Réttur - 01.01.1979, Page 50
sem tekið var af þeim áður en gas-morðið
var framið, skilja hvert traust og hald
þessum nöktu ungu börnum fylgd kenn-
arans þeirra hefur verið á dauðagöng-
unni.
UNESCO, menningarstofnun Samein-
uðu þjóðanna, minnist og í ár með Korc-
zak-ári þessa göfuga kennara. Aljrjóðleg-
ur fundur með fulltrúum 19 landa var
haldinn í Varsjá til að minnast lians.
Myndin á bls. 49 er af minnismerkinu
í Treblinka.
En hræðilegastar af öllum dauðabúð-
um nasista voru fangabúðirnar í Auscli-
witz.
Vestur-Þjóðverjar hafa sem mest viljað
þegja þessi íjöldamorð í hel og hefur lítt
verið á Jfau minnst í sögukennslubókum
skólanna. En ameríska sjónvarpskvik-
myndina, „Holocaust“, sem J:>ar var sýnd
nýlega í vestur-þýska sjónvarpinu, hefur
vakið svo gífurlegt umtal og umræður í
blöðum og tímaritum, þótt hún fjalli
fyrst og fremst um örlög einnar Gyðinga-
fjölskyldu, að þorri Vestur-Þjóðverja hef-
ur vaknað til meðvitundar um hve
hræðilegir glæpir voru framdir af nas-
istastjórninni og þrælhlýðnum embættis-
mönnum hennar.
Enn lifa margir þeirra, er þátt tóku í
Jressum glæpaverkum og hafa enga hegn-
ingu hlotið. Hætta er á að vestur-þýska
J^ingið samj^ykki nú lög um að þessir
glæpir skuli teljast fyrndir.
En á sama tíma er enn verið með bann
á því að kommúnistar í Vestur-Þýska-
landi fái að stunda störf hjá ríki og bæj-
um.
Þokkalegt lýðræðisríki — og auðvitað
sterkasta Nato-ríki í Evrópu. Og hér
heima eru menn, sem beygja sig í duftið
fyrir því.
Á myndinni á bls. 48 sjást stálpuð
börn í fangabúðunum í Auschwitz, sem
vita ekki hvað jneirra bíður.
Það er holt að hugsa til Jress hvað fas-
isminn er á Joessu ári barnsins.
SKÝRINGAR:
1 Hér var um að ræða bók Wolfgangs Langhoffs
„Die Moor-Soldaten".
50