Morgunblaðið - 05.02.2006, Síða 2

Morgunblaðið - 05.02.2006, Síða 2
MINNISVARÐINN Samstaða eftir listamanninn Jóhann Ingimarsson, Nóa, var í gærmorgun afhjúpaður af forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni. Minnisvarðinn stendur neðst við Strandgötu á Akureyri, í grennd við staðinn þar sem Verkamannafélag Akureyrar var stofnað 6. febrúar 1906. Minn- isvarðinn er því reistur í tilefni þess að ein öld er frá stofnun félagsins, og þar með 100 ára samfelldu starfi verkalýðsfélaga í Eyjafirði. Kaupfélag Eyfirð- inga bar allan kostnað af gerð listaverksins og gaf það hinum vinnandi manni. Á myndinni eru, frá vinstri: Björn Snæbjörnsson, formaður verkalýðsfélags- ins Einingar-Iðju, Halldór Jóhannsson, framkvæmdastjóri KEA, forseti Ís- lands Ólafur Ragnar Grímsson og listamaðurinn Nói, Jóhann Ingimarsson. Samstaða afhjúpuð á 100 ára afmælinu Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson 2 SUNNUDAGUR 5. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR FLEIRI SLYS Slysum þar sem vöruflutn- ingabílar koma við sögu hefur verið að fjölga á síðustu árum. Í fyrra áttu slíkir bílar þátt í 17% allra slysa en þeir eru hins vegar einungis 6% af heildarumferð í landinu. Sigurður Helgason, verkefnisstjóri hjá Um- ferðarstofu, telur þessa þróun áhyggjuefni. Hann segir margt fólk hrætt við þessa stóru bíla og margir tali um að erfitt sé að fara fram úr þeim. Ekki alhæft um alla banka Björgólfur Guðmundsson, for- maður bankaráðs Landsbanka Ís- lands, segir mikilvægt að greining- ardeildir sem skrifi um íslensku bankana séu með réttar upplýsingar og alhæfi ekki um alla bankana út frá upplýsingum um einn banka eða tvo. Búið að skrá 15% fornleifa Aðeins er búið að skrá um 15% af öllum fornleifum á landinu. Íslend- ingar standa langt að baki ná- grannaþjóðum okkar að þessu leyti. Sólborg Una Pálsdóttir, verkefn- isstjóri hjá Fornleifavernd Íslands, segir að til að hægt sé að koma í veg fyrir að fornminjar séu skemmdar sé grundvallaratriði að þær séu skráðar. Eldur um borð Um 400 manns lifðu af sjóslysið á Rauðahafi aðfaranótt föstudagsins en allt að 1.000 manns eru taldir af. Er þetta eitt mesta sjóslys í langan tíma en haft er eftir þeim, sem af komust, að eldur hafi komið upp í skipinu skömmu eftir að það lagði úr höfn í Sádi-Arabíu. Samt var ferð- inni haldið áfram og eftir að hættu- legur halli var kominn á skipið. Yf- irvöld í Egyptalandi segja, að allt of fáir björgunarbátar og björg- unarvesti hafi verið um borð. Tugir tróðust undir Hátt í 90 manns týndu lífi í mikl- um troðningi á leikvangi í Manila á Filippseyjum í gær en þar var verið að taka upp vinsælan sjónvarpsþátt. Ekki er ljóst hvað olli en sumir segja, að einhver hafi hrópað „sprengja“. Ruddist þá fólkið út með fyrrgreindum afleiðingum. Ekki lengur árásarþyrlur Varnarmálaráðuneyti Bandaríkj- anna hefur endurskilgreint hlutverk þyrlusveitar varnarliðsins á Kefla- víkurflugvelli. Ætti þetta að greiða fyrir samkomulagi í viðræðum um varnarmálin að mati Vals Ingimund- arsonar sagnfræðings. Y f i r l i t Í dag Fréttaskýring 8 Hugvekja 64 Sjónspegill 40 Minningar 65/73 Hugsaðupphátt 42 Auðlesið 74 Svipmynd 42 Dagbók 78 Þjóðlífsþankar 44 Víkverji 78 Forystugrein 46 Velvakandi 79 Reykjavíkurbréf 46 Staður og stund 80 Úr vestuheimi 48 Menning 83/89 Umræðan 50/61 Ljósvakamiðlar 90 Bréf 56/57 Veður 91 Skák 62 Staksteinar 91 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is HARALDUR Briem sóttvarnalækn- ir segir í nýjasta hefti Læknablaðs- ins, að fari svo að H5N1-stofn fugla- flensuveiru taki breytingum þannig að hann berist á milli manna og valdi heimsfaraldri, megi búast við meiri útbreiðslu, mun alvarlegri einkenn- um, hærri dánartíðni og röskun á allri starfsemi samfélagsins en gerist í árstíðabundnum inflúensufaröldrum. Haraldur segir að ekki sé unnt að fullyrða hversu þungt slíkur faraldur muni leggjast á fólk. Á síðustu öld hafi faraldrar verið misskæðir. Spænska veikin árið 1918 lagði að velli 50–100 milljónir manna í heim- inum. Asíu-inflúensan 1957 og Hong Kong-inflúensan 1968 voru mun væg- ari en ollu engu að síður talsverðum umframdauðsföllum. Haraldur segir að bóluefni gegn nýjum stofni af inflúensu A og inflú- ensulyf séu mikilvæg við að hefta og hægja á útbreiðslu heimsfaraldurs