Réttur - 01.02.1926, Qupperneq 26
28
AUÐU SÆTIN
[Rjettur
til að leggja höndurnar í kjöltuna augnablik og hugsa. t*á
fann frú Jensen, að hún var orðin gömul kona og einmana,
og hana fór að langa til að komast heim í átthaga sína.
Hún fór að leggja til hliðar fyrir ferðinni, en það gekk treg-
lega að nurla nógu miklu saman. í hvert sinn, sem hún
hjelt að fjeð væri fengið, kom að skuldadögum húsaleigunn-
ar eða einhverjum öðrum þörfum, sem átu það upp fyrir
henni. Tvisvar sinnum varð heimþrá hennar svo rík, að hún
lagði af stað ti! járnbrautarstöðvarinnar. f annað skiftið stöðv-
aði farseðlasalinn hana, áður en lestin lagði af stað. En í
hitt skiftið komst hún til Krosseyrar og þar var hún tekin
og send heim aftur. »t*á lá nú mjög nærri, að jeg væri
tekin fyrir og mjer refsað — þrátt fyrir það, þó að jeg sæti
ekki í sæti nokkurrar lifandi manneskju,* sagði gamla konan.
Hún nötraði enn þá við hugsunina.
Svo hafði hún gefist upp,
»Nú á jeg mjer einungis eina ósk. Hún er sú, að fá að
leggja þreytt höfuðið til hvíldar, þar sem engin vagnaumferð
er. En skemtileg tilhugsun væri það nú samt, ef jeg fengi
skrokkinn sendan yfir Sundið, svo að jeg yrði grafin í kirkju-
garðinum heima. Heldurðu að það geti kostað voðalega
mikið?«
Hún leit i kringum sig í fátæklegri kompunni, eins og hún
hjeldi, að ruslið hlyti að nægja fyrir kostnaðinum. Hæð var
í einu horninu út við kirkjugarðsvegginn heima. t*aðan sást
yfir mýrina, sem hún hafði hlaupið um við fjárgæslu, þegar
hún var ung. — t*ar langaði hana til að hvíla.
Saga gömlu konunnar lauk augum mínum upp fyrir hróp-
legu ranglæti lífsins, sem jeg hafði búið við áður og kvalist
mikið af, þótt aldrei stæði það mjer fyrri Ijóst fyrir sjónum.
Pað var nú einu sinni svona, af því að það gat ekki öðru-
vísi verið. Og fyrst það gat ekki verið öðruvísi, til hvers
var þá að hugsa um það? Þeir, sem fátæktina höfðu fengið
í vöggugjöf, gátu ekki án þessarar forlagafrúar verið. t>eir
hlutu annaðhvort að fyrirfara sjer eða brjóta alt niður. En
nú sjá jeg það, sem jeg hafði ekki sjeð áður. Ef til vill gat