Réttur - 01.01.1979, Page 78
Hins vegar eru róttæk byltingaröfl að
verki, þar á meðal Tndeh-llokkurinn,
sem hefur mikinn grundvöll meðal há-
skólamanna og er nú að líkindum að ná
fylgi meðal verkamanna, ekki síst í olíu-
stöðvunum, en verkamennirnir þar hafa
mikla möguleika til að beina þessari
byltingu gegn keisaravaldinu í róttæka
átt. Olíulindirnar eru eign ríkisins og
þegar verkamennirnir er þar vinna átta
sig sem stétt á þeim valdamöguleikum,
er þeir hafa, mun þeim smátt og smátt
verða ljóst, hvílíkar þjóðfélagsbyltingar
alþýðu í hag er hægt að knýja fram með
því að beita jreim völdum. Þeir hafa lyk-
ilinn að auðæfum frans í höndum sér:
listin er að læra að nota hann.
Bændabylting: skipting stórjarðeign-
anna á milli fátækra bænda og aðstoð
ríkisins við þá, mun einnig verða á dag-
skrá þessarar byltingar áður en langt um
líður.
IJá hafa Kúrdar í fran þegar knúið
fram nokkur sérréttindi í sínum málum.
Mætti það verða uppliaf þess að Kúrdar
jafnt í íran sem írak sigruðu í sjálfstæð-
isbaráttu sinni, - sem íranskeisari forð-
um sveik þá í. Hafa kommúnistar í írak
árum saman barist fyrir sjálfstæði Kúrda
og margir þeirra orðið að láta lífið fyrir.
Byltingin í íran er sem sé þrungin
margs konar mótsetningum, ekki síst
vegna trúarofstækisins, - en við skulum
vona hún brjóti sér að lokum braut til
alþýðuvalda.
Ísrael - Egyptaland
Bandaríska heimsvaldastefnan missti
vænan spón úr aski sínum við byltinguna
í íran. Hún er nú að reyna að bæta sér
þetta upp með því að kaupa Sadat, for-
seta Egyptalands, til liðs við sig gegn
ærnum dollarastyrkjum, og koma á
„friði“ við ísrael, sem um leið verður
enn háðara ameríska herveldinu og mun
nú leyfa [jví herskipahöfn í Haifa. Þessir
„friðarsamningar“ Carters byggjast á því
að svíkja Palestínu-þjóðina um sjálf-
stjórnarsvæði a. m. k. í svipinn, en vafa-
laust mun Carter reyna að friðmælast við
þá þjóð - og ef til vill reyna að þvinga
ísrael síðar til eftirgjafa við þá um
sjálfstjórn á vesturbakka Jórdan og Gasa-
svæðinu, til þess að lenda ekki í fullum
fjandskap við aðrar Arabaþjóðir.
Eina viturlega lausnin á þessum vanda-
málum, er sífelt stofna friðnum í hættu,
er' sú, sem Kommúnistaflokkur ísraels
berst fyrir: sjálfstjórn hinnar palestinsku
þjóðar sé viðurkennd eins og tilvera
Ísraelsríkis samkvæmt ákvörðunar Sam-
einuðu þjóðanna - og vinátta og sam-
starf milli Gyðinga og Araba, — þessara
skyldu semitisku þjóða.
Kommúnistaflokkur ísraels fram-
kvæmir innan sinna vébanda þetta sam-
starf. Þar ganga Arabar og Gyðingar sam-
an í 1. maí-göngunum. Fulltrúar flokks-
ins á þingi og í bæjarstjórnum eru bæði
Arabar og Gyðingar. Formaður flokksins
er (iyðingur, Meir Vilner, - varaformað-
urinn Arabi, Tawfig Toabi. - Kommún-
istar í ísrael unnu mjög mikinn sigur í
bæjarstjórnarkosningunum þar í vetur.
Það bræðralag Gyðinga og Araba er
þeir framkvæma er fyrirmyndin um
lausn vandamála þessara Asíulanda við
M iðjarðarhafsbotn.
(SjA í Víðsj.í erlendri 1976, bls. 133, og 1975,
bls. 63 frekar um þessi mál.)
78