Réttur - 01.01.1979, Page 76
í hinum griðarlega stóru og fjölmennu fátækrahverfum Suður-Ameriku, verða konurnar að þvo þvott sinn
út á götu.
Engar ríkissjúkratryggingar, er ná til
allra eru þar til. Dagdvöl á sjúkrahúsi
kostar að meðaltali 100 dollara. 9 af
10 Bandaríkjamönnum geta ekki leyft
sér að láta leggja sig inn á sjúkrahús.
Hver uppskurður kostar um 2000 doll-
ara.
-k -k
Herkostnaður allra landa samanlagt
er eftir tölum aðalritara Sameinuðu þjóð-
anna tæpir 400 milljarðar dollara á ári
eða meir en einn milljarður á dag. -
Samkvæmt rannsókn nefndar Banda-
ríkjaþings var gróði sá, er 164 af vopna-
framleiðslufélögum hlutu, milli 50 og
200%, þrjú græddu meir en 500%, eitt
meir en 2000%.
í löndum Efnahagsbandalagsins eru
meir en tvær milljónir ungra karlmanna
og kvenna atvinnulaus. í Englandi og
Italíu eru þeir ungu helmingur atvinnu-
leysingjanna, í Hollandi 41%, í Frakk-
landi 39%, í Belgíu 34% og í Vestur-
þýskalandi 27%.
Pólskur páfi í klípu?
Páfinn nýi messaði í Mexico. Hann
sagði kaþólsku kirkjunni þar að skipta
sér ekki af stjórnmálum. Hverra eriudi
var hann að reka?
76