Morgunblaðið - 20.01.2006, Síða 26
26 FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF Í JANÚAR
Á Súpubarnum hjá bensínaf-greiðslu Essó við Borgartúnræður Örlygur Ólafsson yfir
pottunum og eldar súpur á hverjum
degi. Örlygur er viðskiptafræðingur
og áhugamaður um matargerð og
þá sérstaklega á súpum. „Áhugi
minn á matreiðslu er fyrst og fremst
sprottinn innan veggja heimilisins,“
segir hann. „Hugmyndin að súpu-
barnum hefur lengi verið að gerjast.
Það er þannig með súpu að hún á að
geta keppt við hvaða skyndibita sem
er, bæði hvað varðar verð og gæði
og hana er hægt að afgreiða bæði
hratt og vel. Súpu má alltaf nostra
við og gera góða.“
Örlygur segir útlit súpunnar
skipta verulegu máli. „Fólk borðar
jafnt með augum, nefi og munni og
dæmir matinn eftir því,“ segir hann.
„Ég legg mikið upp úr því að súpan
sé sjónræn fyrir utan það að vera
góð.“
Fimm tegundir af súpum eru á
matseðlinum, tómatsúpa, rjómalög-
uð sveppasúpa, ítölsk grænmet-
issúpa, texmex súpa og indversk
karrýsúpa og svo er það súpa vik-
unnar. Þær eru afgreiddar í skálum
sem taka má með sér en einnig er
boðið upp á stærri fjölskyldskammt
og enn stærri skammta, sem henta
jafnvel mötuneyti.
„Við leggjum mikla áherslu á að
súpurnar séu hreinar og án auka-
efna. Hér er ekki hveiti í súpunum
og eingöngu rjómi í sveppasúpunni.
Ég nota grænmeti og stundum baun-
ir þegar ég þykki súpurnar og góð
krydd,“ segir Örlygur og gefur upp-
skrift að súpu vikunnar, sem að
þessu sinni er fitusnauð og bráðholl
spínatsúpa.
Spínatsúpa
ólífuolía
1 stór laukur (200 g)
2 hvítlauksrif
300 g ferskt spínat
40 g haframjöl
1 l grænmetissoð
1 msk rísmjöl
salt
nýmalaður pipar.
Skolið spínatið og þerrið eftir
bestu getu. Steikið lauk og hvítlauk í
ólífuolíu í örfáar mínútur eða þar til
MATARKISTAN | Áhugamaður yfir pottunum á Súpubarnum
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Örlygur Ólafsson ræður ríkjum á Súpubarnum við Borgartún.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Spínatsúpa með rjómarönd.
Súpu má alltaf gera góða
Það er ekki amalegt útsýniðúr heimilislegri setustof-unni á Kríunesi í landiVatnsenda, sem er
skemmtilegt gistihús með funda- og
veitingaaðstöðu við Elliðavatn. Hús-
bóndinn á bænum, Björn Ingi Stef-
ánsson, sem sjálfur hefur numið raf-
eindavirkjun, guðfræði erlendis og er
stofnandi trúfélagsins Vegarins í
Kópavogi, hefur staðið í ströngu við
að byggja við og innrétta með góðra
manna hjálp. Upphafið má rekja allt
aftur til ársins 1992 þegar hann frétti
af gömlu litlu húsi á þessum slóðum
sem allt í einu var til sölu. Björn Ingi
var ekki nema kvöldstund að hugsa
sig um enda hafði hann um hríð verið
að leita sér að náttúruperlu við borg-
armörkin.
Óhætt er að segja að Björn Ingi
hafi náð að búa gistihemilinu sínu hlý-
legan blæ, en hann hefur sérstakt dá-
læti á mexíkóskum stíl og hefur m.a.
flutt flest húsgögnin inn frá Mexíkó
og flísalagt í hólf og gólf með mexí-
kóskum flísum.
Fjallahringurinn blasir við
Kríunes stendur vestanmegin við
bakka Elliðavatns og úr stofunni
blasa við Akrafjallið, Esjan, Skálafell-
ið, Hengillinn, Vífilfell og Heiðmörk.
Á sumrin er boðið upp á bátaleigu og
veiðileyfi í vatninu. Margvísleg her-
bergi eru í boði, allt frá eins manns
herbergjum upp í flottustu svítur.
„Svíturnar eru vinsælar meðal brúð-
hjóna og para í rómantískum hugleið-
ingum,“ segir Björn, sem nú er að
leggja lokahönd á fínustu svítuna sem
er um 50 fermetrar að stærð með út-
sýni yfir vatnið og fjallahringinn og
státar af arni, vatnsgufu og nuddpotti
í svefnherberginu. Þá er hægt að
halda fundi og ráðstefnur í Kríunesi,
sem býður upp á tvo 20 manna og 70
manna fundasali með nauðsynlegum
fundabúnaði auk smærri rýma. Með-
al annars var Kríunes miðstöð samn-
inga kolmunnaveiðiþjóða við Norður-
Atlantshaf fyrir skemmstu. Í kjallara
Kríuness er Björn Ingi nú að innrétta
líkamsræktarsal, körfuboltasal og
spa-aðstöðu með nuddpottum og
gufu. Hann væntir þess að gestir sín-
ir taki framtakinu fagnandi auk þess
sem nágrannar í nýlegu Vatnsenda-
MATARKISTAN | Rúmgott gistihús, ráð-
stefnu- og veitingaaðstaða við Elliðavatn
Karrífiskur og
heilhveititerta
í Kríunesi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Björn Ingi Stefánsson í setustofunni ásamt foreldrum sínum, Helgu Björns-
dóttur og Stefáni Ágústssyni, sem taka virkan þátt í rekstrinum.
Tómatsúpa með rækjum og kínakáli er borin fram með nýbökuðu brauði.Gratínerað blómkál sem borið er fram með fiskinum.
Gestum er til
dæmis boðið upp
á karrífisk með
hrísgrjónum.
Mikið vatn hefur runnið til sjáv-
ar í Kríunesi frá því að Björn
Ingi Stefánsson festi kaup á
litlu húsi við vestanvert Elliða-
vatn fyrir fjórtán árum.
Jóhanna Ingvarsdóttir
skrapp í heimsókn og skoðaði
þetta vel falda leyndarmál.