Morgunblaðið - 06.05.2007, Síða 6
6 SUNNUDAGUR 6. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Róm hefur verið nefnd „borgin eilífa“. Sögulegar minjar Rómar, listræn
arfleifð og umhverfi endurspegla rætur og sögu vestrænnar menningar
í gegnum 2500 ár. Sæktu Róm heim og láttu heillast.
Leiðsögn er í höndum Ólafs Gíslasonar sem er sérfróður um sögustaði Rómar.
www.uu.is
hin forna Vikuferðir meðÓlafi Gíslasyni
12.–19. júní
og 7.–14. ágúst
ÚRVAL ÚTSÝN ~ LÁGMÚLA 4
108 REYKJAVÍK ~ SÍMI 585 4000
FAX 585 4065 ~ INFO@UU.IS
123.990 kr. á manní tvíbýli
Innifalið: Flug, flugvallaskattar, hótel með morgun-
verði, allar skoðunarferðir og íslensk fararstjórn.
Eftir Rósu Björk Brynjólfsdóttur
rosabjork@mbl.is
SAMSKIPTI Íslendinga og Frakka
eiga sér nokkuð langa sögu sem náði
líklegast hámarki í kringum skútu-
öldina þegar frönsku duggurnar
veiddu við Íslandsstrendur. Tengsl
milli landanna tveggja voru í blóma
frá miðri 19. öld fram á fyrstu ára-
tugi 20. aldarinnar en á því tímabili
settist franskur konsúll að í Reykja-
vík og spítalar voru reistir fyrir
franska sjómenn bæði á Fáskrúðs-
firði og í Reykjavík sem og kapellur.
Nöfn franskra sjómanna í allt of
mörgum grafreitum víða um land
bera þessari einstæðu sögu vitni.
Tengslin eru enn sterk á milli Frakk-
lands og Íslands. Hér búa tæplega
400 manns með franskt ríkisfang og
ef marka má kosningaúrslit í fyrri
umferð forsetakosninganna í Frakk-
landi virðist sem þeir Frakkar sem
hér búa séu nokkuð sér á báti. Gjör-
ólík kosningahegðun þeirra sem
hérna búa og þeirra sem búa í
Frakklandi sjálfu er að minnsta stór-
merkileg. Í fyrri umferð forseta-
kosninganna sem fram fór fyrir
tveimur vikum var niðurstaða at-
kvæðagreiðslunnar hér allt önnur en
úrslitin í Frakklandi. Samkvæmt
upplýsingum frá sendiráði Frakk-
lands á Íslandi hafa 104 einstakling-
ar sem hér búa rétt til að kjósa og í
fyrri umferð kusu 73 sem er 70,19%
en kosningaþáttaka í Frakklandi var
84,60%. Fylgi við frambjóðendur var
líka allt annað hér en úti. Flestir hér
á landi kusu sósíalistann Ségolène
Royal, eða fjörutíu og einn, næst-
flestir kusu Francois Bayrou, eða
átján manns, sjö kusu hægrimann-
inn Nicolas Sarkozy, fjórir kusu um-
hverfissinnann Dominique Voynet
og einn kaus þjóðernissinnann Jean-
Marie Le Pen, annar vinstrimanninn
Olivier Besancenot og einn José
Bové. Í kvöld safnast svo áhugafólk
um frönsk stjórnmál saman í hús-
næði Alliance Francaise í Reykjavík
til að fylgjast með því hvort næsti
forseti Frakklands verði Ségolène
Royal eða Nicolas Sarkozy. Það
verður ekki síður gaman að sjá hvort
kjósendur hér á landi kjósa að þessu
sinni á sama veg og landar þeirra í
Frakklandi. Blaðamaður Morgun-
blaðsins hitti nokkra franska ríkis-
borgara og komst að því að þeir hafa
ákveðnar skoðanir á frönskum
stjórnmálnum þrátt fyrir að langt sé
héðan til forsetahallarinnar í París.
Tæplega fjörutíu og fimm milljónir Frakka kjósa sér forseta í dag, 104 þeirra búa hér á landi
Önnur nið-
urstaða hér
Reuters
Öruggt tak Skoðanakannanir sýna að Nicolas Sarkozy er líklegur sig-
urvegari í forsetakosningunum í Frakklandi sem fara fram í dag.
