Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1987, Page 60

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1987, Page 60
60 BRÉF NOKKURRA FRÆÐIMANNA Halldór Hermannsson Stefán Einarsson Richard Beck tungutök hennar á íslenzku. Oft hef ég hugsað til þín, þegar mig hefur skort orð, eins og t. d. nú í fónologíunni nýju (phonology er phonemics til aðgreiningar frá phonetics, sem Jón Ófeigsson og ég eftir honum kallaði hljóðfræði). í phonetics= hljóðfræði, er hljóð= Sproglyd, sound, en í phonology heitir samsvarandi eining phonem- fonem. Hvað ætti það að heita á íslenzku? Kannske þú viljir grein um íslenzka fónólógíu til þess að geta þýtt hugtökin á íslenzku? Ég ætti að vita meira um hana en um amerískt háskólalíf. Þú spyrð um hvað ég hafi verið að rita: ég hef verið að hreinskrifa greinar um Benedikt Gröndal (á ensku), Guðmund Friðjónsson og Einar Kvaran. Ég á orðið allmikið efni um alla prósahöfunda, hvenær sem ég kem því í heild. En ef ég skyldi deyja frá því, þá er þó nokkuð af því í þessum tímaritsgreinum um þá, sem ég hefverið að smápeðra úr mér. Ég var annars forframaður í haust og gerður að Associate professor (2. nóv.) í ensku, þótti mér vænt um það, þótt ekki breytti það að öðru leyti högum mínum. Satt að segja bjóst ég ekki við neinu þess

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.