Morgunblaðið - 20.01.2006, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 2006 29
Margverðlaunað
fyrir hollustu og bragðgæði
AÐEINS
0,7% FITA
Léttreykta kjúklingaáleggið frá
Holtakjúklingi er margverðlaunað
fyrir hollustu og bragðgæði.
Þú finnur vart fituminna álegg.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
5
2
1
8
Hröð kæling
kemur í veg
fyrir örverur
og sýkla
MATVÆLI | Pasta
og hrísgrjón með
mikið geymsluþol
„MATVÆLI eins og pasta og hrís-
grjón hafa yfirleitt mikið geymslu-
þol, sérstaklega ef þau eru geymd í
órofnum umbúðum,“ segir Franklín
Georgsson. „Annað gildir um þessi
matvæli eftir matreiðslu. Þá eru
þau oft mjög viðkvæm fyrir örveru-
vexti og því mikilvægt að afgangar
séu geymdir í góðum kæli.“
Til að ná fram hraðri og góðri
kælingu er mjög mikilvægt að gæta
þess að þau séu ekki geymd í of
stórum massa. Þá haldast þau heit
mjög lengi og örverur og jafnvel
sýklar fara að fjölga sér, hugs-
anlega með þeim afleiðingum að
eiturefni myndast, sem í sumum til-
vikum eru mjög hitaþolin.
„Hitaþolið er svo mikið að jafnvel
þótt hrísgrjónin eða pastað séu hit-
uð upp í 100°C er eitrið enn virkt og
getur valdið matareitrun,“ segir
hann.
Sama á við um ýmsa aðra mat-
arafganga. Þá á ekki að geyma við
stofuhita heldur kæla niður eins
hratt og hægt er. Franklín bendir á
að innsti kjarni matvæla í fylltum
fimm lítra potti getur verið upp
undir sólarhring að ná fullri kæl-
ingu í ísskáp. Betra sé að geyma
matvælin í smærri skömmtum og að
vatnskæla matinn áður en hann fer
í ísskápinn. Þumalputtareglan sé sú
að ef ætlunin er að halda tilbúnum
rétti heitum í einhvern tíma verður
hitinn að vera að minnsta kosti 60°C
en ef ætlunin er að kæla réttinn er
rétt að kæla sem fyrst niður fyrir
10°C. „Hitastigið þarna á milli gef-
ur örverum, sem jafnvel þola suðu,
möguleika á að fjölga sér og þá get-
ur allt gerst,“ segir Franklín.
ÞAKRENNUKERFI
á öll hús – allsstaðar
Dalvegi 28 – Kópavogi
Sími 515 8700
BLIKKÁS –