Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1987, Síða 39

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1987, Síða 39
HALLDÓR HERMANNSSON 39 The Fiske Icelandic Collection, Cornell University Library, Ithaca, N.Y., 3. nóvbr. 1928. Kæri vinur, Ég hef meðtekið bréf þitt frá 7. okt. Ég hef reynt að koma grein þinni að í „The Nation“ (New York), en það tókst ekki, eins og þú sérð af umlögðu bréíi frá meðritstjóranum. Eins og ég sagði við þig í sumar og eins og ritstjórinn tekur fram, er lík hugmynd engan veginn nýstárleg. Málið um afvopnun er heldur ekki brýnt núna, eftir að Kellogg samningurinn hefur fengið svo mikið fylgi, en nú er eftir að sjá, hvaða árangur hann muni hafa, þegar til kastanna kemur. Ég skal gjarna reyna að koma grein þinni að í einhverju tímariti, en ég býst varla við miklum árangri af því, enda held ég, að hún mundi undir kringumstæðunum vekja heldur litla athygli sem stendur. Frits Holm þekki ég persónulega, þó ég hafi nú ekki séð hann í fleiri ár, hann er auðvitað „buffoon11, sem enginn tekur alvarlega. Ég held hann þykist vera afsprengur af dönsku konungsættinni - á laun. Með kærri kveðju til þín og konu þinnar, þinn einlægur Halldór Hermannsson Guðmundur var með ákveðnar tillögur um, hvernig koma mætti í veg fyrir styrjaldir, og lýtur umrædd grein að því efni. Frits Vilhelm Holm hafði þetta ár, 1928, birt grein um sama efni. The Fiske Icelandic Collection, Cornell University Library, Ithaca, N.Y., 8. des. 1930. Kæri vinur, Þér mun kannske þykja seint um efndirnar hjá mér, en þær koma þó að lokum, að minnsta kosti að nokkru leyti. Þú kvaðst þig vanta Islandica XV, XVI og XIX. Ég sendi þér nú í krossbandi XV og XVI, en því miður getum við ekki látið þig fá XIX, því að upplagið er lítið og það hefur gengið meira upp af því en hinum. Ekki tókst ykkur, að því er ætla má af blöðunum, að koma í veg fyrir leikhúsbygginguna í nágrenni Safnahússins. Það var mjög leiðinlegt og mun valda miklum óþægindum og óprýði í framtíðinni,
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.