Morgunblaðið - 04.02.2007, Side 8

Morgunblaðið - 04.02.2007, Side 8
BLOG.IS 8 SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ VEÐUR Í Morgunblaðinu í gær birtist at-hugasemd frá Dómarafélagi Ís- lands í tilefni af frétt um dóm Hæstaréttar í tilteknu máli, sem birtist á forsíðu Morgunblaðsins sl. föstudag. Með fréttinni birtust myndir af þeim dómurum í Hæstarétti, sem kváðu upp dóm- inn.     Í athugasemdDómara- félagsins segir m.a.: „Fréttaflutn- ingur af dóms- máli með þess- um hætti á sér enga hliðstæðu og fer langt út fyrir eðlileg mörk og jaðrar við sorpblaðamennsku, sem ekki hefur verið dæmigerð fyrir Morgunblaðið fram að þessu.“     Í athugasemdinni segir einnig:„… og krefst þess að ritstjórn Morgunblaðsins svari því umyrða- laust hvað hér býr að baki“.     Þetta er einhver misskilningurhjá Dómarafélagi Íslands. Við búum í opnu og lýðræðislegu þjóðfélagi, sem þar að auki verð- ur sífellt opnara.     Það er ekkert athugavert aðbirta myndir af dómurum, hvort sem er í Hæstarétti eða í héraðsdómi í tilefni uppkvaðningu dóma enda er það oft gert, þótt yfirleitt séu þær myndir teknar við dómsuppsögn. Er einhver munur á slíkum myndum og and- litsmyndum af dómurum?     Hvers vegna má ekki birtamyndir af dómurum? Ekki telja þeir að þeir hafi neitt að skammast sín fyrir. Varla lítur Dómarafélag Íslands svo á að þessi tiltekni dómur sé eitthvert feimnismál fyrir dómarana? Svo Dómarafélaginu sé svarað „umyrðalaust“! STAKSTEINAR Hæstiréttur Íslands Krafa Dómarafélagsins SIGMUND                        !"    #$%  & '                              ( & )  * + ,  $ -   .    ) +                                  /0      /  1  2 0 + 0  (+  3/ #  4 &56 7 2 " &                   "#     8  ("9:;$$$                    !  ( "" 9 (  % & ' $ $& $   ( <0  < <0  < <0  % '  $) #*$+  ,  =6+ >           -  $$%.$!$*$ $   $ $ $%/$0$. $ ' 1$ $ $ ( $ $  $ 0$$2 $& $%/( # 0 4 0  .  $!$*$ & $1 $'& 0$3$& $ $   ( # 1$ $, $  0$$4 $ $$& 0 9  5   $ $  $$* 6$1$ $  $1$ $ $, $& $0$7 $8$ $1$ $#  $"$& $  0 9:$$ ;;   $$/   $) # 1%23?2 ?(<3@AB (C,-B<3@AB *3D.C',B 1 1 80 0 0 0 0   08 0  80 0 0 0 0 80 80   !0  1 1 1 1 1 1 1 1 18 1! 1 1! 1 1            Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Atli Fannar Bjarkason | 2. febrúar X-Factor? Er einhver að fylgjast með X-Factor á Stöð 2? Þættirnir eru auglýstir grimmt og fullyrt er að um stærsta sjónvarps- viðburð allra tíma á Ís- landi sé að ræða. Ég hef ekki séð einn þátt, enda ekki með Stöð 2, en ég finn ein- hvern veginn ekki fyrir þáttunum. Þegar Idol-æðið stóð sem hæst fann maður fyrir því. Keppendurnir voru í sviðsljósi flestra miðla og vöktu at- hygli hvert sem þeir fóru. Ég veit ekki einu sinni hver er í X-Faktor. Meira: http://atlifannar.blog.is Guðrún M. Óskarsdóttir | 3. febrúar Frjáls sala áfengis? Frjálshyggjupostular vaða fram með frumvarp um það að leyfa sölu á bjór og áfengi í mat- vörubúðum, án þess þó að hlusta á þau varnaðarorð sem heilbrigðisyfirvöld hafa hér borið fram ár eftir ár sem eru þau að aukið aðgengi eykur