Frjáls verslun - 01.10.1994, Qupperneq 14
FRETTIR
Stóllinn Tjaldur ásamt borði. Hönnuður er Þórdís Zoega.
Framleiðandi á íslandi er Sóló-húsgögn en framleiðandi í
Þýskalandi er Brune GmbH.
STELKUR OG TJALDUR
Þýska húsgagnafyrirtæk-
ið Heinrich Brune GnibH
& Co hefur keypt fram-
leiðslu- og sölurétt á hús-
gögnum eftir Þórdísi
Zoéga hönnuð en um er
að ræða stólana Stelk og
Tjald og hringlaga borð
sem þeim fylgir.
Húsgögnin hafa verið á
markaði hér á landi frá
því í vor og eru framleidd
af Sóló-húsgögnum hf.
Markaðssvið Brune
GmbH verður alþjóða-
markaður utan íslands en
Sóló-húsgögn munu
áfram annast innanlands-
markaðinn.
Stólarnir Stelkur og
Tjaldur eru einkum ætl-
aðir til notkunar í eldhús-
um, kaffistofum eða á
kaffihúsum. Þeir komu
fyrst fram á sýningu sem
Þórdís hélt í Stöðlakoti í
apríl og vöktu þegar tals-
verða athygli.
í kjölfarið voru þeir
sendir með öðrum ís-
lenskum húsgögnum á al-
þjóðlegu húsgagnasýn-
inguna sem haldin var í
Bella Center í Danmörku
í september síðastliðn-
um.
Gert er ráð fyrir að stól-
arnir Stelkur og Tjaldur
verði komnir á markað í
Þýskalandi fyrir mitt
næsta ár.
ATHUGASEMD
í fréttaskýringu um
þekktustu konurnar í við-
skiptalífinu, sem var í 8.
tbl. Frjálsrar verslunar,
voru konur í störfum úti-
bússtjóra banka taldar
upp. Hvimleið villa
slæddist inn á listann yfir
útibússtjóra hjá Búnað-
arbankanum. Þar sagði
að Dóra Ingvarsdóttir
væri útibússtjóri á Sel-
tjarnarnesi. Hið rétta er
að hún er útibússtjóri í
Seljaútibúi í Mjóddinni í
Breiðholti. Hefur þessi
villa valdið misskilningi
og fyrirspurnum hjá við-
skiptavinum bankans og
leiðréttist hún hér með.
Hlutaðeigandi eru beðnir
velvirðingar.
RÆSTINGAÞJÓNUSTAN
HREINT OG BEINT
Ræstingaþjónustan
Hreint og Beint, Skeif-
unni 5, er fimm ára um
þessar mundir. Fyrirtæk-
ið hefur frá byrjun lagt
áherslu á fagleg vinnu-
brögð og hagstætt verð og
hefur í tilboðsgerð sinni
sundurliðað alla kostnað-
arliði þannig að verk-
kaupinn sjái svart á hvítu
hvað felst í þjónustu-
samningnum.
Hreint og Beint þjón-
ustar nú um tuttugu fyrir-
tæki og stofnanir. Mikil
veltuaukning hefur orðið
hjá fyrirtækinu á þessu
ári og þakka forsvars-
menn þess það nýju
skipulagi og starfshátt-
um.
I frétt frá fyrirtækinu
segir meðal annars: „Hið
nýja skipulag felst í því að
starfsmenn H & B eru
sem hluti af starfsemi
þess fyrirtækis sem þeir
sjá um þrifin hjá. Þannig
er þjónustan sniðin að
þörfum verkkaupa. Hver
verkkaupi fær sitt eigið
ræstingafólk en Hreint og
Beint er umboðsskrif-
stofa þessa fagfólks og
sér um greiðslur, ráðgjöf,
endurmenntun og samn-
ingagerð."
Ennfremur segir um
hið nýja skipulag: „Það
lækkar tilkostnað verk-
kaupa því yfirbygging H
& B er nánast engin og
það er því enn samkeppn-
isfærara í verði. Starfs-
menn verða um leið
ábyrgari og í nánari
tengslum við verk-
kaupa.“
GLITNIR MEÐ JÓLAGJAFIR
Þessa skemmtilegu mynd fékk Frjáls verslun senda
frá eignaleigufyrirtækinu Glitni hf., dótturfyrir-
tæki Islandsbanka. Glitnir hefur styrkt árlegt jóla-
ball eins af nágrönnum sínum í Armúlanum, dag-
heimilisins Múlaborgar. Þar eru tæplega 80 fötluð
og ófötluð börn á aldrinum 1 til 5 ára. Á þessum jóla-
böllum gefa jólasveinarnir jólagjafir frá Glitni.
14