FRANCOIS Louis Fons er kokkur
og fluttist til Íslands árið 1973.
Hann ólst upp í litlu þorpi rétt
hjá borginni Perpignan skammt
frá landamærum Frakklands og
Spánar. Sjálfur býr hann ásamt
fjölskyldu sinni í Hafnarfirði,
rekur veitingaþjónustu og fylgist
ágætlega með frönskum stjórn-
málum.
„Ég horfði að sjálfsögðu á sjón-
varpskappræður frambjóðend-
anna tveggja á miðvikudags-
kvöldið. Mér fannst Ségolène
Royal standa sig afar vel þar og í
raun kom frammistaða hennar
mér mjög á óvart,“ segir Franco-
is sem kaus ekki Royal í fyrri
umferðinni en ætlar að gera það í
seinni umferðinni.
„Flestir Frakkar sem ég þekki
hér á Íslandi ætli að kjósa Ségo-
lène Royal,“ segir Louis Fons en
síðustu skoðanakannanir, sem
birst hafa í frönskum fjölmiðlum,
gefa allar til kynna, að hægri-
maðurinn Nicolas Sarkozy muni
sigra og jafnvel með nokkrum yf-
irburðum, allt að 10 prósent-
ustigamun.
Francois Louis Fons: Royal góð.
Sarkozy of mikill harðlínumaður og rasisti
„MÉR hefur fundist vanta mál-
efnalega umræðu og útskýringar á
því hvað taki við eftir kosning-
arnar,“ segir Berthrand Jouanne
sem segir kosningabaráttuna í
Frakklandi ekki hafa verið spenn-
andi.
Hann hefur búið hér á landi í 16
ár og á íslenska eiginkonu og þrjú
börn. Hann heillaðist ungur af Ís-
landi og er í dag framkvæmda-
stjóri Ferðakompanísins sem sér-
hæfir sig í ferðum fyrir frönsku-
mælandi ferðamenn um Ísland.
„Frambjóðendur smáflokka töp-
uðu í fyrri umferðinni vegna áróð-
urs um að misnota ekki atkvæði
sitt. Það leiðir svo til þversagn-
arkenndra úrslita líkt og lítið fylgi
við þá sem lögðu áherslu á um-
hverfismál, þrátt fyrir mikla um-
ræðu um þau mál. Mér finnst sjálf-
um Royal ekki vera forsetaefni.
Hún hefur náð í gamla sósíalista
eins og Laurent Fabius sem er
ekki vænlegt vegna tengsla hans
við spillingarmál. Sarkozy er
meira forsetaefni en mér finnst
hann vera með hættulegar hug-
myndir um útlendinga. Þannig að
ég held að ég skili auðu á sunnu-
daginn,“
„Stjórnmálin orðin óspennandi leiksýning“
Berthrand Jouanne: Auður seðill?
„ÞETTA er miklu skemmtilegra nú
en árið 2002. Það voru einfaldlega
hræðilegar kosningar,“ segir Mar-
ion Herrera. Hún er frá Nice í Suð-
ur-Frakklandi en kom til Íslands
árið 1996 sem ferðamaður og hefur
búið hér síðan.
Marion starfar sem flugmaður
hjá Icelandair og er einleikari á
hörpu. Hefur hún tekið þátt í starf-
semi félagsskapar fyrir frönsku-
mælandi fólk á Íslandi, Association
des francophones en Islande, og
segir hún, að á þeim vettvangi ræði
fólk oft um stjórnmál, sérstaklega
þó að undanförnu.
Marion segist þó verða að við-
urkenna, að hún hafi ekki fylgst
mjög náið með kosningabaráttunni
í Frakklandi. Hún segir, að kannski
sé ástæðan sú, að hún hafi fyrir
löngu gert upp hug sinn til fram-
bjóðendanna tveggja. Hún er nefni-
lega staðráðin í að kjósa Ségolène
Royal líkt og hún gerði í fyrri um-
ferðinni.
„Ég styð hana af því hún er sósí-
alisti en ekki bara af því hún er
kona. En ég verð að bæta því við, að
það skemmir þó ekki fyrir,“ segir
Marion Herrera.
Er fyrir löngu búin að gera upp hug sinn
Marion Herrera: Kýs Royal.
