Morgunblaðið - 16.05.2002, Blaðsíða 65
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2002 65
FYRIR fáum árum
var hugtakið upplýs-
ingatækni flestum
næsta hulin ráðgáta.
Ef spurt var hvað hug-
takið þýddi varð flest-
um fótaskortur á tung-
unni. Nú vita flestir að
upplýsingatæknin er í
tölvum okkar og far-
símum og við notum
hana mörg hver á
hverjum degi, förum á
internetið, sendum
tölvupóst, smáskilaboð
(sms) í farsímanum og
svo mætti áfram telja.
Rafræn stjórnsýsla
er tiltölulega nýtt hug-
tak sem ennþá er dálítið óljóst. Í
stuttu máli má segja að rafræn
stjórnsýsla sé sú þjónusta hins op-
inbera sem veita má með upplýs-
ingatækninni. Þannig eru rafræn
eyðublöð, rafræn greiðsla reikninga
og rafrænar umsóknir dæmi um raf-
ræna stjórnsýslu hjá Hafnarfjarð-
arbæ. Það er sú þjónusta sem bygg-
ist á því að við eigum samskipti við
bæjarskrifstofurnar gegnum inter-
netið, svo dæmi sé tekið.
Rafræn stjórnsýsla byggist á því
að við höfum ,,rafrænar bæjarskrif-
stofur“ sem eru ,,opnar“ allan sólar-
hringinn og að við getum farið þar
inn og sinnt erindum okkar hvenær
sem er og hvar sem er.
Starfsemi sveitarfélagsins er
margþætt og stundum flókin. Á því
kjörtímabili sem nú er að ljúka hefur
verið lagður góður grunnur að raf-
rænni stjórnsýslu Hafnarfjarðar-
bæjar en sóknarfærin eru mörg.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur áfram
mikinn hug á því að beita sér fyrir
enn betri þjónustu gegnum heima-
síðu Hafnarfjarðarbæjar og leggur
ríka áherslu á að hlutur
rafrænnar stjórnsýslu í
þjónustu bæjarskrif-
stofanna og tengdra
stofnana verði aukinn
með markvissum hætti.
Við viljum að bæjarbú-
ar geti í sem mestum
mæli sinnt erindum
sínum gagnvart Hafn-
arfjarðarbæ úr tölv-
unni heima hjá sér. Það
er rafræn stjórnsýsla í
hnotskurn.
Sjálfstæðisflokkur-
inn í Hafnarfirði vill að
margþætt upplýsinga-
miðlun sé sú mælistika
sem bæjarbúar noti til þess að
mynda sér skoðanir á hugmyndum
og framkvæmdum bæjaryfirvalda.
Til að svo megi verða verður hlutur
rafrænnar stjórnsýslu gerður enn
veigameiri á grundvelli markvissrar
stefnumótunar. Vinnu sem við höf-
um þegar hafið, vinnu sem við viljum
halda áfram á næsta kjörtímabili.
Rafræn stjórnsýsla
Leifur S.
Garðarsson
Höfundur skipar 6. sæti á lista
Sjálfstæðisflokksins.
Hafnarfjörður
Við viljum, segir
Leifur S. Garðarsson,
að bæjarbúar geti í sem
mestum mæli sinnt er-
indum sínum gagnvart
Hafnarfjarðarbæ úr
tölvunni heima hjá sér.
Reykjavík
í fyrsta sæti
Kvennahátí›
Allar konur velkomnar
Veislustjóri er Inga Jóna fiór›ardóttir
Konurnar á listanum okkar s‡na föt frá In Wear í Kringlunni og Eggerti feldskera á
Skólavör›ustíg og skartgripi frá Aurum á Laugavegi
Knattspyrnumenn úr meistaraflokki Vals s‡na lo›feldi frá Eggerti
Helga Braga skemmtir
A›alhei›ur Gu›mundsdóttir óperusöngkona spilar og syngur
Snyrtivörukynningar
Lei›sögn í blómaskreytingum
Kynning á flví n‡jasta í för›un sumarsins
Veitingar í bo›i
Velkomin á kvennahátí› sjálfstæ›iskvenna í kvöld
klukkan 20 í kosningami›stö›inni Skaftahlí› 24