Morgunblaðið - 04.02.2007, Blaðsíða 68
|sunnudagur|4. 2. 2007| mbl.is
Eftir Flóka Guðmundsson
floki@mbl.is
V
ið byrjuðum í pínulitlu húsnæði í
Ingólfsstræti 8,“ rifjar Börkur
Arnarson upp. „Galleríið opnaði
með sýningu Hreins Friðfinns-
sonar og þar með var ferðalagið
hafið.“
Börkur er sonur Eddu Jónsdóttur en þau
mæðgin eiga og reka galleríið i8 saman. Edda
hefur verið í fararbroddi frá upphafi en nýver-
ið ákvað Börkur að „laumast út úr bakher-
berginu“, eins og hann orðar það, og helga
krafta sína alfarið starfsemi i8. „Ég hef hingað
til verið í öðrum verkefnum þó svo að ég hafi
alltaf verið í þessu til hliðar með mömmu. En
nú er ég sem sagt kominn inn af fullri alvöru.“
Börkur segir að móðir sín hafi upprunalega
ákveðið að koma i8 á fót þar sem henni hafi
þótt áberandi skarð í íslensku listalífi; þar hafi
verið tækifæri fyrir gallerí sem beindi sjónum
sínum eingöngu að samtímalist og starfaði auk
þess á alþjóðlegum markaði.
„Mamma hafði á þeim tíma verið starfandi
myndlistarmaður í alllangan tíma og ég var
með hönnunarfyrirtæki á efri hæðinni. Þegar
losnaði svo allt í einu pláss í húsnæðinu hringdi
ég í hana. Hún ákvað að slá til, hundleið á
ástandinu.“
Kjarninn myndaðist snemma
Nýverið kom út bók á vegum i8 í samstarfi
við Háskólaútgáfuna þar sem litið er yfir far-
inn veg hjá galleríinu. Sé blaðað í bókinni er
ljóst að það eru engar ýkjur hjá Berki að þessi
rúmi áratugur sem liðinn er frá opnuninni sé
„búinn að vera merkilegur tími“. Fjöldi ljós-
mynda frá markverðum sýningum sem gall-
eríið hefur hýst er til vitnisburðar og þá ekki
síður um umfang starfseminnar árin ellefu.
„Við byrjuðum að vera með sýningar nánast
á mánaðarfresti, um 10–11 sýningar á ári,“ út-
skýrir Börkur. „Við áttuðum okkur hins vegar
á því að það væri helst til mikið og núna eru ár-
lega u.þ.b. sex sýningar á okkar vegum.“
Þótt húsnæði i8 hafi í byrjun verið „nánast
kompa“, að sögn Barkar, hefur galleríið frá
upphafi verið í samstarfi við gustmikla lista-
menn. Meðal þeirra sem héldu sýningar í hinu
litla húsnæði fyrstu árin má nefna Ólaf Elías-
son, Roni Horn, Sigurð Guðmundsson, Tony
Cragg o.fl. Smám saman myndaðist kjarni um
tuttugu listamanna sem öllum hefur vaxið ás-
megin frá því samstarfið hófst og orðið aðsóps-
miklir á alþjóðavettvangi.
„Við byrjuðum strax að vinna mikið með
þeim listamönnum sem mynda þann kjarna
sem við vinnum með í dag. Eins og ég sagði þá
opnuðum við með sýningu Hreins Friðfinns-
sonar og við byrjuðum einnig snemma að
vinna með Finnboga Péturssyni, Rögnu Ró-
bertsdóttur og Hrafnkeli Sigurðssyni. Svo vor-
um við það heppin að komast snemma í kynni
við tiltölulega þekkta listamenn erlendis frá,
svo sem Elmgreen og Dragset og Ólaf Elías-
son, listafólk sem var e.t.v. ekki komið á þann
stall sem það er á í dag. Við erum búin að sýna
alveg ótrúlega hluti í galleríinu,“ segir Börkur
og það leynir sér ekki að hann er stoltur af ár-
angrinum. „Við erum mjög ánægð með þá
staðreynd að við erum enn að vinna með flest-
um af þessum listamönnum. Og ekki síst þar
sem vegur þeirra hefur vaxið mjög á þessum
ellefu árum.“
Skýr sýn frá upphafi
Vorið 2001 var svo komið að starfsemi i8 var
búin að sprengja húsnæðið í Ingólfsstræti 8 ut-
an af sér. Þau mæðgin tóku því þá ákvörðun að
flytja í núverandi húsnæði gallerísins á Klapp-
arstíg 33.
„Eftir nokkur ár niðri í Ingólfsstræti sáum
við að þetta var orðið annað og meira en vand-
að áhugamál. Fyrir svona átta árum fórum við
því að bögglast við að búa til fyrirtæki og þá
þurftum við fyrir alvöru að kynna okkur hvað
sala á myndlist fæli í sér. Okkar fyrirmyndir
voru erlend gallerí sem starfa á alþjóðlegum
vettvangi og tileinkuðum við okkur mjög fljót-
lega þær vinnureglur sem tíðkast hjá þeim.“
Hann segir að metnaðurinn í galleríinu og
sýningarhaldinu hafi þó verið tiltölulega skýr
frá upphafi; að vinna með spennandi lista-
mönnum með framtíðarsamstarf í huga. „Það
er mikilvægt að horfa fram á veginn þegar
gengið er til samstarfs við listamenn. Þótt
hlutirnir gerist hratt í þessum heimi er ekkert
gagn í því að fá listamenn í okkar raðir sem
þykja spennandi í dag en verða horfnir á
morgun. Flestir sem spá í myndlist vilja hugsa
um eitthvað í tvö ár áður en þeir snerta á því.“
Breyttir tímar
Að sögn Barkar var það einnig skýr stefna
i8 frá upphafi að takmarka ekki möguleikana
við Ísland.
