Réttur - 01.06.1939, Side 26
aö skapa hina sósíalistisku meövitund hjá verkalýðnum.
lóoskaleiðin frá frumstæðri stéttavitund verkalýðsins
lil fullkomins sósíalistisks skilnings hans er farin i
siíeldri baráttu við borgaralégá hugsunarháltinn, sem
verkalýðurinn verður fyrir af umhverfinu. Munurinn
á stéttarvitund verkamannsins og sósialistiskum skiln-
ingi hans er sá, að hið fyrra er tilfinning og meira
eöa minna óljós skilningur verkamannsins á því, að
hann og aðrir verkamenn séu háðir sömu örlögum,
séu ein stétt og verði þvi að heyja lífsbaráttu sina hliö
við lilið. En með því að öðlast hinn sósíalistiska skiln-
ing á þjóðfélaginu, sér verkamaðurinn livern mált og
möguleika stétl hans hel'ur lil að frelsa sjálfa sig
eiulanlega úr ófrelsi, ánauð og fátækt með þvi að af-
nema auðvaldsþjóðfélagið og koma á sósíalismanum,
sameign verkalýðsins á framleiðslutækjunum. Pað er
þessi sósíalistiska meðvitund, sem gerbieytir verka-
lýSnum andlega- — „1 þrælsins nöldur og öreigans
niagnl.'iusa mál, færist máttur og ægikyngi af nýjum
loga” — eins og Sigurður Einarsson orðar það fag-
urlega. Verkalýðnum vex ásmegin við þá tilhugsun.
að það skuli vera á hans færi að broltnema endan-
lega úr mannielaginu alla fátækt og kúgun, sem þar
hefur rikt frá upphafi stéttaþjóðfélagsins. Meðvilund-
in um þetta glæsilega hlulverk gefur honuin þann
ósigrandi siðferðislega kraft, sem einkennir sósíalist-
iska verklýSshreyfingu nútímans. Hin sósíalistiska
meSvitund skapast með verkalýönum sögulega séð á
þann hátt, aS saman eru ofnir tveir meginþæltir: stétta-
hagsmunir hinnar íjölmennu og vaxandi verklýSs
stéttar og draumsjón mannanna um sameignarskipulag
framtíSarinnar án stéttakúgunar og fátæktar. það er
verk marxismans, félagsvísinda vorra daga, að skapa
úr þessum þáttum órjúfandi heild, þá markvissu sósi-
alistisku verklýSshreyfingu, sem brynjuS visindaleg-
um kenningum mai*xismans og hert að fórnfýsi og
þrótti í eldi stéttabaráttunnar, stenzt og sigrar jafnt
106