Morgunblaðið - 04.02.2007, Blaðsíða 50
Glæsilegt atvinnuhúsnæði í byggingu á
besta stað í Helluhrauni í Hf. Húsin eru
um 1.320 fm hvert m/mögleika á ca
600 fm millilofti alls um 1.920 fm. 8
stórar innkeyrsluhurðir.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
STEINHELLA - HF.
Til sölu/leigu við sjávarsíðuna, glæsil.
nýtt 1.012 fm atvinnuh. Húsnæðið
skiptist þannig: Salur ca 500 fm.
Lofthæð allt að 8 m. Nokkrar góðar
innkeyrsludyr. Verkstæði/lager ca 250
fm með 3 m. lofthæð. Efri hæð: Skrifstofur, starfsmannaaðst, glæsil. útsýni, ca
250 fm rúmgóð athafnalóð, hellulögð, góð aðkoma. Vönduð eign. Húsnæðið er til
afhendingar mjög fljótlega. Allar nánari uppl. gefa Hilmar og Helgi Jón á
skrifstofu Hraunhamars.
VESTURVÖR - KÓP.
Um er að ræða nokkur sérlega glæsil.
iðnaðarbil á þessum góða stað í Hfj.
Bilin eru á 2 hæðum. Neðri hæðin er
116,5 fm og efri hæðin er 36,4 fm.
Góður hringstigi milli hæða. Salerni er
á neðri hæðinni. Stór innkeyrsluhurð. Þetta er sérlega vandað húsnæði sem hægt
er að mæla með. Lóð er fullfrágengin. Bilin eru til afhendingar við kaupsamning.
STEINHELLA - HF.
Nýkomið sérlega gott atvinnuh. m/
góðri lofthæð og innkeyrsludyrum,
158,3 fm endabil. Góð staðsetning,
tilvalin eign fyrir fiskvinnslu, léttan
iðnað íbúð o.fl. V. 21,5 millj.
EYRARTRÖÐ - HF.
162 fm atvinnuhúsnæði. Skipting
eignar: Neðri hæð 120 fm, efri hæð 44
fm. Um er að ræða rúmgóðan
vinnslusal á 1. hæð með innkeyrsludyr
ásamt búningsklefa og salerni.
Skrifstofu, kaffistofu og lager á 2. hæð.
Rúmgóð lóð. Nánari upplýsingar á skrifstofu Hraunhamars. Verð tilboð.
KAPLAHRAUN - HF.
Glæsil. Nýlegt 125-250 fm skrifstofu-
húsn. til leigu á 2. hæð (efstu) í nýlegu
verslunar- og þjónustu/skrifstofuhúsn.
Lyfta er í húsinu. Húsið skiptist m.a.
móttöku, 8 skrifst., fundarh., kaffist.
Snyrtingu o.fl. Góð aðkoma og bílastæði. Laust strax. Upplýsingar gefur Helgi
Jón, sölustjóri s. 893-2233
FLATAHRAUN HF. - TIL LEIGU
SKRIFST.HÚSN.
Í sölu gott innkeyrslubil sem er m/mik-
illi lofthæð, grunnflötur 120 fm og 50
fm milligólf samtals um 170 fm. Eignin
skiptist í móttöku, sal m/stórum inn-
keyrsludyrum. Milliloft m/baðh,eldhús-
aðstöðu og skriftofu. Malbikuð lóð.
Frábær staðs. í nálægð við höfnina og fiskmarkaðinn. Húsnæðinu skilað frá-
gengnu utan sem innan. Gott tækifæri.
FORNUBÚÐIR - HF.
Um er að ræða 400 fm gólfflöt ásamt
óskráðu ca 130 fm millilofti. Góð loft-
hæð er í húsinu. Ein innkeyrsluhurð.
Bílastæði við húsið. Nánari upplýs-
ingar veita Svenni s. 866 0160 og
Helgi Jón s. 893 2233.
SMIÐJUVEGUR - KÓP.
Mjög gott 237,7 fm atvinnuhúsn. vel
staðsett miðsvæðis í Hfj. Eignin er
m/góðar innkeyrsludyr og hentar vel
sem lager eða undir minni atvinnur.
Eignin skiptist í skrifstofu, kaffistofu,
geymslu, snyrtingu og vinnslusal. Gott
port er fyrir utan eigina. Eign sem býð-
ur upp á mikla möguleika. Eignin er
laus við kaupsamning. V. 23,7 millj.
REYKJAVÍKURVEGUR - HF.
