Fréttablaðið - 13.12.2006, Page 36

Fréttablaðið - 13.12.2006, Page 36
[ ]Hálkaner skæð þessa dagana. Ökumenn eru beðnir um að aka varlega í jólaösinni til að forðast slys. DSG sjálfskiptingar hafa hing- að til eingöngu verið fáanlegar í Golf GTI. Þetta er um það bil að breytast. Volvo, Ford, Mazda og Land Rover munu öll bjóða upp á módel með DSG skiptingum á næsta ári í 2008 árgerðum. Volvo mun ríða á vaðið með S40 og V50 og þar á eftir kemur Ford með C-max módel sitt. Ford ætlar einnig að bjóða upp á skiptinguna í fleiri módelum eins og Focus og er ljóst að þar mun góður bíll verða enn betri. DSG skiptingar byggjast á því að kúplingin er tvöföld. Þetta gerir kassann fljótari að skipta um gír, mun fljótari en mannshöndin og jafnvel fljótari en skiptingar í For- múlubílum. Þar að auki stuðlar hún að betri eldsneytisnýtingu sem nemur um 10 próentum. Margir spá því að framtíð sjálf- skiptingarinnar liggi í DSG. Þeir virðast hafa rétt fyrir sér en á næstu fimm árum mun Volkswag- en skipta út öllum hefðbundnum sjálfskiptingum í nýjum bílum sínum fyrir DSG og virðast fleiri framleiðendur ætla að fylgja í kjölfarið. - tg DSG skiptingar festast í sessi Volvo S40 verður einn af fyrstu bílunum utan Volkswagen Golf GTI sem fær DSG skiptingu. Fleiri fylgja í kjölfarið. FréTTablaðIð/pjeTur 4x4 specialist Ford dekkin 33x13,5R18 Tilboðsverð 24,900,- Viðarhöfða 6 - Sími 577 4444 Jeppadekkin frá ���������������������������������������������� �� ������������������������������������������� ��������������������������� ������������������������������ ���������������������������������������������� �� ������������������������������������������� ��������������� �������� ���������������� Bílsæti slitna og skitna þannig að nauðsynlegt getur reynst að gera þau upp. Þá er hægt að leita til H S Bólstrunar í Auðbrekku 1 í Kópavogi. „Við erum í þessari iðju af því okkur finnst hún skemmtileg og vegna þess að margir kunna að meta það sem við gerum,“ segir Hafsteinn Sigurbjarnason í H S bólstrun. Spurður frekar út í bíl- sætaviðgerðirnar svarar hann: „Við lögum sætin frá A til Ö, lag- færum fjaðrir og grindur, skiptum um áklæði eftir þörfum, saumum og gerum við.“ Þótt atvinnubílstjórar leiti oft til Hafsteins til að láta laga sæti segir hann þá oft gera sér alltof litla grein fyrir því hvað ónýt sæti geti farið illa með skrokkinn. „Sætin versna smátt og smátt þannig að bílstjórarnir taka ekki eftir því og verða samdauna þeim ef svo má segja. Svo koma þeir loksins þegar þeir eru komnir alveg niður í gorma og geta þá kannski varla gengið fyrir óþæg- indum í herðum, lærum og baki. Þetta er nákvæmlega það sama og að sofa á lélegri dýnu,“ segir hann með áherslu. Leður og leðurlíki eru efnin sem Hafsteinn notar einna mest við við- gerðirnar, einkum í atvinnubílana. Segir þau endast betur en tauið. „Þó maður panti áklæði í sama lit og fyrir er í bílnum getur það gamla verið orðið upplitað þannig að nýja efnið stingur í stúf. Þá fer betur að nota leðurlíki eins og er í innréttingunni,“ fræðir hann blaða- mann um og segir honum svo eftir- farandi sögu úr faginu. „Það kom hérna maður með áklæði af aftursæti með alla sauma raknaða. Ég saumaði það allt upp með níðsterkum nælontvinna og eigandinn var mjög ánægður þegar hann náði í það. Svo kemur hann fáum dögum seinna og þá er allur saumurinn horfinn. Ég hélt ég væri að verða vitlaus. Svo varð mér á að lyfta aftursætinu í bílnum. Þá er geymirinn þar undir og allt löðr- andi í geymasýru. Hún hafði leyst upp allan tvinnann. Þessu hefur enginn lent í annar svo ég viti til.“ Hafsteinn er búinn að vera í bólstruninni í þrjátíu ár, þar með töldum bílsætaviðgerðum og hefur því orðið mikla reynslu. „Það er dálítill galdur að taka sætin sundur og það getur fylgt óþrifnaður þessu verki því stundum er olíumengun í sætunum, sérstaklega á atvinnu- bílum sem eru trassaðir. Við höfum haft mikið að gera í þessu því margir bólstrarar benda á okkur.“ gun@frettabladid.is Ónýt bílsæti fara illa með skrokkinn Stundum þarf að grípa til sniðugra lausna eins og að taka bút aftan af sætisbaki til að gera við setu og setja leðurlíki í bakið í staðinn. FréTTablaðIð/GVa Sætin slitna mest á kantinum þar sem bílstjórar renna sér inn í bílinn.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.