neyslu. Sjálf tel ég þessar tillögur jafngilda því að viðkom- andi óski eftir því að auka sjálf- krafa útgjöld til heilbrigðismála […] Meira: http://gmaria.blog.is Anna Ólafsdóttir Björnsson | 3. febrúar Vettvangur sem virkar Eftir rúmlega tveggja ára kjötbollu- blogg á öðru indælu bloggsvæði er orðið tímabært að blanda sér í þjóðmálaumræð- una. Það er svo margt að gerast í samfélaginu að ég get einfaldlega ekki setið hjá lengur. Þessi vett- vangur virðist virka. Vinir mínir finna mig áfram á gamla blogginu og það verður áfram fréttaveita af fjölskyldu, vinum og kunningjum með ívafi stórra skoðana á litlum málum. Meira: http://annabjo.blog.is Páll Vilhjálmsson, 2. febrúar 2007 Beitt fjölmiðlun Kastljósviðtalið í kvöld við þolanda ofbeldis í Breiðuvík og forsíða Morgunblaðs- ins í morgun um dóm Hæstaréttar í kynferð- isbrotamáli eru dæmi um beittari efnistök ábyrgra fjölmiðla en áður tíðkuðust. Mörk beittrar fréttamennsku og bilaðrar eru ekki auðgreinanleg en það eru kennileiti sem ber að líta til ef ritstjórnir vilja ekki missa sig í DV-forina. Kastljósviðtalið við miðaldra mann um vistina í Breiðuvík á sjö- unda áratug síðustu aldar var sterkt sjónvarp. Maðurinn var trúverð- ugur í það heila, þótt sumt orkaði tvímælis, t.d. þegar hann bar móður sína fyrir því að hafa verið ódæll í æsku eins og hann vissi það ekki sjálfur. Viðmælandinn nafngreindi mann sem hann sagði hafa mis- þyrmt sér og þegar svo hátt er reitt til höggs verður fjölmiðillinn að hafa traust land undir fótum. Minni eins manns um atburð fyrir 40 árum er ekki nægilega traust heimild til að bera ofbeldisverk á nafngreindan einstakling. Viðtalið í Kastljósi er hluti af stærri umfjöllun, DV var með málið í dag og unnið er að heimildarmynd um Breiðuvík. Það verður að gera ráð fyrir því að fréttamenn Kast- ljóss hafi kynnt sér gögnin sem liggja að baki og að þeirri athugun lokinni tekið viðtalið. Í viðtalinu sjálfu kom ekki fram að fréttamað- urinn hefði lesið sér til. Tilfinning áhorfandans var að viðmælandinn hefði verið nálægur og þá verið stokkið til og viðtal tekið án mikils undirbúnings. Í lok viðtalsins fór fréttamaður út af sporinu og gerði mistök sem vörpuðu rýrð á innslagið. Frétta- maðurinn leyfði viðmælandanum að vera með getsakir um að Breiðuvík- urástand væri að finna á ótil- greindum stofnunum í samtím- anum. Viðmælandinn [...] hefur engar forsendur til að hafa nokkra vitneskju um ástand mála á vist- heimilum barna og unglinga í dag. Það er vel hugsanlegt að maður sem á barnsaldri verður fyrir mis- þyrmingu á vistheimili myndi sér þá skoðun að sambærilegar stofnanir fóstri ofbeldi. En það er ábyrgð- arhluti að varpa þeirri skoðun fram eins og almennum sannindum. Meira: http://pallvil.blog.is M A S T E R S N Á M BARCELONA | MILANO | ROMA | TORINO | VENICE KYNNTU fiÉR MÁLI‹ • SÍMI 562 2220 • WWW.LINGO.IS HÖNNUN•TÍZKA• LISTIR & MIÐLUN Þú ert besti vinur í heimi Finnur litli, fyrst gafstu mér bankann og svo Vís, og núna Elton John.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.