Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1987, Page 42

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1987, Page 42
42 BRÉF NOKKURRA FRÆÐIMANNA reyndar hafl þetta kannske verið svo í öðrum skólum í ríkinu. En hann veit auðsjáanlega ekki, að þetta var svo ekki eingöngu í ríkinu danska, heldur í allri vestrænni menningu — eins hér í Ameríku sem annars staðar, og drap að lokum forntungnanámið. Það er leiðinlegt, þegar menn, sem hafa ekki víðara sjónarsvið eða betri sögulegt „perspektiv“, hafa þá fordild, að þykjast geta ritað endurminningar. Og svo er málið hjá honum þannig, að hver hálfdrættingur mætti fyrirverða sig, svo sem orðskrípið „vanþykkja“. Pað hef ég aldrei heyrt eða séð á prenti og get ekki betur séð en sé rangt myndað í þeirri merkingu, sem hann brúkar það. En í sambandi við þetta dettur mér í hug áætlun Bmfél. að gefa út ævisagnabók ísl. (Dict. of biography). Hugmyndin er ágæt, og þetta er mesta þarfaverk, en nú er allt komið undir því, hvernig fram- kvæmdin verður. Því miður virðist mér, að allt það, sem horfir til ævisagnaritunar, standi á svo lágu stigi meðal vor sem mest má verða. Og það virðist heldur versna en batna. Aldrei hafa æviminn- ingar í blöðum verið væmnari og verri en nú. Þær eru venjulega í þeim afkáralegasta líkræðustíl. Og þessa kennir ekki sjaldan annar- staðar. Það verður að gæta þess að varast þetta sem mest í ævisagnabókinni. Þið takið auðvitað enga lifandi menn upp í hana, og þið verðið að hafa góðan ritstjóra með smekk og eftirgangssemi við menn. Það verður annars gaman að sjá, hvernig þetta gengur, því að þetta mun vera fyrsta fyrirtækið á íslenzku, þar sem margir menn eiga að vinna saman. Fyrirgefðu svo masið. Með beztu kveðju til þín og konu þinnar, þinn einlægur H. Hermannsson acromegaly: ofvöxtur í andlits- og útlimabeinum. - Skólaendurminningar Finns: Finns Jónssonar prófessors.

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.