Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1987, Síða 66
66
BRÉF NOKKURRA FRÆÐIMANNA
ritgerðum eftir mig. Þætti mér stórvænt um, ef þér vilduð minnast
þessara rita minna í næsta Skírni, sérstaklega Kirkjufélagssögunnar og
ritgerðanna um Jón Þorláksson og séra Matthías. Ég hefi haft í
smíðum um nokkurt skeið ritgerð, sem ég nefni „Alexander Pope og
íslenzkar bókmenntir“ og §a\la.r stuttlega um ævi hans og rit, en
aðallega um íslenzkar þýðingar á verkum hans og tilvitnanir í hann í
íslenzkum ritum. Datt mér í hug að senda yður hana í Skírni; en
hvenær þyrfti hún þá að vera komin í yðar hendur? Verið getur
einnig, að ég sendi yður einhverja ritdóma um nýútkomnar bækur á
ensku um íslenzk efni, sem sjaldan eða aldrei er annars getið í
íslenzkum tímaritum. I sérstökum böggli mun ég einnig senda
Landsbókasafninu ýmisleg sérprent mín.
Með beztu kveðjum og óskum.
Yðar einlægur
Richard Beck
The University of North Dakota
Grand Forks, 2. feb. 1936
Department of Scandinavian Languages
Kæri dr. Guðmundur Finnbogason,
Innilegar þakkir fyrir vinsamlegt bréf yðar frá 14. janúar, sem mér
barst í gær. Þótti mér vænt um að heyra það, að þér voruð ánægður
með ritdóm minn um íslendinga yðar; ýmsir hér vestra hafa minnzt á
hann hlýlega í bréfum til mín.
Ég er yður þakklátur fyrir að vilja taka grein mína um Poþe og
íslenzkar bókmenntir, ef rúm leyflr, í næsta Skírni; hún verður í kringum
örk. Þá mun ég einnig, eins og þér nefnið, senda nokkra stutta
ritdóma um nýjar enskar og amerískar bækur, er ísland snerta; mun
þetta, sem ég hefi í huga að senda yður, þá taka upp alls eitthvað 20
bls. Að öllu forfallalausu ætti það að geta verið komið í yðar hendur
um mánaðamótin marz og apríl.
Stórvænt þætti mér vitanlega um það, ef þér vilduð minnast á
ritgerðir þær, sem ég sendi yður í Skírni, ekki sízt Sögu kirkjufélagsins,
sem ég gleymdi víst ekki að láta fylgja með hinum. í sérstökum böggli
sendi ég yður eintak af Scandinavian Studies and Notes, nýútkomið, með
allýtarlegri ritgerð um séra Matthías. Ég læt einnig fljóta með, að