Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1987, Page 73

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1987, Page 73
RICHARD BECK 73 The University of North Dakota Grand Forks, 30. janúar 1939 Department of Scandinavian Languages Kæri dr. Guðmundur Finnbogason, í sérstökum böggli sendi ég yður sérprent af ritdómi mínum á ensku um íslendinga yðar, sem ég skrifaði fyrir löngu síðan, en beið byrjar hjá tímaritinu (The Journal of English and Germanic Philology) vegna rúmleysis. Einnig sendi ég yður eintak af vikublaðinu Heims- kringlu með ritdómi mínum um Mannfagnað yðar; en svo illa tókst til, að nokkrar línur féllu úr ritdóminum í prentun, og leiðrétti ég það í næsta blaði; fylgir leiðréttingin ritdóminum. Þér megið fastlega eiga von á ritgerð og nokkrum ritdómum frá mér í Skírni, og skal ég senda það í fyrra lagi. Ég vona, að þér hafíð fengið sérprent og annað, sem ég sendi Landsbókasafninu snemma í fyrra vor. Með beztu kveðjum. Yðar einlægur Richard Beck P.S. Ég mun einnig senda yður til umsagnar á næstunni Bókmenntasögu Norðurlanda á ensku, sem ég er meðhöfundur að. R.Beck The University of North Dakota Grand Forks, 22. apríl 1939 Department of Scandinavian Languages Kæri dr. Guðmundur Finnbogason, Hér með sendi ég yður ritgerðina í Skírni, ásamt einum ritdómi; vona ég, að þér fáið þetta með skilum og teljið hvorutveggja flutningsfært. Ég ætlaði að senda yður fleiri ritdóma, en er smeykur um, að mér vinnist ekki tími til þess að sinni. í sérstökum böggli sendi ég yður einnig til eignar og umsagnar Bókmenntasögu Norðurlanda á ensku, sem ég er meðhöfundur að og nýlega kom út hér vestra. Vil ég biðja yður, að taka eftir því, eins og segir í formálanum, að ég lauk við íslenzku kafla bókarinnar um áramótin 1933-34, og var hún þá sett.

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.