Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1987, Qupperneq 64
64
BRÉF NOKKURRA FRÆÐIMANNA
Hinar bækurnar hef ég fengið sem desk copies fyrir sjálfan mig
ókeypis að sinni. Það getur nú reyndar verið, að ég verði rukkaður um
verð fyrir þær, sem ég hef sett verð í hornklofa, - þegar útgef. sjá, að
ég panta engar bækur fyrir stúdenta mína, því ég kenni ekki composi-
tion hér. En það er engin ástæða til að rukka ykkur um það þangað
til, kannske koma reikningarnir aldrei.
Ég bið þig að láta þessa $ 3.- ganga til Bókmenntafél., ef ég skulda
fyrir bækur, annars til Eimreiðarinnar (og ef ég skyldi senda ykkur
reikn. síðar, þá til Fornleifafélagsins).
Ég lét senda bækurnar í þrem pökkum yfir England, því ekki er
hægt að senda póst heim með íslenzku skipunum. Ég spurðist fyrir,
hve mikið mundi [kosta] að senda pakka í fragt, og fékk það svar, að
minnsta gjald væri um $ 8 - og auk þess amk. $ 3 - fyrir fyrirhöfn í
New York. Ég vona, að bækurnar komi til skila og verði að gagni.
Okkur hér líður vel.
Með beztu óskum og beztu kveðjum,
þinn
Stefán Einarsson
The Johns Hopkins University,
Baltimore, Maryland.
Febr. 12. 1941.
Kæri vinur,
Nú er alllangt síðan ég sendi þér bækur um stylistics eftir beiðni
þinni; vona ég, að þær hafi komið til skila, þótt ég hafi ekki heyrt neitt
frá þér.
Bækur Bókmenntafél. hafa ekki komið til mín og ekki til safnsins,
hvað sem af þeim hefur orðið; ég hef fengið nokkrar bækur að heiman
með skilum.
Ég sendi þér hér með fáeinar línur í Skírni.
Með beztu óskum um betra ár,
þinn
Stefán Einarsson