Morgunblaðið - 05.02.2006, Síða 87
Sími - 551 9000
Sýnd kl. 8 B.i. 16 ára
Mögnuð stríðsmynd með Jake Gyllenhaal og
Óskarsverðlaunahöfunum Jamie Foxx og Chris Cooper.
DÖJ, Kvikmyndir.com
eeee
VJV, Topp5.is
eee
H.J. MBL
Sýnd kl. 2, 4 og 6
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10
StórkoStleg Saga um áStir og
átök byggð á hinni ógleymanlegu
metSölubók eftir arthur golden
beSta tónliStin,
John WilliamS
Golden Globe
verðlaun
eee
Kvikmyndir.com
eee
Kvikmyndir.is
eee
Rolling Stone
eee
Topp5.is
Sýnd kl. 5, 8 og 10.15
M YKKUR HENTAR ****
400 kr.
í bíó
*
* Gildir á allar
sýningar í
Regnboganum
merktar með rauðu
WALK THE LINE kl. 3, 6 og 9 B.I. 12 ÁRA
BROKEBACK MOUNTAIN kl. 3, 6 og 9 B.I. 12 ÁRA
MEMOIRS OF A GEISHA kl. 3, 6 og 9
LITTLE TRIP TO HEAVEN kl. 3, 6, 8 og 10 B.I. 14 ÁRA
Epískt meistarverk frá Ang Lee
„... ástarsaga eins og þær gerast bestar -
hreinskilin, margbrotin og tilfinningarík...“
eeeee
L.I.B. - Topp5.is
4
Golden Globe verðlaun
Vinsælasta myndin
á Íslandi í dag!
Tilnefningar Til ÓskarsverÐlauna
M.a. besta myndin, bestu leikarar, besta
handritið og besti leikstjórinn.8
6tilnefningar tilóSkarSverðlaunaF
U
N
„...falleg og
skemmtileg
fjölskyldumynd...“
MMJ Kvikmyndir.com
ÆVINTÝRIÐ ER RÉTT AÐ BYRJA!
FRÁBÆR SKEMMTUN FYRIR
ALLA FJÖLSKYLDUNA
SÝNDMEÐ ÍSLENSKU
OG ENSKU TALI
Sýnd kl. 2 - Ísl. tal400 KR. Í BÍÓ GiLDiR á ALLAR SÝNiNGARMERKTAR MEÐ RAUÐU
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. FEBRÚAR 2006 87
EINS og áður hefur komið fram
mun hljómsveitin Rolling Stones
spila í hálfleik í úrslitaleik amer-
íska fótboltans, Super Bowl, sem
fram fer í kvöld. Leikurinn er há-
punkturinn í bandarísku íþróttalífi,
en að þessu sinni fer hann fram í
Detroit þar sem lið Pittsburgh
Steelers og Seattle Seahawks
munu eigast við.
Fyrsti Super Bowl leikurinn fór
fram árið 1967, en þá má segja að
helstu einkenni ameríska fótbolt-
ans hafi verið lúðrasveitir, stutt-
klippt hár og bjórdrykkja. Hljóm-
sveitin Rolling Stones, sem
stofnuð var nokkrum árum áður,
stóð hins vegar fyrir allt annað,
öðruvísi tónlist, annars konar hár-
tísku og öðruvísi drykkju. Á þeim
tíma hefði því verið erfitt að
ímynda sér að hljómsveitin tæki
að sér að spila í hálfleik í úrslita-
leiknum. Það munu þeir hins veg-
ar gera í Detroit kvöld, en sveitin
spilar þrjú lög sem munu taka alls
12 mínútur í flutningi.
Sweet Neo-Con
Á blaðamannafundi á fimmtu-
daginn var Mick Jagger, söngvari
sveitarinnar, spurður hvort hljóm-
sveitin hefði færst nær banda-
rískri menningu á undanförnum
árum, eða hvort hann teldi að
bandarísk menning hefði færst
nær menningu Rolling Stones.
„Ég hugsa að það sé sitt lítið af
hvoru,“ sagði Jagger. „Bandaríkin
hafa auðvitað breyst mjög mikið
frá því við komum hingað fyrst.
