Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1987, Page 66

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1987, Page 66
66 BRÉF NOKKURRA FRÆÐIMANNA ritgerðum eftir mig. Þætti mér stórvænt um, ef þér vilduð minnast þessara rita minna í næsta Skírni, sérstaklega Kirkjufélagssögunnar og ritgerðanna um Jón Þorláksson og séra Matthías. Ég hefi haft í smíðum um nokkurt skeið ritgerð, sem ég nefni „Alexander Pope og íslenzkar bókmenntir“ og §a\la.r stuttlega um ævi hans og rit, en aðallega um íslenzkar þýðingar á verkum hans og tilvitnanir í hann í íslenzkum ritum. Datt mér í hug að senda yður hana í Skírni; en hvenær þyrfti hún þá að vera komin í yðar hendur? Verið getur einnig, að ég sendi yður einhverja ritdóma um nýútkomnar bækur á ensku um íslenzk efni, sem sjaldan eða aldrei er annars getið í íslenzkum tímaritum. I sérstökum böggli mun ég einnig senda Landsbókasafninu ýmisleg sérprent mín. Með beztu kveðjum og óskum. Yðar einlægur Richard Beck The University of North Dakota Grand Forks, 2. feb. 1936 Department of Scandinavian Languages Kæri dr. Guðmundur Finnbogason, Innilegar þakkir fyrir vinsamlegt bréf yðar frá 14. janúar, sem mér barst í gær. Þótti mér vænt um að heyra það, að þér voruð ánægður með ritdóm minn um íslendinga yðar; ýmsir hér vestra hafa minnzt á hann hlýlega í bréfum til mín. Ég er yður þakklátur fyrir að vilja taka grein mína um Poþe og íslenzkar bókmenntir, ef rúm leyflr, í næsta Skírni; hún verður í kringum örk. Þá mun ég einnig, eins og þér nefnið, senda nokkra stutta ritdóma um nýjar enskar og amerískar bækur, er ísland snerta; mun þetta, sem ég hefi í huga að senda yður, þá taka upp alls eitthvað 20 bls. Að öllu forfallalausu ætti það að geta verið komið í yðar hendur um mánaðamótin marz og apríl. Stórvænt þætti mér vitanlega um það, ef þér vilduð minnast á ritgerðir þær, sem ég sendi yður í Skírni, ekki sízt Sögu kirkjufélagsins, sem ég gleymdi víst ekki að láta fylgja með hinum. í sérstökum böggli sendi ég yður eintak af Scandinavian Studies and Notes, nýútkomið, með allýtarlegri ritgerð um séra Matthías. Ég læt einnig fljóta með, að

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.