Morgunblaðið - 06.05.2007, Page 8
8 SUNNUDAGUR 6. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Skógarhlíð 18 – 105 Reykjavík – sími 591 9000
Akureyri – sími 461 1099 • Hafnarfirði – sími 510 9500
www.terranova.is
Costa Dorada ströndin, sem skartar fremstum bæjunum Salou og
Pineda, hefur notið mikilla vinsælda vegna mikils fjölbreytileika
svæðisins, en þar ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Þú bók-
ar flugsæti og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir.
Góð gisting í boði á þessu tilboði. Hér eru margra kílómetra langar
aðgrunnar strendur, hótelgisting sem hentar jafnt fjölskyldufólki
sem öðrum, úrval afþreyingar, blómstrandi menning og frábært
skemmtanalíf.
Súpersól til
Salou
20. maí
frá kr. 39.990
- SPENNANDI VALKOSTUR
kr. 39.990 í 5 nætur/kr. 49.990 í 12 nætur
Netverð á mann, m.v. 2-4, í íbúð með einu svefnherbergi, 20. maí í 5
eða 12 nætur.
5 eða 12 nætur - góð gisting!
„Vaki nú yfir og allt um kring“ og „Drottinn blessi heimilið“ kannski orðið úrelt bænakvak?
VEÐUR
Eins og fram hefur komið í Morg-unblaðinu gafst hin svonefnda
yfirtökunefnd upp á því verkefni
sínu að kanna, hvort viðskiptin með
hlutabréf í Glitni á dögunum gæfu
tilefni til að skylda þá, sem þar áttu
viðskipti, til að gera öllum öðrum
hluthöfum tilboð í þeirra bréf.
Ástæðan varmjög einföld.
Þeir sem hlut
áttu að máli
hundsuðu ein-
faldlega óskir
nefndarinnar um
upplýsingar.
Þessi uppgjöf
nefndarinnar
sýnir að hún er
gagnslaus og sá grunnur, sem hún
byggir á, skiptir engu máli.
Þrátt fyrir þennan augljósa veru-leika segir Viðar Matthíasson,
formaður nefndarinnar, í samtali
við Morgunblaðið í gær:
„Ég held að menn eigi að reyna
til þrautar að tryggja upplýsinga-
gjöf til nefndarinnar af fúsum og
frjálsum vilja, þ.e. að markaðs-
aðilar veiti þær upplýsingar í sam-
ræmi við þær forsendur, sem lágu
að baki stofnun nefndarinnar.“
Þetta er mikil bjartsýni og meirien hægt er að leyfa sér af þessu
tilefni.
Í langflestum löndum í okkarheimshluta eru lagaákvæði, sem
eiga að tryggja rétt annarra hlut-
hafa ef einn aðili eða skyldir aðilar
eignast svo stóran hlut í almenn-
ingshlutafélagi að þeir geta aug-
ljóslega vegna dreifingar hluta og
atkvæða ráðið félagi í skjóli minni
hluta eignar.
Slík ákvæði eru í lögum hér ognáðust fram eftir umtalsverða
baráttu. Nú er augljóslega verið að
hafa þau að engu. Ætlar Jón Sig-
urðsson viðskiptaráðherra að sitja
þegjandi hjá?
STAKSTEINAR
Viðar Matthíasson
Til þrautar?
SIGMUND
!
"#
$%&
'
(
)
'
* +,
-
%
.
/
*,
!
01
0
2
31,
1 ),
40
$
5 '67
8 3#'
"
"
##
##
$ %% ##&
!
9
)#:;< %%
! "
# $%&'
) ##: )
'(
)
%
%(
%
! *
=1 = =1 = =1
'! ) # %+ #&,%- #
=6
.
)% /%' 0&&%
%#!
#
# #&%#%$ ##
### #&/%1 %% %% /
7
1)%#
)%
% 0 % /
'
%
% %%
%()
% % #&
/
1 %% %% 2%#%(
%#)
0 %#
#/
:
! 1
.
% %#
# %% %
0&& %%.
