Morgunblaðið - 19.05.2001, Page 37
VIKULOK
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2001 37
Notkun á DVD og netinu við að miðla flólnu efni
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteigna- og skipasali.
Flyðrugrandi 16, Reykjavík
Opið hús frá kl. 13-15
Góð 132 fm 4ra-5 herb. íbúð á 1. hæð,
íbúð 0203, með sérinngangi í þessum
eftirsóttu húsum í vesturbænum. Stór
stofa með suðursvölum, eikarinnrétting í
eldhúsi, 3 herb. og flísalagt baðherb.
Þvottaherb. í íbúð. 25 fm bílskúr fylgir.
Íbúðin er til afhendingar fljótlega. Verð
19,5 millj.
Íbúðin er til sýnis í dag, laugardag, frá kl. 13-15.
Verið velkomin.
Hvað eru vafrakökur
(cookies), hvað gera þær
og hvernig losnar maður
við þær?
SVAR: Vafrakökur eða einfaldlega
kökur eru upplýsingapakkar sem
vafraforrit vista á notendatölvum að
beiðni vefþjóna. Þegar vafrinn
seinna biður sama vefþjón um vef-
síðu er kakan send til þjónsins með
beiðninni. Vefþjónninn getur þá not-
að þessar upplýsingar frá vafranum
til hvaða ákvarðanatöku eða vinnslu
sem er. Oft eru lykilorð eða að-
gangsheimildir einstaklings að til-
tekinni vefþjónustu geymd á tölvu
hans sem kökur.
Hver kaka hefur gildistímabil.
Vafrinn eyðir kökunni þegar tíma-
bilið rennur út. Hver kaka er bundin
við þann vefþjón sem sendi kökuna
og aðeins sá vefþjónn fær að sjá kök-
una.
Notkun á vafrakökum hefur oft
verið gagnrýnd vegna þess að sum
fyrirtæki hafa notað kökur til að
safna upplýsingum um hegð-
unarmynstur einstaklinga á Vefnum
og hafa sum verið sökuð um að
tengja slíkar upplýsingar við aðrar
upplýsingar svo sem innkaupa-
mynstur.
Hægt er að stilla flesta vafra til að
þeir taki ekki á móti kökum. Einnig
er hægt að eyða kökum af tölvu sinni
en notandinn þarf þá að vera við því
búinn að sum verk kosti meiri tíma
og fyrirhöfn en ella. Aðferðirnar
sem notaðar eru til þessa eru mis-
munandi eftir tegund vafra. Á vef-
síðum Microsoft eru til dæmis leið-
beiningar til að eyða kökum fyrir
nýrri gerðir vafrans Internet
Explorer.
Snorri Agnarsson, prófessor
í tölvunarfræði við HÍ.
Hvað er Fibonacci-
talnaruna?
SVAR: Fibonacci-runan er talnarun-
an 1, 1, 2, 3, 5, 8, 13, 21, 34, 55, 89,
144, 233, 377, 610, ...
Hún ákvarðast af því að fyrstu
tvær tölurnar eru báðar 1 en eftir
það er sérhver tala í rununni summa
næstu tveggja á undan.
Runan er kennd við ítalska stærð-
fræðinginn Leonardo Fibonacci sem
fæddist á 12. öld. Hann notaði
rununa til að gera sér grein fyrir
hversu hratt kanínum fjölgar. Til
einföldunar gerði hann ráð fyrir að
engin kanína myndi deyja og að
hvert kanínupar gæti af sér eitt par
mánaðarlega. Þar sem par getur
ekki af sér sín fyrstu afkvæmi fyrr
en það er orðið tveggja mánaða
gamalt fæst þá að fjöldi paranna er
summa fjölda paranna fyrir tveim
mánuðum og fjölda paranna fyrir
einum mánuði.
Menn þykjast sjá merki um Fibo-
nacci-rununa víða í náttúrunni. Eitt
dæmi er um býflugur. Fjölskyldulíf
þeirra er öðruvísi en okkar mann-
anna. Til dæmis hefur kvenfluga tvo
foreldra, eitt kvenkyns og eitt karl-
kyns, en karlfluga hefur aðeins eitt
kvenkyns foreldri. Karlfluga hefur
því eina ömmu og einn afa, samtals
2. En þá hefur karlflugan samtals 3
langömmur og langafa og samtals 5
langalangömmur og langalangafa.
Ef þessu er haldið áfram fást töl-
urnar í Fibonacci-rununni.
Það má líka nota Fibonacci-
tölurnar í rúmfræðileik. Við byrjum
með ferning með hliðarlengd 1. Við
tökum annan ferning með hlið-
arlengd 1 og setjum hann vinstra
megin við þann fyrsta. Næst tökum
við ferning með hliðarlengd 2 og
setjum hann ofan við hina tvo. Þar
næst tökum við ferning með hlið-
arlengd 3 og setjum til hægri við þá
sem komnir eru. Svo kemur fern-
ingur fyrir neðan það sem komið er,
þá aftur til vinstri við það sem komið
er, þá fyrir ofan og svo framvegis
réttsælis. Við sjáum að til að nýi
ferningurinn passi við það sem áður
var komið, þannig að heildin sé alltaf
rétthyrningur, þá verða hlið-
arlengdir rétthyrninganna að vera
eins og tölurnar í Fibonacci-rununni.