inflúensu. Bóluefni verði af skornum skammti í upphafi slíks faraldurs vegna takmarkaðrar framleiðslugetu lyfjaiðnaðarins. Ísland hafi hvatt til þess að Norðurlöndin reisi verk- smiðju til að framleiða inflúensubólu- efni. Niðurstaða hafi ekki fengist en á meðan ákvörðunar er beðið verði reynt að kaupa „heimsfaraldurs- tryggingu“ sem eigi að setja Ísland í forgang þegar framleiðsla bóluefnis hefst. Veirulyf sem geti stytt sjúk- dómstíma og dregið úr einkennum sjúkdómsins verði mikilvæg séu þau notuð rétt. Í árslok 2005 voru til 89.000 meðferðarskammtar í landinu sem aðeins er heimilt að nota í heims- faraldri. Haraldur segir að verið sé að kanna kaup á frekari lyfjabirgðum og unnið sé að því að tryggja nægar ör- yggisbirgðir dreypilyfja og önnur nauðsynleg lyf, hlífðarbúnað og veiruheldar grímur fyrir þá sem stunda inflúensusjúklinga í návígi. „Sóttvarnalæknir og almanna- varnadeild ríkislögreglustjóra skipu- leggja almennar sóttvarnaráðstaf- anir, svo sem einangrun, afkvíun, lokun skóla og samkomubann (social distancing) og aðgerðir til að tryggja nauðsynlega starfsemi í landinu. Mik- ilvægt verður að vernda spítala svo þeir geti sinnt veikasta fólkinu. Heilsugæslan í landinu mun gegna þýðingarmiklu hlutverki við að sinna veiku fólki í heimahúsum. Æskilegt er að veikt fólk haldi sig heima og því nauðsynlegt að sjá því fyrir vistum þar,“ segir Haraldur. Reynt að kaupa „heimsfarald- urstryggingu“ fyrir Ísland ELDUR braust út í húsnæði líf- tæknifyrirtækisins Urðar Verðandi Skuldar við Snorrabraut í fyrrinótt. Að sögn Slökkviliðs höfuðborgar- svæðisins barst tilkynning til Neyð- arlínunnar og fór slökkviliðið af stað klukkan 3.31. Slökkviliðið sendi tvo bíla á staðinn og var eldur í geymslu baka til í húsinu. Svo virðist sem eld- ur hafi kviknað í töflu sem innihélt geyma sem jafna rafmagnsspennu í húsinu. Slökkvistarf gekk greiðlega að sögn slökkviliðsins. Skemmdir á húsnæðinu voru ekki miklar en reyk- ræsta þurfti á efri hæðum hússins þar sem skrifstofur fyrirtækisins eru til húsa. Sömu nótt var slökkviliðið kallað út í vesturbæ borgarinnar en tilkynnt var um eld í ruslatunnu. Slökkvistarf gekk vel og skemmdir urðu litlar. Eldur á tveimur stöð- um í borginni TÆP 16% þeirra sem kusu Reykjavíkurlistann í síðustu borgarstjórnarkosningum sögðust myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn væri kosið nú, í könnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Ís- lands gerði á fylgi flokkanna fyrir borgarstjórn- arkosningarnar í vor fyrir Morgunblaðið. Alls sögðust 63,5% þeirra sem kusu Reykja- víkurlistann síðast ætla að kjósa Samfylkinguna, 15,3% sögðust myndu kjósa Vinstrihreyfinguna – grænt framboð, og 4,3% sögðust styðja Fram- sóknarflokkinn. Af þeim sem studdu Reykjavík- urlistann í síðustu kosningum sögðust 16,9% myndu kjósa annað en flokkana sem stóðu að listanum. Flestir, 15,7%, sögðust myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, en 1,2% Frjálslynda flokk- inn. Þegar sá hópur sem sagðist hafa kosið Sjálf- stæðisflokkinn í síðustu kosningum er skoðaður kemur í ljós að 92,2% myndu kjósa flokkinn aftur væru kosningar nú. Alls sögðust 3,2% þeirra ætla að kjósa Samfylkinguna nú, 1,9% sögðust styðja VG, 1,3% Framsóknarflokk og 1,3% Frjálslynda. Konur styðja frekar Samfylkingu og VG Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar styð- ur hærra hlutfall kvenna Samfylkinguna og VG, en karlar eru líklegri til að styðja Sjálfstæð- isflokkinn og Framsóknarflokkinn en konur. Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist þannig 54,4% meðal karla, en 42,6% meðal kvenna, og munar tæpum 12 prósentustigum þar á. Fylgi Samfylkingarinnar mældist hins vegar 29,5% meðal karla en 36,9% meðal kvenna, og munar þar 7,4 prósentustigum. Einnig reyndist veruleg- ur munur á fylgi VG eftir kynjum svarenda, 6,7% karla sögðust myndu kjósa VG, samanborið við 14,9% kvenna, og er munurinn 8,2 prósentustig. Framsóknarflokkurinn mældist í könnuninni með 6,3% fylgi meðal karla, en 4,1% meðal kvenna. Frjálslyndi flokkurinn reyndist með 3,1% fylgi meðal karla en 1% meðal kvenna. Tæp 16% R-listafólks ætla að kjósa Sjálfstæðisflokkinn Fylgi Reykjavíkurlistans dreifist helst á Samfylkingu, Sjálfstæðisflokk og VG Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.