„Þetta er alþjóðlegur heimur og netið er bú-
ið að gjörbreyta öllu. Það er því mikilvægt að
haga sér eftir því, með því t.d. að sækja lista-
stefnur.“
„Vel rúmlega helmingur af vinnu okkar felst
í samskiptum við erlenda aðila“ skýtur Íris
Stefánsdóttir, sölustjóri hjá i8, að og bætir því
við að landslagið hafi breyst mjög mikið í öllum
heiminum í viðskiptum með myndlist. „Við
sjáum miklar breytingar. Verðmætaaukning
hefur verið gífurleg í samtímalist en um leið
hefur viðskiptahópurinn stækkað mjög mikið.
Fyrir nokkrum árum voru þetta t.d. ekki fleiri
en kannski tíu aðilar sem eitthvað kvað að í
listaverkakaupum á Íslandi. Sá hópur hefur
vaxið mjög mikið,“ heldur Íris áfram og segir
að hlutur einstaklinga fari þar ört stækkandi.
Íris og Börkur fullyrða að þótt uppsveifla í
viðskiptamannahópnum fylgi klárlega auknum
efnum fólks segi það ekki alla söguna, áhugi á
myndlist almennt hafi einnig aukist til muna.
„Viðmót til myndlistar hefur verið að breytast,
það hefur farið frá því að fólk líti á myndlist
sem eitthvað sem maður einfaldlega skreytir
vegginn sinn með, til þess að vera eitthvað sem
hreyfir við manni, ögrar og víkkar sjóndeild-
arhringinn,“ útskýrir Íris og Börkur grípur
boltann á lofti: „Og það er náttúrlega einmitt
það sem drífur okkur áfram, krafturinn í
myndlistinni.“
Gallerí snúast fyrst og fremst
um listamanninn og verkin
Aðspurður segir Börkur traust vera lykilinn
að velgengni gallería. „Það er grundvall-
aratriði að ávinna sér traust viðskiptavina. Það
er gert með því að bjóða upp á verk eftir góða
og virta listamenn eins og við höfum getað
gert og eins með því að sýna fram á að stefna
gallerísins í vali á listaverkum sé skýr.“ Hann
áréttar þó að gallerí snúist fyrst og fremst um
listamenn. Það sé ekki síður mikilvægt að eiga
í góðum samskiptum við þá og gera þeim kleift
að sinna listinni með því að taka að sér ýmsa
umsýslu fyrir þá, hvetja þá og efla til dáða.
Að lokum upplýsir Börkur að um þessar
mundir séu þau mæðgin, ásamt öðru starfs-
fólki i8, að skoða ákveðin sóknarfæri. „Við höf-
um verið að velta því fyrir okkur að gera eitt-
hvað í Berlín,“ segir hann en ítrekar að það sé
einungis í skoðun. „Berlín er einn af þessum
stöðum þar sem mikið er að gerast í myndlist
og við teljum okkur eiga fullt erindi þangað.“
Morgunblaðið/Golli
Eigandi, starfsmenn og listamenn i8 Frá vinstri Hrafnkell Sigurðsson, Guðrún Einarsdóttir, Ragna Róbertsdóttir, Finnbogi Pétursson, Auður Jörundsdóttir, starfsmaður i8, Íris Stefánsdóttir
starfsmaður i8, Edda Jónsdóttir eigandi i8, Birgir Andrésson, Jóní Jónsdóttir, Börkur Arnarson eigandi i8, Eggert Pétursson, Sigrún Hrólfsdóttir og Eirún Sigurðardóttir. Þeir istamenn i8 sem
staddir eru erlendis eru þau Ólafur Elíasson, Hreinn Friðfinnsson, Gabríela Friðriksdóttir, Kristján Guðmundsson, Sigurður Guðmundsson, Roni Horn, Ragnar Kjartansson, Karin Sander,
Katrín Sigurðardóttir, Þór Vigfússon, Ívar Valgarðsson og Lawrence Weiner.
Sækja drifkraftinn í myndlistina
Mikið hefur kveðið að i8 frá
því að galleríið opnaði í nóv-
emberbyrjun 1995 og nú, ell-
efu árum síðar, eru sýningar
orðnar yfir níutíu talsins. Það
er því af nógu að taka í nýút-
kominni bók þar sem litið er
yfir farinn veg í starfseminni.
staðurstund
Joris Rademaker er annar
tveggja bæjarlistamanna Ak-
ureyrar þetta árið og hélt tvær
sýningar á dögunum. » 69
myndlist
Hámenning er orðin sameign
sem fólk leitar til í auknum
mæli sér til innri gleði, segir
Bragi Ásgeirsson. » 71
sjónspegill
Netverslunin Amazon.com hóf
fyrir helgi forsölu á síðustu
bókinni um Harry Potter sem
kemur úr 21. júlí. » 72
bækur
Sæbjörn Valdimarsson gagn-
rýnir kvikmyndina Dreamgirls,
sem tilnefnd er til fjölda Ósk-
arsverðlauna. » 73
dómur
Tónlistarmaðurinn Prince leikur
í hálfleik í úrslitaleik ameríska
fótboltans, Super Bowl, sem
fram fer í kvöld. » 74
tónlist