STÉPHAN Aubergy fannst áhuga-
vert að sjá Ségolène Royal spreyta
sig í löngum sjónvarpskappræðum
og fannst hún standa sig ágæt-
lega.
„Sarkozy er hins vegar mjög
staðfastur,“ segir víninnflytjand-
inn frá Búrgúndí sem kom fyrst til
Íslands fyrir 12 árum. Hann kaus
hvorki Royal né Sarkozy í fyrri
umferðinni.
„Ég er mjög ánægður með það
litla fylgi, sem flokkar lengst til
vinstri eða hægri fengu í fyrri um-
ferðinni sem þýðir að fólk er að
leita að jafnvægi.“ Stéphan segir
gott gengi Francois Bayrou ekki
hafa komið sér á óvart. „Ég hélt
að hann fengi meira fylgi. En mik-
ið fylgi við Sarkozy kemur mér á
óvart,“ segir Stéphan sem finnst
Royal ekki alveg tilbúin í forseta-
embættið
„Mér finnst hún ekki nógu
örugg í efnahagsmálunum en það
væri gott fyrir Frakkland að fá
konu sem forseta. Mér finnst hins
vegar, að Nicolas Sarkozy hafi
ekki staðið sig mjög vel sem inn-
anríkisráðherra. En það að skila
auðu er valkostur en ekki alvöru
valkostur.“
Stéphane Aubergy: Jafnvægisleit.
Segir kjósendur hafa leitað að jafnvægi
„RAFIÐNAÐARMENN setja sér
það markmið að stytta vinnuvik-
una enn frekar á næstu árum
samfara því að verja áunnin
kjör,“ segir í samþykkt sextánda
þings Rafiðnaðarsambands Ís-
lands sem haldið var á dögunum.
Í afstöðu þingsins til helstu
þjóðfélagslegra verkefna næstu
misserin segir að rafiðnaðarmenn
hafi lagt á það sérstaka áherslu
að tryggja stöðugleika og sér-
staka hækkun lágmarkslauna.
Góður árangur á þessum vett-
vangi hafi leitt til mikillar stytt-
ingar vinnuvikunnar.
„Á því samningstímabili sem er
að líða hækkuðu lágmarkslaun
rafiðnaðarmanna um 47%. Vinnu-
vika rafiðnaðarmanna hefur á
undanförnum áratug styst um 10
tíma, þrátt fyrir það hafa heild-
arlaun vaxið og kaupmáttur launa
hefur vaxið samfellt. Þetta er
ávöxtur þess sem launamenn sáðu
til við gerð þjóðarsáttar.“
Bent er á í samþykkt þingsins
að mörg fyrirtæki hafi flutt úr
landi til svæða þar sem kjör og
réttindi eru margfalt lakari en
hér. „Það er óviðunandi að ís-
lensk stjórnvöld geri fríverzlun-
arsamninga við ríki sem ekki við-
urkenna grundvallarmann-
réttindi. Rafiðnaðarmenn gera
kröfu um að þau lönd sem Ísland
gerir viðskiptasamninga við upp-
fylli allar átta grundvallarsam-
þykktir Alþjóðavinnumálastofn-
unarinnar.“
Ræða kosti og
galla ESB-aðildar
Rafiðnaðarmenn telja að ræða
eigi kosti og galla aðildar að Evr-
ópusambandinu „með dýpri, víð-
ari og skilmerkari hætti en nú er
gert. Talið er að kostnaður við
ESB-aðild Íslands sé um 5 millj-
arðar króna á ári. Slíkar
greiðslur, auk þess sem varið er
til að vernda krónuna, eru ekki
háar í samanburði við þann
kostnað sem er af háu vaxtastigi
hérlendis og miklum vaxtamun
gagnvart nágrannaþjóðunum,
sem heimilin þurfa að greiða.“
Á þinginu var lögð áhersla á
starfsmenntamál rafiðnaðar-
manna og var m.a. samþykkt að
auka eigi rekstur Rafiðnaðarskól-
ans svo hann verði betur í stakk
búinn að mæta ógnunum og tæki-
færum á næstu árum. Skólinn
þarf að mati RSÍ að bjóða upp á
fjölbreyttari námskeið með fjöl-
breyttari tímasetningum og huga
þarf að stuttum námskeiðum t.d.
út um land.
Vinnuvikan verði stytt
og áunnin kjör varin