Landið er nánast óþekkjanlegt
miðað við hvernig það var þá, og í
rauninni er mjög erfitt að ímynda
sér hvernig Bandaríkin voru fyrir
40 árum. En vissulega höfum við
breyst eitthvað í takt við breyt-
ingar á bandarískri menningu,“
sagði Jagger um samband hljóm-
sveitarinnar bresku og bandarískr-
ar menningar. „Ég vona samt að
báðir aðilar haldi fast í það sem
þeir standa fyrir,“ bætti Jagger
við í hæðnistón.
Hljómsveitarmeðlimir voru
spurðir hvort þeir ætluðu að gera
eitthvað ögrandi, líkt og Janet
Jackson gerði þegar hún beraði á
sér brjóstið í hálfleikssýningu úr-
slitaleiksins fyrir tveimur árum.
„Eruð þið með einhverjar hug-
myndir?“ var þó eina svarið sem
blaðamenn fengu frá Keith Rich-
ards, gítarleikara sveitarinnar, en
talið hefur verið hugsanlegt að
hljómsveitin taki lagið „Sweet Neo
Con“ en í texta lagsins kemur
fram hörð gagnrýni á George
Bush, forseta Bandaríkjanna.
Hafa neitunarvald
Að sögn Charles Coplin, útsend-
ingarstjóra NFL-deildarinnar í
fótbolta, væri slíkt hins vegar ekki
liðið. „Við getum beitt neitunar-
valdi á ákveðin lög á lagalist-
anum,“ segir Coplin. „Við tökum
hins vegar fullt tillit til þess að
þetta eru listamenn, og við reyn-
um að veita þeim listrænt frelsi í
samræmi við það.“
Í kjölfar brjóstasýningarinnar
fyrir tveimur árum er ekki lengur
um beina útsendingu frá úrslita-
leiknum að ræða, en áhorfendur
sjá það sem gerist fimm sekúndum
eftir að það gerist í raun og veru.
Fjórir starfsmenn vinna við að
fylgjast með því sem fyrir augu
ber, og ef eitthvað ósiðlegt eða
ósæmilegt gerist inni á vellinum
eða í hálfleik, geta þeir allir klippt
það út með því að þrýsta á einn
hnapp. Jagger segir að þessir
starfsmenn muni ekki þurfa að
grípa til slíkra aðgerða af sínum
völdum. „Þið þurfið ekki að hafa
neinar áhyggjur af þessu. Slappið
bara af og takið því sem koma
skal opnum örmum,“ sagði Jagger.
Leikurinn verður sýndur í
beinni útsendingu á Sýn í kvöld,
þó með 5 sekúndna seinkuninni
sem minnst var á hér að framan.
Útsendingin hefst klukkan 23.00.
Tónlist | Rolling Stones spila í hálfleik í Super Bowl
Ætla engan að hneyksla
Reuters
Rolling Stones á blaðamannafundinum í Detroit á fimmtudaginn: Charlie
Watts, Ron Wood, Mick Jagger og Keith Richards.
Jóhann Bjarni Kolbeinsson
jbk@mbl.is
Tökur á fimmtumyndinni um
galdrastrákinn Harry
Potter hefjast á morg-
un, en fimmta bókin í
röðinni heitir Harry
Potter og Fönixreglan.
Fyrstu tökur fara fram í
Hertfordshire í suður-
hluta Englands, en
myndin er ekki vænt-
anleg í kvikmyndahús
fyrr en á næsta ári og
því þurfa milljónir
Harry Potter-aðdáenda
að bíða nokkuð lengi til
viðbótar. Daniel Radcliffe verður
sem fyrr í hlutverki galdrastráks-
ins, en auk hans mun Imelda
Staunton leika eitt aðalhlutverk-
anna, en hún var tilnefnd til Ósk-
arsverðlauna árið 2005 fyrir hlut-
verk sitt í kvikmyndinni Vera
Drake. Staunton mun leika Dolores
Umbridge, nýjan pró-
fessor í Hogwart skól-
anum, sem nýtur lítilla
vinsælda á meðal nem-
enda hans. Þá bætist
ung leikkona í hópinn,
hin 14 ára gamla Ev-
anna Lynch sem fer
með hlutverk Luna
Lovegood, ungrar
stúlku sem Potter
verður hrifinn af.
Lynch var valin úr
hópi 15.000 ungra
stúlkna sem allar sótt-
ust eftir hlutverkinu.
Tekjur af síðustu
myndinni um Harry Potter, Harry
Potter og eldbikarinn, námu 285
milljónum dollara, eða rúmum 18
milljörðum íslenskra króna.
Fólk folk@mbl.is