Réttur - 01.01.1968, Page 38
ÁDEILUSÖNGVAR
NÚTÍMANS
Ádeilusöngvar hafa ná8 miklum vin-
sceldum meðal ungs fólks á síðustu árum.
Boh Dylan, Tom Lehrer, Pete Seeger,
Joan Baez, Donovan hafa náð hylli æsk-
unnar í Ameríku og Evrópu. Það er eng-
in tilviljun að þessir söngvar slá í gegn
á tímum kynþáttamisréttis og þjóðfrels-
isstyrjalda.
Ádeilusöngvarnir byggja á langri og marg-
þættri sönghefð í Bandaríkjunum og Evrópu.
Hjá verkalýðshreyfingunni beggja vegna Atlants-
hafs er að finna uppsprettu ádeilusöngvanna.
Útflytjendur frá Evrópu fluttu með hér hug-
sjónir og söngva, sem einnig fundu hljómgrnnn
í nýja heiminum. Þjóðfélagsvandamál, sem iðn-
byltingin hafði í för með sér, einkum aukin
stéttaskipting urðu yrkisefni hinna undirokuðu.
Höfundar ádeilusöngvanna voru verkamenn,
hvítir og svartir, Englendingar, írar, Pólverjar,
Gyðingar, Norðurlandabúar, og allir áttu þeir
eitt sameiginlegt. Þeir börðust fyrir hina fátæku
í þjóðfélaginu og kröfðust bættra kjara. Þeir
skópu bókmenntir, þar sem þeir lýstu lífinu í
kolanámunum, verksmiðjunum, og búgörðun-
um. Þeir skrifuðu og sungu um slæm kjör, erfitt
og hættulegt starf, atvinnuleysi, fátækt og hung-
ur. Hér heima kannast margir við Joe Hill,
sem bandarískir valdhafar myrtu í rafmagns-
stólnum árið 1915.
Auk ensku, skozku og írsku sönghefðarinnar,
er einnig að finna í Bandaríkjunum aðra höfuð-
• stefnu, þá afríkönsku-amerísku. Þar gætir mest
áhrifa bandarísku negranna. Á þrennan hátt
birtast þessi áhrif, þ.e. í trúarlegum söngvum,
jazz og vinnusöngvum. Báðar sönghefðirnar
hafa haft mikil áhrif hvor á aðra og mörkin
því nú oft óljós. í ádeilusöngvum negranna er
yrkisefnið oftast sótt í misrétti það, sem þeir
verða fyrir í bandarísku þjóðfélagi.
Á kreppuárunum og í spænsku borgarastyrj-
öldinni jukust á ný vinsældir ádeilusöngvanna.
í Bandaríkjunum var Woody Guthrie aðal höf-
undur ádeilusöngvanna og hafa ádeilusöngvarar
nútímans sótt mikið í safn hans. í Evrópu nægir
að nefna þýzku höfundana eins og Brecht og
Ernst Busch. Sá sem á mestan heiður í vinsæld-
um ádeilusöngvanna í dag er Pete Seeger. í
fjölda ára hefur hann ferðast um, safnað og sung-
ið í Bandaríkjunum, fyrst og fremst þjóðlög og
38