Morgunblaðið - 16.05.2002, Blaðsíða 61
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2002 61
SKIPAN orkumála í landinu varð-
ar hag hvers og eins. Bæði á þetta
við um orkuverðið sjálft og einnig
umsvifin, sem nýting orkulindanna
veldur í atvinnulífinu. Ef haldið verð-
ur vel á spöðunum, gætu árleg út-
flutningsverðmæti orkukræfrar
stóriðju aukizt um 100 milljarða
króna á næstu 10 árum, og þá mundi
þessi starfsemi jafnvel verða jafnoki
sjávarútvegs í útflutningsverðmæt-
um talið. Slík þróun gjaldeyristekna
mundi með varanlegum hætti skjóta
styrkum stoðum undir efnahag
landsmanna, bægja burtu atvinnu-
leysisvofunni frá mörgum stéttum
og auka stöðugleikann.
Þannig munu hugsjónir skáldjöf-
ursins Einars Benediktssonar um
nýtingu vatnsfallanna rætast á 100
árum.
Nú eru í deiglunni byltingar-
kenndar breytingar á raforkumark-
aði hérlendis sem erlendis. Sam-
kvæmt tilskipun Evrópusam-
bandsins á að fara fram
markaðsvæðing raforkugeirans eigi
síðar en á árunum 2004–2005. Þetta
þýðir, að starfsemi orkuveranna
verður klofin frá meginraforkuflutn-
ingum og dreifingu til orkukaup-
enda, a.m.k. bókhaldslega. Eigendur
orkuveranna munu þá keppa sín á
milli um að fá að framleiða fyrir
orkukaupendur með umsömdum
skilmálum.
Þar sem núverandi einokunarfyr-
irkomulag verður afnumið, hníga öll
rök til þess, að orkuframleiðendur
muni reyna að laða til sín nýja við-
skiptavini með því að bjóða betri
kjör en við lýði eru um þessar mund-
ir, þó að búast megi samt við verð-
sveiflum samkvæmt lögmáli fram-
boðs og eftirspurnar. Augljóslega
varðar orkufyrirtækin miklu að
standa fjárhagslega á traustum
grunni, þegar í þessa för er lagt.
Fjöreggið
Þannig háttar til á þessu sviði, að
höfuðborg landsins leikur þar stórt
hlutverk, þar sem hún á nú tæplega
45% í Landsvirkjun og Orkuveitu
Reykjavíkur (OR) að stærstum
hluta. Höfuðborgin á þannig ríkra
hagsmuna að gæta í tveimur stærstu
orkufyrirtækjunum, sem munu fyr-
irsjáanlega lenda í samkeppni sín á
milli og við aðra. Þessi staða mála út-
heimtir vandaðar úrlausnir af hálfu
stjórnenda borgarinnar, þar sem
m.a. verður að gæta þess, að láns-
hæfi fyrirtækjanna skerðist ekki,
hverjar sem aðgerðirnar kunna að
verða. Að öðrum kosti dregur úr arð-
semi nýrra virkjana, eða orkuverðið
mun hækka meira en efni stæðu ann-
ars til.
Treysta Reykvíkingar R-listanum
til að ráða þessum gríðarlegu hags-
munamálum sínum og landsmanna
allra til lykta af einurð og ábyrgð?
Benda upphrópanir forkólfanna og
vinstri-grænna í garð Landsvirkjun-
ar og fordómar þeirra í mikilsverð-
um framfaramálum borgar og lands
til, að þeim sé treystandi til stór-
ræða?
Borgin hefur löngum fengið arð-
greiðslur frá báðum orkufyrirtækj-
um sínum, en á valdatíma R-listans
hefur nánast verið ausið úr sjóðum
OR yfir í borgarsjóð og til gæluverk-
efna. Þó kastaði tólfunum í ævintýra-
mennskunni, þegar kynnt var sú við-
skiptahugmynd, að OR skyldi huga
að kaupum á Landssímanum. Svo
mikill er vandræðagangurinn vegna
vanhugsaðra fjárfestinga borgarinn-
ar í fjarskiptum og gagnaflutning-
um, að ná átti samlegðaráhrifum
(hylja mistökin) með því að gleypa
risann. Er hætt við, að um banabita
yrði að ræða og beggja dauði.
Að eigandi taki fé úr rekstri arð-
sams fyrirtækis til að setja í eyðslu
og tæknilega og fjárhagslega van-
burða gæluverkefni, hefur í tilviki
OR tvær hliðar, og eru báðar heldur
skuggalegar. Önnur er sú, að ætla
má, að verð á rafmagni og heitu vatni
sé af þessum sökum hærra nú en
nauðsyn bæri til, ef skuldabaggi OR
væri henni léttbærari. Þessu má þá
jafna við skattahækkun á alla við-
skiptavini veitunnar, jafnt Reykvík-
inga sem orkukaupendur í öðrum
sveitarfélögum á
veitusvæði OR. Þetta
má rökstyðja með því,
að hefði fé ekki verið
fært yfir í óskyldan og
óarðsaman rekstur,
svo að nemur um
helmingi skulda OR,
mundi í staðinn hafa
mátt lækka raunorku-
verðið að sama skapi
síðastliðin tvö kjör-
tímabil. Allir við-
skiptavinir OR, einnig
íbúar utan Reykjavík-
ur, eru þannig með
óbeinum hætti þving-
aðir til fjárútláta að
geðþótta R-listans.
Þessu má jafna við tví-
sköttun á orkukaupend-
ur, sem greiða opinber
gjöld til sveitarfélaga
utan Reykjavíkur og
eru á veitusvæði OR.
Hin hlið þessa athæf-
is vísar til hins nýja um-
hverfis, sem orkufyrir-
tækjanna bíður handan
við hornið. OR mun
óneitanlega hafa minni
burði til að berjast um
viðskiptavinina, þegar
búið er að veikja fjár-
hagslegt bolmagn henn-
ar með þeim hætti, að
u.þ.b. helmingur skuldanna er vegna
„fjárfestinga“, sem ekki bera nokk-
urn arð.
Sú mynd, sem hér blasir við af
stjórnarháttum R-listans í Reykja-
vík, minnir óneitanlega á ævintýrið
um skessurnar, sem köstuðu af mik-
illi léttúð á milli sín fjöregginu.
Ályktun
Stjórnmálamenn, sem gera sig
seka um gáleysislega meðferð al-
mannafjár, á að hirta með viðeigandi
hætti í kjörklefanum. Vatnaskil
verða í mikilvægum málaflokkum á
næsta kjörtímabili og þá ríður á
miklu, að málatilbúnaður verði vand-
aður í hvívetna og mótaður af
ábyrgðartilfinningu og víðsýni.
R-listinn er fallinn á prófinu, en
Reykvíkingum býðst í staðinn hæf
og ábyrg forysta, sem er traustsins
verð og mun við ákvarðanatökur
jafnan taka mið af þjóðarheill, þó að
Reykjavík verði í fyrsta sæti.
Tannfé í tröllahöndum
Bjarni
Jónsson
Orkumál
Stjórnmálamenn, sem
gera sig seka um
gáleysislega meðferð
almannafjár, segir
Bjarni Jónsson, á að
hirta með viðeigandi
hætti í kjörklefanum.
Höfundur er rafmagns-
verkfræðingur.