Morgunblaðið - 05.02.2006, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. FEBRÚAR 2006 25
Terra Nova býður fullt af spennandi nýjungum fyrir sumarfríið 2006. Perla Svartahafsins, Golden Sands í
Búlgaríu, einn vinsælasti áfangastaður Evrópu. Salou á Costa Dorada ströndinni sunnan Barcelona sem
hefur notið mikilla vinsælda vegna fjölbreytileika, en þar finna allir í fjölskyldunni eitthvað við sitt hæfi.
Einnig bjóðum við beint vikulegt flug til perlu Adríahafsins Portoroz í Slóveníu og til Bibione á Ítalíu,
einnar bestu sólarstrandar Ítalíu. Á Bibione eru í boði glæsilegir, nýjir gististaðir og frábær aðstaða fyrir
einstaklinga og fjölskyldur í sumarfríinu.
Bókaðu sumarfríið núna og tryggðu þér bestu gististaðina og lægsta verðið í spennandi ferð með Terra
Nova í sumar.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
20
11
5
Kynntu þér
sumarbækling
Terra Nova
Frá kr. 29.990
10.000 kr.
afsláttur
Þeir sem
bóka fyrir
15. febrúa
r (eða fyrs
tu
300 sætin
) geta tryg
gt sér 10.
000 kr.
afslátt. Að
eins takm
arkað fram
boð sæta
á
hverju flu
gi með af
slætti.
Tryggðu þér bestu
gististaðina og
lægsta verðið!
Bókaðu núna á
www.terranova.is
Skógarhlíð 18 · 105 Reykjavík · Sími: 591 9000 · www.terranova.is
Akureyri sími: 461 1099 · Hafnarfjörður sími: 510 9500
2006Sumar
Þökkum frábærar viðtökur!
Bibione frá kr. 49.995 Portoroz frá kr. 58.595
Barcelona
Düsseldorf
París
München
Ein glæsilegasta sólarströnd Ítalíu Perlan við Adríahafið
Búlgaría frá kr. 29.990 Salou frá kr. 42.995
Sló í gegn - yfir 2.000 sæti seld. Sólarperlan á Costa Dorada
Brottfarir í júní að seljast upp!
Planetarium Village að seljast upp!
Námskeið fyrir þá sem vilja ná betri
tökum á streitu og kvíða.
Byggt er á aðferðum hugrænnar atferlis-
meðferðar og sálfræði austrænnar speki.
Unnið er með hugsanir og tilfinningar og
aðferðir kenndar til að kyrra hugann.
Leiðbeinandi:
Margrét Bárðardóttir sálfræðingur,
sérfræðingur í klínískri sálfræði
Skráning og nánari upplýsingar:
863 0666 / margreba@centrum.is
S Á L F R Æ Ð I S T O F A N S F . K L A P P A R S T Í G 2 5 - 2 7
HUGARFAR OG HUGARRÓ
Frá streitu til sáttar
Margrét Bárðardóttir
sálfræðingur
Námske ið ið e r
ha ld ið í minningu
Marg ré ta r
B jö rgó l f sdó t tu r
leikhúsinu
standi í London og kom út úr því með
fimm mínútna númer um íslenska
víkingakonu sem vildi vera ógurlega
sterk en var full af vandamálum.
Þetta númer stækkaði síðan smám
saman og ég fór með það vítt og
breitt um England og kynntist alveg
fullt af frábæru fólki sem var í þess-
um bransa. Ég lærði líka heilmikið af
þessu um samband leikara og áhorf-
enda, tækni leikarans í kómedíu og
ýmislegt annað sem hefur nýst mér
vel síðan.“
Gleðin í vinnu leikarans
Eftir að hún var komin hingað
heim til Íslands stóð Ágústa ásamt
fleirum fyrir uppákomum með uppi-
standi og fékk vini sína frá Englandi
til að koma og vera með uppistand.
„Þetta voru frábærir uppistand-
arar og nokkrir þeirra voru rétt að
smella inn í frægðina í Bretlandi. Ef
við hefðum ætlað að græða á þessu
hefði verið betra að fá þá svolítið
seinna hingað, þegar þeir voru búnir
að vinna öll verðlaunin, en ég var ekk-
ert að pæla í því. Þetta var mjög
skemmtilegt allt saman.“ Og
skemmtun er eitt af lykilorðunum
sem Ágústa notar þegar hún talar um
leikhúsið. „Aðalkennarinn minn, Phil-
lipe Gauliere, sem hafði lært trúðinn
hjá Jacque Lecoq í París, lagði mikla
áherslu á að við hefðum ánægju af því
sem við værum að gera. „Það nennir
enginn að horfa á leikara sem er bara
í vinnunni. Leikgleðin verður að skína
í gegn,“ og þetta er eitt það mikilvæg-
asta sem ég hef lært. Það verður að
vera gleði í vinnu leikarans. Og þessi
gleði verður að smita áhorfandann.
