti fjórðungur H 17 og þriðji fjórðungur K 8 (H 8) samhljóða (Sbr. 5. og 6. vo. H
11 og 13.). — Ef til vill er vottur af sömu viðleitni fólginn í þeirri staðreynd, að E víxlar
orðunum gflgir - ástkir (K 17) í 3. vísuorði H 17, þ. e. flytur fram það orðið, sem
hljómar að miklu leyti eins og fyrra orðið í 7. vísuorði K 8 (H 8). Sbr. síðari
helming K 8 og fyrri helming H 17:
K 8, 5-8.
unz þríar kvgmu
þursa meyjar
ámáttkar mjpk
ór Jgtunheimum.
H 17, 1-4.
Unz þríar kvgmu
þursa meyjar,
ástkir ok pflgir,
æsir, at húsi.
Úr því að E breytti ekki þríar (K 17 - H 17, 1. vo.) í þrír (þ. e. ór því liði, K 17),
svo sem skylt hefur þótt að gera á síðari tímum, en sundraði hins vegar orðunum
ástkir . . . at húsi enn meira en gert er í frumvísunni, hlýtur hann að hafa tekið
þannig upp (H 17): Æsir, — ástkir ok gflgir, unz þríar þursa meyjar kvgmu at húsi,
- fundu . . . . En þá verður merkingarafl forsetningarliðarins at húsi ónýtt, og er það
ótvírætt merki um textabreytingu.
Eins og áður getur (151. bls.), virðist árheitið Niðg (H 58) eiga að nokkru leyti
rætur að rekja til vísu, sem E þekkti, en sleppti: K 35. Beinar slitrur af sömu vísu
munu leynast í H 32. Sbr. a) 8. vísuorð K 40: sá es Fjalarr heitir, b) tvö síðustu vísu-
orð K 35 og síðasta fjórðung H 32:
11