Morgunblaðið - 04.02.2007, Síða 1
STOFNAÐ 1913 34. TBL. 95. ÁRG. SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
TÓNELSKUR HEILI
MÚSÍKIN VIRÐIST OKKUR Í BLÓÐ BORIN,
BÆTIR SKAP OG VELDUR VELLÍÐAN >> 20
TRYGGVI ÞÓR ENN Á
KROSSGÖTUM
VISTASKIPTI
SÖÐLAÐ UM >> 30
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
UM FÁTT var meira
rætt í forystugreinum
helstu dagblaða á Vest-
urlöndum í gær en nýja
skýrslu Vísindanefndar
Sameinuðu þjóðanna um
loftslagsbreytingar,
IPCC. Leiðtogar fjöl-
margra ríkja brugðust
við spánni um hlýnun
andrúmsloftsins, á sama
tíma og helstu ríkismiðlar kommúnista-
stjórnarinnar í Kína kusu ýmist að snið-
ganga birtingu skýrslunnar eða gera henni
skil í fáeinum dálksentimetrum þar sem ekki
var vikið að hugsanlegum áhrifum breyting-
anna á veðurfar og lífríki landsins.
Þetta fullyrða blaðamenn AFP-fréttastof-
unnar en hið orkufreka og ört vaxandi hag-
kerfi Kína er öðrum þræði drifið áfram af
raforku úr jarðefnaeldsneyti.
Samuel Bodman, orkumálaráðherra
Bandaríkjanna, sagði skýrsluna styðja um-
mæli George W. Bush forseta um „eðli lofts-
lagsbreytinga“ sem „staðfesti þörfina fyrir
áframhaldandi forystu Bandaríkjanna í um-
ræðum um loftslagsmál“.
Ástralar segja spána ekkert nýmæli
Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Samein-
uðu þjóðanna, sagði, líkt og Jacques Chirac
Frakklandsforseti, nauðsynlegt að bregðast
hratt við hlýnun með aðgerðum.
Malcolm Turnbull, umhverfisráðherra
Ástralíu, sagði skýrsluna ekki „hafa neitt
nýtt“ fram að færa, þótt vísindin sem lægju
henni til grundvallar væru mikilvæg. Var
þetta í takt við þá stefnu Johns Howards for-
sætisráðherra að Kína og Indland verði að
ganga til liðs við Vesturlönd til að draga úr
losun eigi Ástralar að gera slíkt hið sama.
Hlýnun
á allra
vörum
Ríkisfjölmiðlarnir í Kína
minnast vart á spá SÞ
Samuel Bodman
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
HÓPUR skoskra fjárfesta og
smárra hluthafa í skoska úr-
valsdeildarfélaginu Hearts
vill fá íslenska fjárfesta til
liðs við sig að gera yfirtöku-
tilboð í félagið, sem hefur
undanfarin tvö ár verið í að-
aleigu litháíska auðjöfursins
Vladimirs Romanovs. Hafa
skosku fjárfestarnir óskað
eftir liðsinni frá ræðismanni
Íslands í Edinborg, Cameron
Buchanan, sem einnig hefur
hug á að fjárfesta í félaginu
og gefa kost á sér í stjórn
þess. Um 5–6 milljarða króna
fjárfestingu gæti verið að
ræða.
Forsprakki hópsins er Pat-
rick Munro, sem er um-
svifamikill verktaki og fjár-
festir í Edinborg. Hann sagði
í samtali við Morgunblaðið
að mikil óánægja hefði verið
með eignarhald Romanovs
og hvernig hann stjórnaði
þessu rótgróna skoska fé-
lagi. Þrátt fyrir nokkrar
skuldir væri fjárhagsstaða
félagsins ágæt en í fyrirhug-
uðum framkvæmdum fælust
miklir tekjumöguleikar.
Gott orð af Íslendingum
Áformað er að reisa nýjan
leikvang í útjaðri Edinborg-
ar og hugmyndir Munros og
félaga ganga út á að fjár-
festahópurinn reisi leikvang-
inn og leigi hann síðan til fé-
lagsins til næstu 40 ára, fyrir
milljón pund á ári. Einnig
ætlar hópurinn sér að kaupa
kastala í Edinborg og í
tengslum við nýjan leikvang
eru áform um byggingu á
hóteli, spilavíti, banka og
stórmarkaði.
