Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1987, Side 63
STEFÁN EINARSSON
63
fyrir, t. d. í Eimreiðinni. Ég læt afrit af „Far kveðju“ íljóta með, það er
varla vert að prenta það, en þú kynnir að vilja það fyrir Lbs. og gætir
ef til vill upplýst, hver þessi J.J. er. E.t.v. Jochum Jochumsson?
Með beztu kveðjum,
þinn einlægur,
Stefán Einarsson
The Johns Hopkins University,
Baltimore, Maryland.
14. nóv. 1940.
Department of English.
Kæri vinur:
Nú loks sendi ég þér bækur, sem ég vona að komi að tilætluðum
notum fyrir ykkur.
Fyrst er ég las bréf þitt, datt mér í hug, að það sem þið vilduð væri
„general stylistics“. Fór ég þá til próf. Leo Spitzers, sem er okkar
authority on style, og spurði hann um slíkar bækur, gaf hann mér
nokkrar á þýzku (sem ég hygg þið hafið) og frönsku, en aðeins eina á
ensku, sem ég hef ekki getað náð í.
En við nánari athugun virðist mér, að líklega væru það heldur
books on composition, sem þið vilduð fá. Petta eru kennslubækur og
handbækur handa stúdentum til að kenna þeim að rita sæmilega
ensku, ekki aðeins að stafsetningu, heldur og að hugsun, samningu og
stíl. Af þessum bókum er til óendanlegur grúi, en einna frægust og
mest notuð er Wooley and Scott, College Handbook of Composition.
Hún er m. a. kennd hér við háskólann í College-deildinni, eða réttara
sagt, stúdentar nota hana sem handbók. Aftur á móti er hér kennd
French and Wheeler, College Writing, líklega af því að Mr. French er
bókavörður háskólabókasafnsins. Hinar bækurnar sendi ég til þess,
að þið hefðuð eitthvað meira til samanburðar. Pær eru:
Shaw: A Complete Course in Freshman English [2.60]
Salisbury: Better Composition [1-25]
Tenney: Intelligent Reading [2.00]
Fyrir þessar bækur hef ég borgað, aðeins French and Wheeler,
College Writing $ 1.50, og burðargjald og pökkun, sem verður víst
um $ 1.50.