50 SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033
Ægir Breiðfjörð, löggiltur fasteignasali
SKIPTU VIÐ FAGMENN - ÞAÐ BORGAR SIG
Falleg 3ja herbergja íbúð
100 fm á áttundu hæð
ásamt stæði í lokuðu bíl-
skýli. Íbúðin er fallega inn-
réttuð, stór stofa, tvö góð
svefnherbergi og þvotta-
hús í íbúð, stórar svalir o.fl.
Íbúðin snýr í suður með
glæsilegu útsýni.
Verð kr. 24,8 millj.
Bjalla 801
OPIÐ HÚS Í DAG MILLI KL. 14 - 16
BLÁSALIR 22 - KÓPAVOGI
www.valholl.is
www.nybyggingar.is
Opið virka daga frá kl. 9.00-17.00.
Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast.Sími 588 4477
Birkiholt 5 – Álftanesi
Glæsileg íbúð með mikið af fylgihlutum
Opið hús í dag kl. 13-16
Til sýnis í dag stórglæsileg 94,1 fm 3ja herb. íbúð á 3. hæð (efstu) í nýlegu
húsi með sérinngangi. Íbúðin er fullbúin með vönduðum innréttingum og
gólfefnum. Íbúðinni fylgir ísskápur, uppþvottavél, örbylgjuofn, þvotta-
vél og þurrkari. Sérhönnuð glæsileg lýsing frá GÁ ljósum. Eikarparket á
gólfum. Stórar svalir og glæsilegt útsýni. Eign í sérflokki. Tryggvi tekur vel
á móti áhugasömum kaupendum. Verð 22,5 millj.
Fréttir
í tölvupósti
MIKIL umræða hefur verið í fjöl-
miðlum um áfengis- og vímuefna-
meðferð undanfarið og sýnist þar sitt
hverjum. Undirritaður hefur starfað
við áfengis- og vímuefnaráðgjöf síð-
an 1997 og hefur séð miklar breyt-
ingar á starfi áfengis- og vímuefna-
ráðgjafa og því meðferðarumhverfi
sem hefur verið byggt upp á Íslandi
undanfarin þrjátíu ár.
Meðferðarumhverfi
þar sem tilvera SÁÁ
hefur verið hrygg-
lengjan í því að aðstoða
einstaklinga sem eru
veikir af áfengis- og
vímuefnafíkn. Ekki
ætla ég mér að fara að
munnhöggvast við
starfsmenn annarra
aðila sem vilja láta gott
af sér leiða en ástæðan
fyrir því að ég set þessi
orð á blað er að nokk-
urs misskilning virðist
gæta varðandi meðferð SÁÁ, á
hverju hún er byggð og hvernig hún
varð til.
Í ársskýrslu SÁÁ fyrir árið 2005
segir á bls 16.
„Frá upphafi hefur SÁÁ litið svo á
að áfengis- og vímuefnafíkn sé sjúk-
dómur. Hlutverk samtakanna er að
vinna að því að í landinu sé besta fá-
anlega meðferð fyrir vímuefnafíkla
og aðstandendur þeirra.
Samtökin reka sérhæfðar sjúkra-
stofnanir og ráða fagfólk til starfa.
Hugmyndafræði þessa fagfólks er
fyrst og fremst sú að standa föstum
fótum í læknisfræði, sálarfræði og fé-
lagsvísindum og samtvinna þetta
þrennt með það að markmiði að búa
til heildstæða áfengis- og vímuefna-
meðferð sem býður upp á fjölbreytta
möguleika og kemur til móts við sem
flesta. Í meðferðinni er reynt að sam-
eina heilbrigðisþjónustu og fé-
lagslega endurhæfingu og aðstoð.
Hugmyndagrundvöllurinn er fyrst
og fremst vísindalegar rannsóknir á
sviði heilbrigðisþjónustu, sálarfræði
og félagsvísinda.“
Í Blaðinu 20. janúar sl. fullyrðir
Heiðar Guðnason, forstöðumaður
Samhjálpar, að með-
ferð SÁÁ sé byggð á
sporum AA samtak-
anna. Það er einfald-
lega ekki rétt og lýsir
kannski vanþekkingu
fólks á því hvað með-
ferð er og hvað ekki.
Hefði Heiðar haft fyrir
því að kynna sér með-
ferð SÁÁ þá hefði hon-
um orðið ljóst að það er
reginmunur á því að
fræða áfengis- og vímu-
efnasjúklinga um AA
samtökin, hvetja þá til
að notfæra sér þjónustu þeirra og því
að ætla að veita fólki meðferð sam-
kvæmt þekkingu sem var góð og gild
fyrir miðja síðustu öld.
