Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1987, Page 76

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1987, Page 76
76 BRÉF NOKKURRA FRÆÐIMANNA The University of North Dakota Grand Forks, 15. sept. 1941 Department of Scandinavian Languages Heiðraði vin, Sökum margvíslegra anna, sérstaklega í sambandi við langa fyrir- lestraferð í sumar í þágu íslenzkra þjóðræknis- og félagsmála, vannst mér eigi tími til að senda Skírni neitt til birtingar, en mun reyna að bæta það upp á næsta ári. En þar sem mér er dálítið annt um starf- semi Bókmenntafélagsins, ritaði ég á dögunum í Heimskringlu umgetn- ing um bækur félagsins í fyrra og læt hana fylgja hér með; ég mun einnig á næstunni skrifa um bók dr. Einars Ól. Sveinssonar um þjóð- sögurnar. Ég er nú rétt að byrja kennslu að nýju og hefi því mörgum hnútum að hnýta. Norrænudeildin hér er fimmtug á þessu hausti, en um það mun eitthvað koma í íslenzku blöðunum hér vestra áður langt líður. Með beztu kveðju. Yðar einlægur Richard Beck The University of North Dakota Grand Forks, 28. júlí 1942 Department of Scandinavian Languages Heiðraði vin, Fyrir löngu síðan sendi ég yður til væntanlegrar umsagnar Almanak Ó. S. Thorgeirssonar, sem ég er nú ritstjóri að. Þætti mér vænt um að vita við hentugleika, hvort þér hafið fengið ritið. Þá sendi ég yður fyrir langa löngu síðan afsökun mína fyrir það, að ég gat eigi annríkis vegna ritað í tæka tíð minningargreinina um Thomas Hardy, þó að ég hefði viðað að mér efni í hana, en mig grunar, að þér hafið aldrei fengið það bréf mitt, og er það þá eitt af mörgum, sem aldrei hafa komizt til skila. Ég fékk aldrei Bókmenntafélagsbækurnar frá í fyrra, og hefi ég nýlega skrifað Matthíasi Þórðarsyni, bókaverði félagsins, og beðið hann að senda mér þær ásamt með bókunum í ár, en án rita félagsins vil ég ekki vera. Ég vona, að þér hafið fengið bréf mitt með umgetningu minni úr Heimskringlu um ritin fyrir árið 1940. Með kærri kveðju og beztu óskum. Yðar einlægur ^

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.