Cameron Buchanan sagði
við Morgunblaðið að aðkoma
Íslendinga að kaupunum
hefði marga kosti, ekki síst
nálægðin milli landanna þar
sem möguleikar væru á
skiptum með íslenska og
skoska leikmenn, auk þess
sem íslenskir fjárfestar
hefðu margir hverjir mikinn
áhuga á knattspyrnu. Jafn-
framt segir hann kaup Ís-
lendinga á West Ham hafa
fengið mjög jákvæða athygli
á Bretlandseyjum og einnig
væri góð reynsla í Skotlandi
af viðskiptum við Íslendinga.
Vilja fá Íslendinga til að kaupa Hearts
Forsprakki hóps skoskra fjárfesta hefur leitað liðsinnis ræðismanns Íslands í Edinborg
Reuters
Rótgróið Leikmenn Hearts klæðast rauðum og hvítum bún-
ingum en liðið er hið elsta í Edinborg, stofnað árið 1874.
Eftir Agnesi Bragadóttur
agnes@mbl.is
GUÐJÓN A. Kristjánsson, for-
maður Frjálslynda flokksins, er
ómyrkur í máli í garð kvótaeigenda í
samtali við Morgunblaðið í dag og
segir það mikinn misskilning ef menn
haldi að sjávarútvegsmálin verði ekki
kosningamál.
„Ef kvótagreifarnir halda að þeir
sitji á friðarstóli með því að safna til
sín endalausum aflaheimildum frá
hverjum staðnum á fætur öðrum og
færa heimildirnar þangað sem þeim
sýnist, þá er það mikill misskilningur
þeirra,“ segir Guðjón.
Guðjón bendir á að stórir útgerð-
arbæir eins og Akureyri og Akranes
séu nú að vakna upp við vondan
draum og séu komnir í sömu varn-
arstöðu hvað varðar kvótaflutning og
mörg minni sjávarplássin hafi verið í
um langa hríð.
Orðrétt segir Guðjón: „Ef við lítum
til dæmis á norðausturhorn landsins,
Húsavík, Þórshöfn, Raufarhöfn og
Vopnafjörð. Hver á uppsjávarat-
vinnuréttinn sem var á þessum stöð-
um eða megnið af kvótaréttinum?
Það eru ekki íbúar þessara staða,
heldur stór fyrirtæki, annaðhvort hér
í Reykjavík eða Vestmannaeyjum
sem eiga þennan rétt. Samt syndir
loðnan fram hjá þessum stöðum og
síldin syndir framhjá þessum stöðum
og norsk-íslenska síldin mun vænt-
anlega koma syndandi upp að þessu
landshorni, en eignarréttur íbúanna
á auðlind sinni, hann er ekki lengur til
staðar. Hann er undir öðrum eigna-
böndum, sem eru ekki á stöðunum.“
Í viðtalinu ræðir Guðjón útlend-
ingapólitík Frjálslynda flokksins og
þvertekur fyrir það að flokksforystan
kyndi markvisst undir fordómum og
vanþekkingu með áróðri gegn inn-
flytjendum.
Guðjón ræðir einnig þann ágrein-
ing sem verið hefur í Frjálslynda
flokknum, á milli flokksforystunnar
og fyrrverandi framkvæmdastjóra
flokksins, Margrétar Sverrisdóttur,
sem sagði sig úr flokknum sl. mánu-
dag. Hann segir að Margrét hafi
greitt einhverja tugi þúsunda króna
fyrir hópa fólks fyrir landsþing
flokksins. Þá segir Guðjón það rangt,
að helmingur miðstjórnarmanna í
Frjálslynda flokknum sé úr röðum
fyrrum liðsmanna Nýs afls. Einungis
þrír miðstjórnarmenn hafi verið í
Nýju afli.
Kallinn | 24
Kvótagreif-
ar sitja ekki
á friðarstóli
Í HNOTSKURN
»Guðjón A. Kristjánsson gekktil liðs við Frjálslynda flokk-
inn fyrir átta árum.
»Guðjón segir frjálslynda ekkikynda undir fordómum og
vanþekkingu.
»Formaðurinn telur að flokk-urinn muni koma sterkur út
eftir kosningar í vor.
Engin tæpitunga „Eignarréttur íbúanna á auðlind sinni, hann er
ekki lengur til staðar. Hann er undir öðrum eignaböndum, sem eru
ekki á stöðunum,“ segir Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjáls-
lynda flokksins, meðal annars í viðtalinu við Agnesi Bragadóttur.
Segir hann að sjávarútvegsmálin verði meðal kosningamála í vor.
Morgunblaðið/Ásdís