Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1994, Blaðsíða 54

Frjáls verslun - 01.10.1994, Blaðsíða 54
NÆRMYND ingar erlendra aðila á íslandi, auk þess sem hann situr í nokkrum öðrum nefndum og vinnuhópum. í RÓTARÝ Frosti var einn þeirra sem átti þátt í að koma Roundtable hreyfmgunni á fót á fslandi og byggja hana upp. Roundtable er ungliðahreyfing Rót- arý á íslandi og menn starfa innan hennar fram til 40 ára aldurs. Frosti er eðlilega hættur að starfa með Roundtable en er félagi í Rótarýklúbbi Reykjavíkur, Austurbæ. í tómstund- um sínum sem gefast í raun ekki mjög margar, stundar Frosti líkamsrækt og útivist. Hann leikur skvass og skokkar og er í mjög góðri líkamlegri þjálfun og tók þátt í hálfu maraþon- hlaupi í Reykjavíkurmaraþoni sumar- ið 1992. Á sínum yngri árum tók Frosti virkan þátt í starfsemi íþrótta- félagsins Breiðabliks í Kópavogi og lagði einkum stund á hlaup og hástökk og þótti vel liðtækur í þeim greinum. Hann æfði einnig handbolta, fyrst með Breiðabliki en síðar með KR og Gróttu. Blaðinu er ekki kunnugt um að hann sé meðlimur í hlaupahópi heldur kýs hann frekar að hlaupa einn til þess að slaka á eftir erfiðan vinnu- dag. Hann lagði snemma grunninn að heilbrigðum lífsháttum sínum en Frosti hefur aldrei reykt og er sagður umgangast áfengi af kurteisi og hóf- semi. KYNNTIST VEIÐIFÉLÖGUM í GUFUBAÐINU Fyrir utan að vera í Rótarýklúbbi er Frosti fastagestur í Gufubaðsstofu Jónasar sem lengi var til húsa á Kvist- haganum en er nú við Austurströnd á Seltjarnarnesi. Þar hittast ýmsir mektarmenn og þjóðfrægir karakter- ar og slaka á eftir erfiði og þunga dagsins. Þar eru sagðar stórkostleg- ar veiðisögur, lygasögur, vináttan treyst og viðskipti handsöluð. Meðal þjóðkunnra einstaklinga, sem þangað sækja, auk Frosta, má nefna Ingva Hrafn Jónsson, fréttastjóra og veiði- jarl, Guðlaug Bergmann, athafna- skáld kenndan við Karnabæ, Kristján Ragnarsson, forkólfíLÍÚ, ogfleiri. í gegnum þennan félagsskap við þekkta veiðimenn hefur Frosti sótt í auknum mæli í stangveiði nokkur undanfarin sumur og er sagður afla nokkuð vel. Hann hefur farið til veiða í Norðurá á hverju sumri undanfarin ár og einnig í Haffjarðará og nokkrar óæðri sprænur sem veiðifélagar hans vildu ekki nefna. Frosti þykir ágætur veiðimaður, enda stundar hann það verkefni af áhuga og vandvirkni. Frosti á sér fleiri áhugamál sem tengjast rökhugsun og skilgreiningar- hæfileikum sem hann er gæddur í rík- um mæli. Hann teflir skák og spilar bridge. Helsti keppinautur hans í skákinni er Valdimar, bróðir hans, sem telst meðal hans nánustu vina. Besti vinur Frosta utan fjölskyldunn- ar er Kristmundur Ásmundsson, hér- aðslæknir í Grindavík. Þeir Frosti hafa verið mátar frá barnæsku í Kópa- voginum. Einu sinni í viku hittast þeir ásamt eiginkonum sínum og spila bridge af mikilli hörku. Auk þess hitt- ist „gufubaðshópurinn" oft seinni partinn á laugardögum til þess að spila bridge og Frosti hefur iðulega mætt þar og látið til sín taka við spilaborðið. Frosti fékk þá einkunn spilafélaga að hann væri seigur bridgespilari, órag- ur við áhættur en þætti segja full- glannalega á köflum. IHann kemur ókunnugum fyrir sjónir sem formfastur og alvörugefinn. Ábyrgðartilfinning, reglufesta og skipulag eru ríkir þættir í fari hans og hann temur sér ráðsetta framkomu. Hann er ekki maður sem slær um sig með bröndurum, hávaða og skjalli á vinnustað, hann vinnur á öðrum nótum. Inýju happdrættisári eykur HHÍ enn möguleika viðskiptavina sinna á að hljóta glæsilega vinninga. Stærsti vinningur í mars, samtals 18 MILUÓNIR og aðalvinningur ársins samtals 45 MILLaJÓNIR króna í desember verða eingöngu dregnir úr seldum miðum og ganga því ÖRUGGLEGA út. HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS vænlegast til vinnings 54
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.