Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1987, Page 75

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1987, Page 75
RICHARD BECK 75 The University of North Dakota Grand Forks, 16. jan. 1940 Department of Scandinavian Languages Kæri dr. Guðmundur Finnbogason, Beztu þökk fyrir vinsamlegt bréf yðar frá 24. nóvember og meðfylgjandi ávísun á Bókmenntafélagið. Það kemur sér vel fyrir mig, að geta notað hana heima á íslandi. Þá vil ég þakka yður kærlega fyrir prýðilega meðferð á því, sem ég sendi yður í Skírni; mér þykir hann Qölbreyttur að efni og aðrar bækur Félagsins í ár hinar prýðilegustu. Mér þótti vænt um að sjá, að fram komu á ársfundi Félagsins mótmæli gegn óréttmætum árásum á það; er ég að hugsa um að skrifa grein um bækar þessa árs og gildi útgáfu- starfsemi félagsins og senda hana einhverju blaðinu. Ég skal með mikilli ánægju senda yður á næstunni arkargrein um Hardy. Hann hefir lengi verið einn af þeim höfundum, sem ég hefi haft miklar mætur á. Ég læt kannske einhverja ritdóma fljóta með. Með beztu kveðjum. Yðar einlægur Richard Beck Þjóðræknisfélag íslendinga í Vesturheimi 9. júní 1940 Kæri dr. Guðmundur Finnbogason, Ég hefi dregið að skrifa yður vegna þess, að ég hafði von um að geta sent yður greinina um Hardy. Vegna aukinna starfa, sem hlaðizt hafa á mig í vetur, getur þó ekki orðið af því, og bið ég yður mikillega afsökunar. Að dr. Rögnvaldi Pétursson látnum féllu á mínar herðar sem vara-forseta Þjóðræknisfélagsins ýms aukastörf; svo var ég á ársþingi félagsins seinni partinn í febrúar kosinn forseti þess, og hefir það eðlilega ýms störf, sérstaklega miklar bréfaskriftir, í för með sér. Ég vona, að ég geti bætt Skírni þetta upp næsta ár. Með beztu kveðjum og óskum. Yðar einlægur Richard Beck

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.