Jón Kr. Arason, prófessor í stærðfræði
við HÍ.
Hve margir íbúar eru
í þriðja heiminum?
SVAR: Það er hreint ekki eins ein-
falt og ætla mætti að svara þessari
spurningu. Aðalvandamálið felst
auðvitað í þeirri spurningu hvað
þetta fyrirbæri þriðji heimurinn er
og hvaða lönd teljast til hans.
Hugtakið þriðji heimurinn var
upphaflega notað árið 1952 af Alfred
Sauvy, frönskum hagfræðingi og
landfræðingi. Hugtakið varð síðar
afsprengi kalda stríðsins þegar lönd-
um heims var skipt í fyrsta heiminn,
sem vestræn iðnríki töldust tilheyra,
og annan heiminn sem í voru Sov-
étríkin og önnur kommúnistaríki.
Þeim löndum sem ekki pössuðu í
annað hvorn flokkinn var síðan
skellt saman í nokkurs konar af-
gangsflokk: þriðja heiminn.
Í þessum flokki eru jafnólík lönd
og Argentína, Zimbabwe, Sádi-
Arabía og Norður-Kórea. Þetta eru
lönd með gríðarlega mismunandi
stjórnarhætti, efnahagskerfi, menn-
ingu og trúarbrögð og í raun er afar
ósanngjarnt að flokka þau saman.
Við notum hins vegar enn þá þetta
hugtak, þriðja heiminn, einfaldlega
vegna þess að ekki er völ á öðru
betra.
Á vettvangi Sameinuðu þjóðanna
hafa lönd þriðja heimsins sameinast
í þrýstihópi sem kallar sig Group of
Seventy Seven eða G77. Samtökin
voru stofnuð árið 1964 af 77 ríkjum
en nú eru aðildarríkin 133 talsins.
Oft er vísað til þessara samtaka þeg-
ar rætt er um hvaða lönd teljast til
þriðja heimsins.
Til einföldunar og í tölfræðilegum
tilgangi flokka hins vegar flestar
stofnanir Sameinuðu þjóðanna lönd
heimsins í tvennt; meira þróuð lönd
og minna þróuð lönd. Í fyrri hópinn
falla Ástralía, Nýja-Sjáland, Evr-
ópulönd, Bandaríkin, Kanada og
Japan en öll önnur lönd eru flokkuð
sem minna þróuð. Að auki er upp á
síðkastið æ oftar fjallað um þann
hóp landa sem eru minnst þróuð
(least developed countries eða LDC)
og þurfa á hvað mestri aðstoð að
halda. Alls teljast 48 lönd til þessa
hóps, flest í Afríku sunnan Sahara
en einnig mörg í Asíu og nokkur í
Karíba- og Kyrrahafi.
Og þá erum við loks farin að nálg-
ast upphaflegu spurninguna. Sam-
kvæmt fólksfjöldaskýrslu Samein-
uðu þjóðanna frá því í fyrra bjó um
mitt síðasta ár 6,1 milljarður manna
í heiminum öllum. Í þeim 48 löndum
sem teljast minnst þróuð búa rúm-
lega 10% jarðarbúa eða um 658
milljónir íbúa. Íbúafjöldi í þeim
löndum sem skilgreind eru sem
minna þróuð og gjarnan eru einu
nafni kölluð þriðja heims lönd er
hins vegar um 4,865 milljarðar.
Með öðrum orðum búa tæplega
fimm milljarðar manna eða um 80%
jarðarbúa á rúmlega 70% land-
svæðis heimsins, í þeim rúmlega 130
löndum sem teljast til þriðja heims-
ins.
Brynhildur Ólafsdóttir
stjórnmálafræðingur.
Hvað eru vafrakökur?
Undanfarið hafa birst svör á Vís-
indavefnum um skrifun á kristalla,
kjarnorkusprengingar í geimnum, rafstöðukrafta, nifteindir, trúleys-
ingja, rannsóknir á Y-litningum, Fibonacci-tölur, nafnið „Tellus“,
rómverskar tölur, geyma fyrir fljótandi köfnunarefni, fordóma, amm-
oníak, íbúa þriðja heimsins, líkur í yatsy, eldvegg, vafrakökur, intr-
anet, möndulhalla, 1. áratuginn, áhrif tónlistariðkunar á námshæfi-
leika, hámarkshraða blettatígurs, vatnshöfuð, sekúndufjölda í ári,
ljóseindir, veiðar háhyrninga og sigurkufl.
VÍSINDI