Þeim sem vilja kynna sér AA sam-
tökin og hugmyndafræði þeirra er
bent á mjög góða grein eftir Hjalta
Björnsson NCAC sem er að finna á
vef Félags áfengis- og vímuefnaráð-
gjafa, http://www.far.is og einnig er
hægt að kynna sér þróun meðferðar
á vef SÁÁ www.saa.is en þar er ritað
um meðferð:
„Þekking á áfengissýki- og vímu-
efnafíkn hefur vaxið hröðum skref-
um undanfarin 25 ár. Munar hér
mestu um undraverðar framfarir í
þekkingu okkar á uppbyggingu og
starfsemi heilans og áhrifum vímu-
efna á hann.“
Vímuefnasjúklingur sem kemur til
meðferðar kemur ekki vegna þess að
hann hafi um það fullkomlega frjálst
val. Hann kemur til meðferðar vegna
þess að valkostum hans til að lifa
eðlilegu lífi hefur fækkað eftir því
sem sjúkdómurinn þróast. Sjálfs-
myndin hefur orðið fyrir barðinu á
sjúkdómnum og hugrekkið til að tak-
ast á við daglegt líf án vímuefna fer
þverrandi.
Það að efla trú fólks og skilning á
sjálfu sér er mikilvægara en fá það til
að vitna í Heilaga ritningu og leita
svara þar eins og gert er á sumum
stöðum. Við skulum ekki gleyma því
að Biblían er byggð á texta sem ekki
hefur breyst í árþúsundir og hug-
myndafræðin sem birtist í þeirri
góðu bók er byggð á þekkingu sem
fólk hafði þegar textinn var ritaður. Í
grunninn gildir hið sama um texta
AA. Meðferð SÁÁ hefur byggst á
þeirri vísindalegu þekkingu sem
liggur fyrir á hverjum tíma, m.a. í líf-
fræði, sálarfræði, félagsvísindum og
læknisfræði.
Kjarkleysi og kvíði eru afleiðingar
síversnandi vímuefnasjúkdóms en
ekki ástæða fyrir neyslu. Það er okk-
ar fagfólks að skoða á hlutlausan hátt
og með augum vísindanna hvað er að
gerast og hvernig. Það felur í sér að
leggja verður á hilluna hverskonar
fordóma og siðferðilega mælikvarða
og einbeita okkur að vinna með það
sem við vitum en gleyma okkur ekki í
óskhyggju og því sem við viljum.
Vímuefnasjúklingar eru í upphafi
batans mjög háðir meðferðarað-
ilanum. Til hans sækja þeir hvatn-
ingu, fyrirmyndir og dómgreind.
Þetta hafa mörg trúarsamtök og sið-
lausir einstaklingar notfært sér til að
stýra sjúklingum til þess lífs sem þau
vilja en ekki til þess lífs sem ein-
staklingurinn velur sér sjálfur. Þetta
er vel þekkt og rannsakað og má
benda á bækur Leo Booths,
s.s.When God Becomes a Drug ofl.,
þessu til stuðnings. Það væri afar
heimskulegt að ætla að þetta ætti
ekki við í svipuðum aðstæðum á Ís-
landi. Grundvallargildi SÁÁ er að
finna á vef samtakanna www.saa.is
„Samtökin eru laus við fordóma og
hvers konar ofstæki, enda byggist
starf þeirra á læknisfræðilegri þekk-
ingu og virðingu fyrir fólki. SÁÁ
vinnur sína vinnu í hljóði og með
þeirri ábyrgð sem hæfir viðfangsefn-
inu. Ódýrar patentlausnir og inn-
antóm slagorð hafa aldrei átt upp á
pallborðið hjá SÁÁ.“
Að lokum vil ég hvetja þingmenn
og ráðherra til að leita sér upplýs-
inga hjá fagaðilum sem mesta
reynslu hafa á þessu sviði í landinu
en láta ekki undan þrýstingi um
ódýrar skyndilausnir sem leiða til
þjáninga þeirra sem síst skyldi.
Meðferð
Magnús Einarsson
skrifar um starfsemi SÁÁ » ...nokkurs misskiln-ing virðist gæta
varðandi meðferð SÁÁ,
á hverju hún er byggð
og hvernig hún varð til.
Magnús Einarsson
Höfundur er áfengis- og vímuefnaráð-
gjafi NCAC.