Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1994, Blaðsíða 73

Frjáls verslun - 01.10.1994, Blaðsíða 73
FOLK GUNNAR ÞORVALDSSON, ÍSLANDSFLUGI Gunnar Þorvaldsson og Ómar Benediktsson stofnuðu íslandsflug 1991 þegar þeir keyptu Arnarflug innanlands og flugskólann Flugtak. „í júní sl. byrjuðum við að fljúga til Bretlands fimm sinnum í viku í samvinnu við DHL hraðþjónustuna. Við höfum aukið vöruflug af þessu tagi smátt og smátt en þjónusta DHL er til mik- ils hagræðis fyrir mörg fyrirtæki. Ef menn panta hlut að utan í dag getur hann legið á borðinu hjá þeim á morgun. Þó að þetta sé heldur dýrari flutningsmáti gerir þetta fyrirtækjum kleift að liggja með minni lager. Þannig erum við að færa ísland nær Evrópu,“ segir Gunnar Þorvaldsson, framkvæmdastjóri íslands- flugs. Gunnar er 47 ára og varð stúdent frá Menntaskólán- um á Akureyri 1968. Hann lærði flug og starfaði sem flugmaður frá 1970 hjá Flug- stöðinni, Austurflugi á Eg- ilsstöðum, Air Viking, Arn- arflugi og í eitt og hálft ár í Svíþjóð og Tyrklandi. „Mig langaði að komast heim og 1991 stofnuðum við Ómar Benediktsson ís- landsflug ásamt Hölds- bræðrum á Akureyri," segir Gunnar. „Við keyptum Arn- arflug innanlands og flug- skólann Flugtak, sem nú er rekinn sem sérdeild í fyrir- tækinu, en þar eru tíu flug- vélar í rekstri. Ég er fram- kvæmdastjóri en er einnig flugmaður í afleysingum. Ómar er hér í hlutastarfi sem stjórnarformaður og vinnur einnig í fyrirtæki sínu, Island tours, en á þess vegum koma flestir þýskir ferðamenn hingað til lands.“ BLÓMLEG STARFSEMI Gunnar segir að 30% af veltu íslandsflugs sé af flugi með ferðamenn. í sumar var t.d. flogið með 2300 far- þega til Grænlands og ferðir til Vestmannaeyja eru vin- sælar en þangað eru stund- um farnar tíu ferðir á dag. „Við höldum uppi reglu- legu áætlunarflugi á átta staði innanlands og skipu- leggjum bílferðir í tengslum við flugið á nokkrum stöð- um. Farþegar hafa verið 40.000 á ári og 300.000 tonn af frakt, pósti og blöð- um hafa verið flutt með vél- um okkar. Flugtak er stærsti flug- skóli landsins og þar voru flognir 6000 flugtímar á síð- asta ári. Það jafngildir því að ein flugvél hafi verið á lofti í 250 sólarhringa,“ segir Gunnar og vísar til þess að lesendur Frjálsrar verslun- ar hafi svo gaman af tölum. „Leiguflug fyrir íslensk fyrirtæki fer vaxandi en oft er ódýrari kostur að láta flugvél bíða eftir mönnum heldur en að greiða gistingu og uppihald úti á landi. Sérverkefni af ýmsu tagi eru einnig í uppbyggingu. Nú eru t.d. sjö flugmenn frá Austurríki í lokaþjálfun hjá okkur en hér eru veðurfars- legar aðstæður erfiðar og þykir þetta góð þjálfun. Við- gerðadeild okkar hefur einnig fengið verkefni er- lendis frá.“ ÚTIVERA í ÓBYGGÐUM Eiginkona Gunnars er Katrín Pálsdóttir hjúkrunar- fræðingur. Þau eiga þrjár dætur, 23, 19 og 12 ára, og er sú elsta orðin flugmaður hjá Islandsflugi. „Vinnan tekur mikinn tíma og ég hef gaman af henni þegar vel gengur. Það veitir mér góða innsýn í rekstur fyrirtækisins á ýms- um sviðum að hlaupa í skarðið sem flugmaður. Þegar ég á frí hef ég gaman af útiveru í óbyggðum. Ég byrjaði með lítið tjald, eign- aðist svo húsvagn og á góð- an bíl til slíkra ferða. Ég stunda karlaleikfimi tvisvar til þrisvar í viku hjá Gauta Grétarssyni. Fjölskyla mín kallar það fitubolluklúbbinn enda erum við að þessu til að geta borðað meira!“ seg- ir Gunnar að lokum. 73
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.