Morgunblaðið - 04.02.2007, Síða 71
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2007 71
Á
öllum sam-
anlögðum víg-
stöðvum sjónlista
var mikið um að
vera á liðnu ári,
pataldurinn ekki
minnstur í myndlist og arkitekt-
úr. Vígð voru fleiri listasöfn en
mér gat nokkru sinni dottið í hug
og ellefu þeirra athyglisverðustu
gerð nokkur skil í mynd og máli í
janúarhefti listtímaritsins art –
DAS KUNSTMAGASIN, Ham-
borg. Vel að merkja frá sjón-
armiði byggingarlistar, ekki því
hagnýta, þ.e. hvernig listaverk
muni njóta sín innan þeirra. Má
allt eins búast við öldu mótmæla
frá listamönnum líkt og í upphafi
þessarar safnabyggingaáráttu
sem hófst í Þýskalandi fyrir þó-
nokkrum áratugum. Listamenn
ásökuðu arkitekta fyrir að vera að
reisa minnismerki um sig sjálfa
frekar en hús yfir myndlist og
voru teknir á orðinu, sem kemur
helst fram í hinu viðamikla lista-
safni Kunstforum í Berlín, sem er
öðru fremur sniðið fyrir málverk.
En svo komið virðast arkitektar
aftur í innbyrðis stríði um frum-
legustu lausnirnar þannig að söfn-
in líta mörg hver út sem skúlp-
túrar í borgarlandslaginu,
augnayndi sem slík og til mikillar
prýði víðast hvar.
Það sem mesta athygli vakti á
myndlistarvettvangi var tangar-
sókn fortíðar inn í nútímann og
eftir að barrokkið hafði gengið í
endurnýjun lífdaga með aðstoð
tölvutækninnar, verið teygt og
togað á alla vegu, er röðin komin
að rókókótímabilinu og mun þá
mörgum módernistanum finnast
sem skörin hafi færst upp í bekk-
inn, að ekki sé fastar að orði kveð-
ið. En satt að segja er hér um
rétta og eðlilega þróun að ræða
því að þessi tímabil báru í sér svo
margt lífrænt sem nútímamað-
urinn, þjakaður af einsleitu kassa-
formi og naumhyggju, getur lært
af. Menn nefna þetta, póstmódern-
isma, sem er svífandi hugtak og
erfitt að festa hendur á, að sumu
leyti afsökun fyrir stefnubreytingu
eftir að hugarflugið hafði steytt á
skeri í tilbúnu hópefli og samhæf-
ingarþörf síðustu áratuga. Hefur
þó tekið aðra stefnu en höfundar
þess og áróðursmeistarar þess
hugðu í upphafi enda sækir lífið
hér á jörð, ekki frekar en í háloft-
unum, mögn sín hvorki í reglustik-
ur né kaldar reglugerðir. Má enn
einu sinni minnast þess að blóm
vaxa upp úr skít en ekki stein-
steypu. Þá sækir framsækið og
metnaðarfullt hugarflug eldsneyti
sitt og drift til lífsins sjálfs en
ekki í titla og doktorsgráður.
Það er smátt að upplýs-ingar um þessa þróun náiá skilvirkan og gagn-sæjan hátt til Íslands, og
þá helst í tónlist, bókmenntum og
arkitektúr, fólk er upptekið af efn-
islegri hlutum til að mynda mat-
vöru og sólarlandaferðum, að
ógleymdri pólitíkinni, því andlega
svifryki. Í öllu falli er alltof lítið
um lifandi samræðu og þá mikil
spurn hvað hinir mörgu og alvísu
fræðingar eru að bauka.
Ástundum léttir til í þok-unni eins og í Frétta-blaðinu á dögunum hvarbirtur var athyglis-
verður fyrirlestur sem Pétur Ár-
mannsson arkitekt flutti á mál-
þingi Skipulagsfræðingafélags
Íslands, Arkitektafélags Íslands,
Félags íslenskra landslagas-
arkitekta og umhverfisráðuneyt-
isins. Allt rétt sem hann segir, en
þesslags samræða er ekkert
einkamál viðkomandi samtaka á
lokuðum fundum og á skil-
yrðalaust að rata á opinberan
vettvang.
