Morgunblaðið - 19.05.2001, Síða 18
AKUREYRI
18 LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í byggingu 9. og 10. áfanga
Verkmenntaskólans á Akureyri.
Áfangarnir eru um 2.150 m².
Verkið skal unnið á tímabilinu 2001-2003.
Útboðsgögn verða seld á Verkfræðistofu Norðurlands,
Hofsbót 4, 600 Akureyri,
22.-29. maí n.k.
Verð á útboðsgögnum er kr. 15.000.
Tilboð verða opnuð á sama stað,
12. júní 2001, kl. 11.00
Byggingarnefnd VMA.
AKUREYRARBÆR
Málþing
um gerð jarðganga
í gegnum Vaðlaheiði
á Fiðlaranum, 4. hæð,
mánudaginn 21. maí
frá kl. 10.00 til 13.00
Frummælendur:
Stefán Reynir Kristjánsson, framkvæmdastjóri Spalar ehf.
Tilurð Spalar og reynsla þess af einkafjármögnun.
Sigfús Jónsson, framkvæmdastjóri Nýsis hf.
Einkafjármögnun, hvernig er að henni staðið.
Dr. Grétar Þór Eyþórsson, rannsóknarstjóri RHA.
Samfélagsleg áhrif jarðganga
Birgir Guðmundsson, umdæmisstjóri
Vegagerðarinnar á Norðurlandi eystra.
Hvað hefur verið kannað til þessa varðandi göng í gegnum
Vaðlaheiði.
Aðgangseyrir kr. 2.000, kaffi og léttur hádegisverður innifalinn.
Þátttaka tilkynnist til Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar
í síma 460 5700 eða á póstfang
sigga@afe.is .
Aðalsafnaðarfundur
Aðalsafnaðarfundur Akureyrarkirkju verður hald-
inn í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju strax eftir
messu sunnudaginn 27. maí 2001 kl. 12.15.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Kosningar.
Önnur mál.
Sóknarnefnd Akureyrarkirkju.
ELLEFU nemendur í 10. bekk
Brekkuskóla á Akureyri voru
sendir heim úr skólaferðalagi til
Danmerkur í vikunni, eftir að
þeir höfðu orðið uppvísir að
áfengisneyslu í ferðinni.
Alls fóru 36 nemendur í ferðina
til Danmerkur sl. föstudag og
kemur hinn hópurinn heim nk.
þriðjudag samkvæmt ferðaáætl-
un.
Björn Þorleifsson skólastjóri
Brekkuskóla sagði að þessi upp-
ákoma væri mikil vonbrigði en
nemendurnir hafa verið með
þessa ferð í undirbúningi sl. þrjú
ár. Nemendur Brekkuskóla hafa
verið í sambandi við jafnaldra
sína í Skagen á Jótlandi undan-
farin ár og með þessari ferð voru
þeir að endurgjalda heimsókn
dönsku krakkanna frá því í haust.
Krakkarnir í Brekkuskóla gistu í
heimahúsum en að sögn Björns
var í einhverjum tilfellum um að
ræða að fólk sem krakkarnir
gistu hjá hefðihringt skelfingu
lostið út af ástandinu.
Björn sagði að gert hefði verið
samkomulag við foreldra
barnanna, þar sem fararstjórum
hefði m.a. verið heimilt að senda
hvern þann sem bryti lög og eða
reglur heim á kostnað foreldr-
anna. „Á meðan nemendur eru í
skólaferðalagi teljast þeir vera í
skóla og áfengisneysla í skóla er
ekki liðin og því sem fór.“
Ellefu nemendur
sendir heim
Áfengisneysla í skólaferðalagi
Brekkuskóla í Danmörku
TÍU akureyrsk fyrirtæki efna til
viðamikillar brúðarsýningar í
Ketilhúsinu á sunnudag, 20. maí
en hún hefst kl. 14.30. Brúðarpör
ganga í salinn kl. 15 og 16. Á sýn-
ingunni gefur að líta nánast allt
sem hugsa þarf fyrir þegar blásið
er til brúðkaups.