Það er hægt að sýna hamingju og
sorg og allt þar á milli án þess að
missa gleðina. Það er líka svo mik-
ilvægt að hafa skýra mynd af því sem
maður vill segja áhorfandanum. Vilj-
um við segja það með orðum eða vilj-
um við sýna honum það með lík-
amlegu látbragði eða skapa myndir.“
Hér kemur Ágústa að þeim þætti
sýninga hennar sem hafa vakið verð-
skuldaða athygli, því þær eru oft stíl-
færðar að því marki að engu er líkara
en hún hafi samið sporin fyrir leik-
arana og sagt þeim fyrir með hreyf-
ingarnar. „Ég verð að viðurkenna að
margra ára dansbakgrunnur í sam-
kvæmisdönsum og djassballett o. fl.
brýst oft fram í mér. Það vafðist ekk-
ert fyrir mér að smíða Riverdance-
atriði eins og í sýningunni Memento
Mori með leikfélagi Kópavogs og Hug-
leik en ég fór einmitt í átta svoleiðis
danstíma í London fyrir nokkrum ár-
um. Ég ætlaði alltaf að verða eins og
Ginger Rogers þegar ég tók þá
ákvörðun að verða leikkona sex ára.
Ég sé alltaf sýningarnar mínar fyrir
mér myndrænt og vinn út frá því.“
Vilji lesandinn fá nánari skýringu á
þessum pælingum er ekki til betri að-
ferð en bregða sér í Þjóðleikhúsið og
sjá t.d. Eldhús eftir máli eða Halldór í
Hollíwood eða Klaufa og kóngsdætur
sem þrátt fyrir barnasýningarstimp-
ilinn er sýning fyrir alla sem hafa
ánægju af góðri leiklist. Þar skiptist á
hlátur og grátur enda sögur Hans
Christians Andersens innblásturinn
og hafa harðfullorðnir karlmenn sést
strjúka tár af vanga í sýningarlok.
„Þeir eru kannski ekkert harðari af
sér en aðrir yngri og mýkri.“
Brúðugerðarmeistarinn Ogrodnik
Að öðrum ólöstuðum hefur brúðu-
gerðarmeistarinn Bernd Ogrodnik
sigrað hjörtu áhorfenda með ljóta
andarunganum sem breytist á
dásamlegan hátt í fagran svan fyrir
augum áhorfenda. Þau Bernd og
Ágústa vinna nú saman að sýningu
þar sem brúður Bernds verða í öllum
hlutverkum og nefnist sýningin
Metamorphosis, hamskiptin. „Þetta
er sýning á brúðulist Bernds þar sem
hann er einn með brúðurnar sínar en
hann hannar sjálfur allar sínar brúð-
ur, sem eiga hreinlega ekki sinn líka í
veröldinni. Hann er jafnvígur á jap-
anskar bunrakubrúður og fingra-,
stafa- og strengjabrúður og list hans
er barmafull af töfrum, fegurð og
húmor. Algjör leikhúsgaldur.“
Bernd Ogrodnik býr í Skíðadal í
Svarfaðardal og þar lágu leiðir þeirra
Ágústu saman fyrir tveimur árum
þegar hún var fengin til að leikstýra
heimamönnum í Svarfdælasögu.
„Bernd gerði grímur fyrir sýninguna
og ég fékk hann svo til að taka þátt í
Klaufunum og nú erum við að vinna
þessa sýningu,“ segir Ágústa.
Fleiri járn eru í eldinum því hún er
einnig að leikstýra Stoppleikhópnum
í nýju verki fyrir unglinga eftir Árna
Ibsen sem nefnist Emma og Ófeigur
og er að sögn Ágústu eins konar til-
brigði við Hamletstefið. Loks má
nefna að framundan í vor er sýning í
samvinnu leiklistardeildar LHÍ og
Þjóðleikhússins sem er hugsuð fyrir
börn þótt Ágústa taki skýrt fram að
það segi ekkert um endanlega út-
komu. „Við hugsum okkur að byggja
sýninguna á íslenskum þjóðsögum og
það er nú ekki allt barnaefni sem þar
stendur,“ segir hún að lokum og
kveðst nýverið hafa fengið vilyrði fyr-
ir framlengingu á samningnum í
Þjóðleikhúsinu um eitt ár í viðbót.
„Ég er alveg hlessa. Hvern hefði
grunað þetta en auðvitað er ég alveg í
skýjunum yfir þessu. Það er gott að
vera í Þjóðleikhúsinu.“
havar@mbl.is