Fyrirlesturinn var á vel skilj-
anlegu máli og koma þá upp í hug-
ann lagnafréttir Sigurðar Grétars
Guðmundssonar í Fasteignablaði
Morgunblaðsins, sem eru bæði vel
skrifaðar og forvitnilegar til af-
lestrar, jafnvel af leikmönnum,
þótt ekki sé beinlínis hægt að
segja að lagnir séu augnakonfekt
né að um spennandi umfjöllunar-
efni sé að ræða. Minnist einkum
ævintýralegrar frásagnar hans af
ferlinu þá pumpað er niður á efstu
hæðum skýjakljúfsins undna í
Malmö, háttinn sem afurðir melt-
ingarfæranna renna eftir meist-
aralega hönnuðu kerfi niður píp-
urnar og skila sér áfram. Ekki
öllum gefið að geta fært faglegan
frásagnarhátt sinn í jafn skemmti-
legan búning, skeður oftar að
miklir sjónrænir hlutir eru gróm-
aðir af fagfólki með ófrjóum og
flóknum orðavaðli.
Ekki hef ég í augnablikinuhugmynd um hve mörglistasöfn hafa risið uppá síðasta ári, en þar
sem vikið var að ellefu þeim hug-
myndaríkustu má alveg gera ráð
fyrir að þau hafi verið nokkru
fleiri. Hér var svo barasta verið að
fjalla um listasöfn, sem er auðvit-
að einungis angi allra þeirra safna
sem upp rísa á ári hverju. Og
söfnin hafa risið upp fyrir þörf,
verið forgangsverkefni framsæk-
inna þjóðarheilda eins og ég hef
margendurtekið vikið að, hér um
þjónustu við almenning að ræða,
frjósaman menntunargrunn sem
hver og einn getur leitað til upp á
eigin spýtur, víkkað sjónhringinn
án nokkurra kvaða. Andstæða há-
tækninnar, þ.e. mjúku gildin og
hið háleita í tilverunni, hafa sótt
fram sem aldrei fyrr í sögunni,
þau eru ekki lengur séreign og
munaður hinna háu eins og fyrr á
öldum. Hámenningin orðin að
sameign sem fólk leitar til í sívax-
andi mæli sér til hollrar nautnar
og innri gleði. Hér komin mögnin
sem helst ber að rækta og hlúa að
vilji menn lifa lífinu lifandi en vera
síður þjónar stundargamansins og
þrælar vanans.
Næringarrík andleg fæða er
manninum ekki síður nauðsynleg
en líkamleg, kannski til muna mik-
ilvægari vegna þess að stöðugt
kemur betur í ljós að flestir sjúk-
dómar eiga upphaf sitt í sálinni …
Staðan 2006
Nicholas Grimshaw Þetta er einstaklega glæsilegur arkitektúr og alveg
óhætt að vera bjartsýnn á ljósflæði og mikið rými innanhúss. Arkitektinn
Nicholas Grimshaw hannaði bygginguna fyrir Caixa-tofnunina í La Coruna.
SJÓNSPEGILL
Bragi Ásgeirsson
Daniel Liebeskind Gæti verið vandamál að koma fyrir myndlistarverkum í þessu kristalformaða safni í Denver
sem hinn nafntogaði Daniel Liebeskind hannaði.
Sýnishorn úr söluskrá
Lögg. fasteignasali: Bergur Guðnason hdl.
Nánari upplýsingar veittar á skrifstofunni
ekki í síma eða á netinu.
Skráin á netinu: www.fyrirtaeki.is
Elsta fyrirtækjasalan á landinu.
1. Sumir segja að hann selji bestu kjúklingana í borginni.
Allar tegundir.
2. Lágvöruverslun, ódýrastur en samt með góða álagningu.
Framtíðarfyrirtæki.
3. Erum með mikið úrval af hársnyrtistofum.
Góðar, flottar stofur. Þekktar.
4. Sérhæft byggingarfyrirtæki. Góður hagnaður. Skoðaðu þetta.
5. Bónar og skúrar. Þrír bílar. Föst vaxandi viðskipti. Úti á landi.
6. Hún nuddar og snyrtir á faglegan og sérstakan hátt. Góðar tekjur.
Kennsla.
7. Dreyfing á matvælum. Fiskur. Margir viðskiptavinir.
Skemmtileg vinna.
8. Merkingar og prentun. Gott starf fyrir sjálfstæða. Allt til alls.
Kennsla.
9. Hjólbarðaverkstæði. Mikil vinna, mörg tækifæri til heilsársvinnu.
10. Glæsileg sólbaðstofa með Turbo bekkjum. Glæsileg stofa.
11. Sælgætisverslun á góðum stað á frábæru verði.
Góð kaup – loksins.
12. Skemmtistaður á Suðurnesjum sem opinn er um helgar og nóg
að gera.