Réttur


Réttur - 01.01.1968, Síða 39

Réttur - 01.01.1968, Síða 39
ádeilusöngva. En það er fyrst nú á seinni árum, sem hann hefur hlotið laun erfiðis síns. UPPREISN GEGN „THE AMERICAN WAY OF LIFE“ í Bandaríkjunum upphafslandi ádeilusöngva nútímans, hefur nú ný kynslóð komið fram á sjónarsviðið, sem neitar að samþykkja „the American way of life". Hún hefur einnig gert uppreisn gegn hinum innihaldslausu dægurlaga- textum. Þau eru börn að aldri á tímum Kóreu- stríðsins og ofsóknir M. Carthy bitnuðu ekki á þeim .En á uppvaxtarárum þeirra var óðurinn um frelsi og lýðræði mest leikinn. Það var baráttan gegn kynþáttamisrétti, sem varð til þess að gera ádeilusöngvana vinsæla á ný. Blökkumenn höfðu lengi notað söngva í bar- áttu sinni fyrir bættum kjörum. Eftir að hæsti- réttur Bandaríkjanna dæmdi árið 1954, að kyn- þáttaaðgreining í skólum væri ólögleg, efldist mannréttindahreyfingin til mikilla muna. Þetta unga fólk tók virkan þátt í mannréttindahreyf- ingunni og kynntust ádeilusöngvunum, sem eru svo nátengdir hreyfingunni. Þátttaka æskunnar í mannréttindahreyfingunni leiddi til þess að það fór að íhuga meir þjóðfélagsmál en áður. Þau voru alin upp við og vön að virða hugsjón- ir um frelsi og lýðræði. En nú sáu þau að ástand- ið í heiminum og heimafyrir samsvaraði ekki þessum hugsjónum. Joan Baez sló í gegn í Bandaríkjunum eftir 1960. Hún yrkir ekki sjálf og flest lög hennar eru ekki ádeilusöngvar. En hún hefur tekið virk- an þátt í mannréttindahreyfingunni og í sam- tökum gegn stríðinu í Vietnam og hefur nýlega afplánað 40 daga fangelsisdóm vegna þátttöku sinnar. Hún neitaði m.a. að greiða þann hluta af Joan Baez sköttum sínum, sem samkvæmt bandarískum fjárlögum er eytt til hernaðarútgjalda. Eftirfar- andi tilvitnun er tekin úr bréfi, sem hún skrif- aði: „Við eyðum árlega mörgum miljónum dollara til að smíða vopn, sem vísindamenn, stjórnmálamenn, hershöfðingjar og einnig for- setinn eru sammála um að ekki megi nota. Þetta er vcegast sagt mjög óhentugt. Hugtakið „öryggi landsins" hefur enga þýðingu. Það er notað um varnarkerfi, sem er tóm vitleysa. Við höldum áfram að smíða þessi vopn og söfnum birgðum af hrceðilegum morðtólum, þar til einhver þrýst- ir á hnapp og þar með mun heimurinn í það minnsta stcersti hluti hans springa í loft upp. Þetta er ekki öryggi. Þetta er tóm vitleysa. Sum staðar í heiminum sveltur fólk. Það horfir á land okkar, Bandaríkin, auð þess og völd. Það kynnir sér fjárlög okkar. Það er œtlazt til að það virði okkur, EN ÞAÐ FYRIRLÍTUR OKKUR". 39

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.