Réttur


Réttur - 01.01.1968, Page 59

Réttur - 01.01.1968, Page 59
þeir, sem braska í trúnni á fall dollarans og kaupa gull meðan það enn fæst á 35 doll- ara únsan. Þannig skapast það kreppuástand, sem kallað var „gullkaupaæðið" um miðjan mars. Það, sem Bandaríkjastjórn vill er að doll- arinn einn verði viðurkenndur sem heims- mynt, en þurfi enga gulltryggingu. Ef hún fengi slíkt fram, getur hún endalaust gefið ávísanir á eignir annarra auðvaldsþjóða og látið þær bera herkostnaðinn með sér, af að halda „keisaradæmi dollarsins" saman. Þar- með væri yfirdrottnun Bandaríkjanna yfir öllum hinum auðvaldsríkjunum staðfest, — þau gerð að nýlendum Bandaríkjanna með nýjum hætti. — Það er gegn þessu sem Frakkland de Gaulle’s rís og máske allt Efna- hagsbandalagið. Auðvaldsheimurinn skipt- ist þá í tvö gengisbandalög. Hin dýra kaup- höll auðvaldsskipulagsins myndi þá enn einu sinni leika á reiðiskjálfi. En einnig það að ráða við atvinnuþróun- ina sjálfa gengur bögsulega þrátt fyrir allt. Margir auðvaldsherrar og efnahagssérfræð- ingar þeirra eru gamaldags og skilja lítt lög- mál atvinnulífsins. — Það þarf ekki nema að athuga Island til að sannfærast um það. — Sú kreppa, sem nú fer um Vestur-Evrópu, er að vísu grunn, en hún sýnir samt skugga- hliðar hins „háþróaða" auðvaldsþjóðfélags: Atvinnuleysi miljóna manna, ónotaðar ó- grynni véla, óvissa og öryggisleysi meðal al- mennings. Sú fjölmenna verklýðsstétt háþróaðra auð- valdslanda, sem vanizt hefur góðri afkomu og sér hve gífurlegir möguleikarnir til miklu betri afkomu og öruggari eru, mun ekki til lengdar láta bjóða sér hið „tímabundna og skipulagða" atvinnuleysi, hið almenna örygg- isleysi og það tiltölulega mikla arðrán, sem auðvaldsskipulaginu fylgir, — jafnvel þótt það sé komið á „velferðar"-stig. Og „velferð- in" er vissulega vafasöm, jafnvel í þessum háþróuðu auðvaldslöndum. En það krefst vissulega mikillar umhugs- unar og þekkingar af verkalýð þessara landa að komast að slíkri niðurstöðu, en láta sér ekki bara nægja brauðið og bjórinn eða vín- ið og una svo glaður við sitt. FELAGSLEG MISÞYRMING MANNSINS 3. — Verkamaður og bóndi þróunarland- anna býr við þá sáru kúgun, sem auðvald veraldar og afturhaldssamir bandamenn þess 59

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.