Morgunblaðið - 05.02.2006, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 05.02.2006, Blaðsíða 27
votlendisgróðri. Þar í milli eru lítt grónir melar og áraurar. 2. Stefnt á Arnarfell hið mikla Við tökum stefnuna á Arnarfell hið mikla sem hér er fyrir miðju, Kerfjall og Múlajökull til vinstri, Rótarjökull er til hægri og sér þar í Arn- arfell hið litla. Við erum enn stödd utan frið- landsins eins og það er afmarkað nú. Framund- an er gróðursvæði sem mikið hefur verið fjallað um og raunar deilt um hvort verði fyrir áhrifum ef vatnafari í nágrenni þess yrði breytt. Við er- um ferjuð á báti vestur yfir Þjórsárkvíslina, höldum fyrst norður í átt til Þjórsárjökuls til þess að krækja fyrir votlendi og ganga á þurrari árbakkanum þar til komið er upp á greiðfærara svæði nær jökli. Síðan er snúið beint til Arn- arfells hins mikla. Við tjöldum við rætur fjalls- ins. 3. Undir Arnarfellsbrekku Öræfakyrrðin verður vart áhrifameiri en snemma á sumarmorgni undir Arnarfells- brekku sem hefur verið rómuð um aldaraðir fyr- ir fegurð og gróðursæld. Brekkurætur eru í um 600 m hæð yfir sjó. Þaðan rís brekkan með sam- felldum gróðri í fast að 1.000 metra hæð. Niðri á sléttlendinu leita tærar lækjarsytrur sér leiðar innan um gróðurinn. 4. Þjórsárkvíslar og Arnarfellskvíslar Á öðrum degi klífum við Arnarfell hið mikla. Útsýni af tindi fjallsins gleymist seint. Stórfeng- legast er það til suðurs og suðvesturs, yfir Múla- jökul og Arnarfellsmúla. En hér á myndinni horfum við hins vegar til austurs. Þar djarfar fyrir Tungnafellsjökli. Áhugavert er að líta nær okkur, svo til beint niður af fjallinu og austur með Þjórsárjöklinum. Þar streyma Þjórsár- kvíslar og Arnarfellskvíslarnar undan jöklinum og flæmast um verin austanverð. Þarna gefst nokkuð glögg sýn yfir hluta þess svæðis sem ætlað hefur verið undir mótvægis- og veitulón ásamt skurði og leiðigarði eins og fram kom hér áður. Með því móti yrði mikið af rennsli kvísl- anna leitt úr farvegi sínum, frá Þjórsá og yfir til Þórisvatns ásamt tilheyrandi áhrifum á lands- lag, vatnafar og minna vatni í fossum Þjórsár. 5. Norðurhlið Arnarfells hins mikla Við yfirgefum Arnarfell hið mikla og skund- um þvert yfir sléttan Rótarjökulinn en höfum þó nánar gætur á grængolandi svelgjum skriðjök- ulsins sem verða á vegi okkar. Handan jökulsins bíður okkar Arnarfell hið litla sem reyndar gef- ur hinu mikla ekkert eftir í hæð. Fáir ganga á Arnarfell hið litla og því er óvenjulegt að sjá myndir þaðan af norðurhlið Arnarfells hins mikla. Hér sjáum við ekki blómskrúð í suður- brekkum heldur þvert á móti er ásýnd fjallsins að norðan köld og nakin en þó heillandi þrátt fyrir hrikaleik sinn. Rótarjökull teygir sporð sinn niður með fjallinu en undan honum fellur Arnarfellskvíslin innri. Handan Arnarfellsins mikla sjáum við suður í votlendi Þjórsárvera. Þriðja dag ferðarinnar göngum við um 15 km leið um Arnarfellsmúla í Nautöldu. Slóðin hlykkjast um gróskumikla múlana innan um hvannstóð og blaðmiklar og blómfagrar jurtir. Við erum reyndar um 8 til 10 klukkutíma þann spotta. Ekki er það vegna torleiðis þó að margar ár þurfi að vaða heldur vegna þess að við stöns- um hvað eftir annað og fræðumst um náttúru svæðisins allt frá myndun freðmýrarrústa til skötuorma í tjörnum. Fararstjórinn er gagn- fróður og sagnameistari. Hann opnar fyrir okk- ur bók náttúrunnar sem við áður gátum ekki les- ið. Síðustu ferðadagana látum við veður ráða för ýmist upp að jökli við Ólafsfell, skoðum hrunin jökulstál, striplumst í villibaði í volgum læk eða heimsækjum óðal lágfótu frammi við Oddkels- ver og könnum fornar gæsaréttir. Og á síðasta degi göngum við vestur frá Nautöldu að hinu myndarlega Setri þeirra félaga í 4x4. En þegar við höfum rétt vaðið vestur yfir Blautukvísl finn- um við að eitthvað hefur gerbreyst. Við erum skyndilega stödd í algerri auðn; svartur sandur, blásnir melar og grár jökulruðningur er á báðar hendur. Viðbrigðin eru mikil. Í tæpa viku höfum við verið umlukin gróðri, litum og vatni. Við lyft- um okkur upp á malarásinn framundan og eig- um hálfgert von á þar birtist gróðurlendi að nýju en þar er sama líflitla eyðimörkin eins langt og augað eygir. Að baki liggja Þjórsárver. Þau bíða allra þeirra sem þangað vilja leita. Og þó að fáir komi til þess að njóta þessarar gróðurvinjar lifir fegurð og náttúrugildi Þjórsárvera. Góður vinur hverfur ekki né traust vinátta við hann þó að við hittum hann ekki oft eða jafnvel aldrei framar. Morgunblaðið/Ólafur Örn Höfundur er forseti Ferðafélags Íslands. 5 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. FEBRÚAR 2006 27
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.