Fyrirtækin sem standa að sýn-
ingunni eru Blómabúð Akureyrar,
Brúðarkjólaleiga Akureyrar,
Hársnyrtistofan Medulla, Hjá
Maríu, Hótel KEA, JB úr og
skart, Karl K. Karlsson, Krist-
jánsbakarí, Ljósmyndastofa Páls
og Valrós.
Brúðar-
sýning í
Ketilhúsi
STARFSMENN Bæjarverks á Akureyri voru í óða önn að
endurbyggja og laga kantsteina sem víða höfðu farið illa í
vetur. Einn starfsmannanna orðaði það á þann hátt að svo
virtist sem meira hefði verið um mokstur á kantsteinum en
snjó síðasta vetur. Þegar ljósmyndari rakst á Bæjarverks-
menn voru þeir að endurbyggja kantstein nyrst á Drottning-
arbraut og vönduðu þeir að sjálfsögðu verk sitt. Þeir höfðu
vart lokið framkvæmdum og horfið á braut þegar einhver
bílstjórinn hafði ekið yfir steypuna og eyðilagt þannig verk
þeirra.
Morgunblaðið/Kristján
Starfsmenn Bæjarverks á Akureyri endurbyggja kantstein nyrst á Drottningarbraut.
Svona leit verk starfsmanna Bæjarverks út
skömmu síðar, eftir að einhver ökumaður
hafði tekið heldur krappa beygju.
Kantsteinn
keyrður í klessu
KENNARAFUNDUR Tónlistar-
skólans á Akureyri hefur sent frá
sér ályktun þar sem fram kemur
að aðstaða til tónleikahalds og tón-
listariðkunar sé bæjarfélaginu til
háborinnar skammar.
Ályktunin er sett fram í tilefni
þess að Íþróttaskemman á Akur-
eyri verður ekki framar notuð
undir tónleikahald og að hið ný-
uppgerða Ketilhús komi aldrei til
með að geta þjónað þörfum tónlist-
arinnar. Fundurinn skorar á bæj-
aryfirvöld og stjórnvöld að flýta
ákvörðun um byggingu menning-
arhúss á Akureyri hið fyrsta svo
hið öfluga tónlistarlíf sem hér er
stundað bæði hjá áhugafélögum,
atvinnuhópum og Tónlistarskólan-
um verði ekki fyrir varanlegum
skaða.
Jafnframt bendir kennarafund-
urinn á þá staðreynd að öflugur
tónlistarskóli er mjög mikilvægur
þegar fjölskyldufólk tekur þá
ákvörðun að flytja til bæjarins og
hefur sú staðreynd aldrei verið
áþreifanlegri en nú.
Einnig þykir sýnt að öflug
menningarstarfsemi er hornsteinn
þess ásamt góðum háskóla að
byggja hér upp öflugt háskóla-
samfélag.
Kennarafundur Tónlistarskólans á Akureyri
Aðstaða til tónleika-
halds í bænum til hábor-
innar skammar
ÞRJÁR umsóknir bárust um
styrki frá jafnréttisnefnd Ak-
ureyrar og samþykkti nefndin
þá á síðasta fundi sínum.
Kompaníið fékk 85 þúsund
krónur til að standa straum af
stuttmyndanámskeiði fyrir
stúlkur. Menntasmiðjan fékk
150 þúsund krónur til að gera
könnun á högum fyrrverandi
nemenda Menntasmiðju
kvenna á Akureyri. Þá fékk
Knattspyrnudeild Þórs 175
þúsund krónur í styrk frá jafn-
réttisnefnd til að styrkja
kvennaknattspyrnu.
Þrjár um-
sóknir um
styrki
Jafnréttisnefnd
Akureyrar