Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1987, Page 22

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1987, Page 22
22 BRÉF NOKKURRA FRÆÐIMANNA Sem stendur er ég að skrifa ,Inngang að bókmenntasögu íslend- inga eftir siðbót’, það verður seinasta ritsmíðin mín hér. Ég uni því illa, að hlutverki íslendinga í heiminum sé lokið A.D. 1400, en svo lítur það þó út utanfrá. Og svörin heiman að eru annaðhvort að tala um hlutverk út í bláinn, eins og Jón í íslenzkt þjóðerni, eða blása sig upp af gorgeir eins og Helgi Péturss, sem mun gera okkur hlægilega, hvar sem hann fer. Well, ég þykist hafa fundið svar, fundið takmark - kastaði því fram í fyrirlestri á Rödkilde í fyrra og fann það sló menn. Nú er ég smátt og smátt í tómstundum að breikka grundvöllinn, skoða fortíð og nútíð frá þessu sjónarmiði. Og í fyllingu tímans smelli ég því út. Og ég trúi, að það geti orðið bæði ,íslenzkum árbókum happ’ og líka því lifandi þjóðlífi, sem ég met enn meira og helzt seiðir mig heim, ef ég fengi að halda því öllu áfram. En nú fer ég aftur til Oxford, og þar verða fyrirlestrarnir tilvonandi einvaldir milli Mikj- álsmessu og Jónsmessu. Og það verður engin kvöl, því það efni elska ég. Bara að mér auðnist að láta tilvonandi áheyrendur finna snefil af því sama. Vænt þætti mér að eiga von á línu aftur frá þér. Berðu konu þinni og dætrum kæra kveðju, sömuleiðis Önnu systur minni með þökk fyrir bréf. Kemst ekki til að skrifa henni nú. Vertu blessaður, Þinn Sigurður Nordal. Oxford adr.: 5 Walton Well Road. - þar verða fyrirlestrarnir tilvonandi einvaldir: Hannesar Árnasonar fyrirlestrar svonefnd- ir, um einlyndi og marglyndi, sem Sigurður flutti í Reykjavík veturinn 1918-19. Þeir hafa nýlega verið prentaðir, eins og kunnugt er. 5 Walton Well Road, Oxford, 11. maí 1918. Kæri vinur, Kærar þakkir fyrir bréfið. Orð mín um ,makt myrkranna’ voru fremur meint í spaugi, því þegar ég skrifaði þau, þóttist ég viss í minni sök. Og of samvizkusamur varstu að eigna þér nokkurn þátt í, ef ég hefverið hálfórór um, hvað væri að gerast heima stundum. Það var Ágúst vinur minn, sem málaði íjandann á vegginn í fyrrasumar,

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.