Morgunblaðið - 20.01.2006, Síða 27

Morgunblaðið - 20.01.2006, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 2006 27 DAGLEGT LÍF Í JANÚAR Landnámsmennirnir Ingólfur Arnarson og Hallveig Fróðadóttir voru öndvegisfólk og sannir frumkvöðlar. Þau reistu bæ sinn í fallegri vík sem þau nefndu Reykjavík. Reykjavík í mótun Nú er komið að þér. Þú getur átt beinan þátt í mótun Reykjavíkur. Sendu okkur álit þitt, ábendingar og hugmyndir, t.d. um notkun útivistarsvæða, samgöngur, náttúruvernd, landnýtingu, loftgæði, lýðheilsu, ásýnd borgarinnar, umhverfisfræðslu eða hverfið þitt, á vefnum www.hallveigarbrunnur.is eða í pósti. Utanáskriftin er Hallveigarbrunnur, Umhverfissvið Reykjavíkurborgar, Skúlagötu 19, 101 Reykjavík. Þú getur einnig lesið hugmyndir inn á talhólf, gjaldfrjálst símanúmer er 800 1110. Tökum þátt í mótun Reykjavíkur Umhverfissvið Reykjavíkurborgar Hverju viltu breyta? Hverju viltu halda? Ertu með góða hugmynd? hann hefur náð að mýkjast. Bætið spínati saman við og leyfið að krauma við vægan hita í um 10 mín- útur. Hafið lok á pottinum en veltið spínatinu og lauknum nokkrum sinnum Bætið við haframjöli og smá salti og hrærið vel saman. Hellið grænmetissoði í pottinn og látið sjóða í 15 mínútur undir loki. Leyfið soðinu að kólna lítillega en maukið það síðan með töfrasprota eða mat- vinnsluvél. Hrærið rísmjöl saman við örlítið af heitu vatni. Hitið súpuna að nýju, hellið rísmjölsblöndunni saman við og hrærið vel. Setjið aftur lok á pottinn og leyfið súpunni að sjóða við vægan hita í 10 mínútur. Bragð- bætið með salti og nýmöluðum pip- ar. Gott er að bera súpuna fram með nýbökuðu brauði, helst einhverju grófu og hollu brauði sem inniheld- ur ekki hvítt hveiti þannig að holl- usta og hreinleiki súpunnar fái að njóta sín að fullu. Súpubarinn mælir með speltbrauði frá Mosfellsbakaríi. „Mér finnst upplagt að spilla súp- unni örlítið með því að léttþeyta rjóma og skreyta hana með fallegri rjómarönd,“ segir Örlygur. „Þannig fást fallegar litaandstæður sem gera súpuna meira spennandi og girni- lega.“ krgu@mbl.is landshverfi gætu nýtt sér nálægð að- stöðunnar. Húsnæðið hefur nú teygt sig í á annað þúsund fermetra og er nánasta fjölskylda Björns Inga á kafi í rekstr- inum með honum, bæði börn hans og foreldrar, auk þess sem fjölskyldan stendur að rekstri Kaffi Nauthóls við Nauthólsvík þar sem nú er áformuð 350 fermetra nýbygging í stað veit- ingaskálans, sem þjónað hefur til- gangi sínum fram til þessa. Faðir Björns Inga, Stefán Ágústsson, sér um öll fjármál og bókhald og móðir hans, Helga Björnsdóttir, ræður ríkj- um í eldhúsinu í Kríunesi. Hún segist í matseldinni reyna eftir megni að leggja sig eftir hollustunni og sneiða hjá fitu. Að lokum gaf Helga Daglegu lífi uppskriftir að góðum hádeg- isverði, sem hún ætlaði að bjóða starfsmannahópi íslensks fyrirtækis upp á sem leitað hafði í „sveitina“ til fundahalda. Boðið var upp á tóm- atsúpu í forrétt og karrífisk með hrís- grjónum í aðalrétt. Í hverjum skammti af fiskréttinum eru 380 hita- einingar, 3 g mettuð fita og 8 g ómett- uð fita. Með miðdegissopanum var svo m.a. að finna tvær tertur, heil- hveititertu og fljótlega ananasköku. Tómatsúpa (fyrir fjóra) 1 laukur 2–3 msk hvítlauksrif 2 tsk karrí 1 dós (400 g) niðursoðnir brytjaðir tómatar 4 dl fisksoð (eða 2–3 teningar í vatni) 1 dós (400 g) niðursoðnar ferskjur 2½ dl matreiðslurjómi Saxaður laukur og marinn hvít- laukur léttsteiktur í matarolíu í potti. Karríi stráð yfir. Tómatar brytjaðir smátt og bætt út í ásamt fisksoði. Látið krauma í 5–10 mínútur. Ferskj- urnar skornar í mjög smáa bita eða þær maukaðar í matvinnsluvél. Sett- ar út í súpuna ásamt nánast öllum ferskjusafanum og rjómanum. Suð- unni hleypt upp í skamma stund. Gott er að bæta rækjum eða kínakáli út í súpuna að síðustu. Súpan er borin fram með brauði. Karrífiskur með grjónum (fyrir fjóra) 600 g ýsa eða þorskur 2 dl hrísgrjón 2 dl súrmjólk 4 msk léttmajones 2 tsk karrí salt eftir smekk 100 g nýir sveppir 3 msk rifinn ostur Hrísgrjónin eru soðin og sett í smurt eldfast mót. Hrár fiskurinn er skorinn í bita, sem raðað er yfir hrís- grjónin. Salti stráð yfir. Sveppirnir sneiddir niður og þeim dreift yfir fisk- inn. Súrmjólk, majonesi og karríi hrært saman og hellt yfir réttinn. Osti stráð yfir. Bakað í ofni í 30 mín- útur við 180–200°C. Borið fram með gratíneruðu blómkáli. Heill blómkáls- haus er soðinn og bræddum rjóma- osti, sem þynntur hefur verið með blómkálssoðinu, því næst hellt yfir hann. Kryddaður með picanta. Heilhveititerta 200 g sykur 2 egg 150 g heilhveiti 200 g döðlur 1 pakki muldar möndlur 1 tsk lyftiduft Döðlurnar settar í pott ásamt 2 dl af vatni og suðan látin koma upp. Döðl- urnar látnar kólna í soðinu. Egg og sykur þeytt saman og hinu blandað saman við ásamt döðlumaukinu. Deigið passar í eitt stórt hringlaga mót, sem er 24 cm í þvermál. Gott er að sprauta súkkulaðikremi ofan á og bera síðan kökuna fram með þeyttum rjóma. Ananaskaka 100 g hveiti 100 g sykur 1 tsk lyftiduft 1 egg ½ (430 g) dós ananaskurl með safa Allt hráefnið er hrært saman með sleif og sett í eldfast mót. 100 g af púðursykri og 50 g af kókosmjöli blandað saman og stráð yfir. Bakað í ofni í hálftíma við 175°C. Kakan borin fram heit með vanilluís. Í stað an- anaskurlsins má t.d. hafa kokteil- ávexti eða vel þroskaða banana. Inngangurinn þegar komið er í Kríunes. TENGLAR ..................................................... www.kriunes.is join@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.