3%%4 #&2
#% (
%
% %
( # /
1 %% %% 2%
%%'53 #&/
60 %%77 # % %5
%+ #&
2&34>3
>)=4?@A
)B-.A=4?@A
+4C/B(-A
2
2
/ / 8/ 8/ / /
/
/
2
28
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Dögg Pálsdóttir | 4. maí 2007
Jöfn foreldra-
ábyrgð
Það er bjargföst skoð-
un mín að eitt mikil-
vægasta jafnrétt-
ismálið sé að jafna
foreldraábyrgð, án til-
lits til þess hvort for-
eldrar búa saman eða
ekki.
Ég tel að umgengni barns og þess
foreldris sem barnið býr ekki hjá
eigi að vera sem jöfnust enda leyfi
búseta foreldranna það.
Meira: doggpals.blog.is
Katrín Anna Guðmundsdóttir | 4. maí
Megrunarlaus dagur
Á þessum degi eru allir
hvattir til þess að láta
af viðleitni sinni til
þess að grennast, þó
ekki væri nema í einn
dag, og leyfa sér að
upplifa fegurð og fjöl-
breytileika mismunandi líkams-
vaxtar og sjá fyrir sér veröld þar
sem megrun er ekki til, þar sem
hvers kyns líkamsvöxtur getur verið
tákn um hreysti og fegurð og mis-
munun vegna holdafars þekkist
ekki.
Meira: hugsadu.blog.is
Árelía Eydís Guðmundsdóttir | 4. maí
Valkyrjur
Var á Valkyrjukvöldi í
Keflavík í gær með
framsóknarkonum.
Það er alltaf jafn-
skemmtilegt að koma
í minn heimabæ. Það
var mikil stemning í
hópnum og við hlógum, ræddum
saman um pólitík og annað og
skemmtum okkur hið besta. Nú er
vika í kosningar og við framsókn-
armenn og -konur þurfum að taka
á honum stóra okkar hér í borg-
inni.
Meira: areliaeydis.blog.is
Guðmundur Magnússon | 4. maí 2007
Útgefandinn
Það er fróðlegt viðtal
við fjölmiðlakónginn
Rupert Murdoch í vef-
útgáfu New York Tim-
es í dag. Þar segir
hann skoðun sína á
hinu áhrifamikla
bandaríska viðskiptadagblaði, Wall
Street Journal. Hann er daglegur
lesandi og hefur sem slíkur sínar
meiningar um einstök atriði í efn-
istökum ritstjórnar.
En ummæli Murdochs verða líka
lesin í ljósi þess að fyrir nokkrum
dögum gerði hann tilboð í blaðið.
Hann bauðst til að kaupa útgáfufyr-
irtækið sem er umsvifamikið á ýms-
um sviðum í fjármálaþjónustu og
viðskiptafréttum vestanhafs. Fyrir-
tækið er í eigu Bancroft-fjölskyld-
unnar. Fulltrúi hennar hafnaði boð-
inu samstundis með þeim orðum að
Wall Street Journal mundi setja nið-
ur ef Murdoch eignaðist það. Mur-
doch á margra fjölmiðla víðs vegar
um heim, meðal annars götublaðið
Sun í London, það virðulega enska
blað Times og Fox-sjónvarpsstöð-
ina, svo nokkuð sé nefnt.
Fréttaskýrendur eru margir
þeirrar skoðunar að Murdoch muni
á endanum eignast Wall Street
Journal. Eigendur séu með við-
brögðum sínum bara að biðja um
hærra tilboð.
Murdoch hefur orð á sér fyrir
mikil afskipti af fjölmiðlum sínum.
Ekki ætla ég að mæla því bót að út-
gefendur vanvirði sjálfstæði rit-
stjórna sinna. Á dagblaði þurfa til
dæmis að vera skýrar línur á milli
útgefandans og ritstjórans. En hitt
er ekki uppörvandi þegar útgefandi
vísar allri ábyrgð á fjölmiðlum sín-
um til ritstjóra og fréttastjóra. Út-
gefandi hlýtur að marka stefnuna
um það hvers konar fjölmiðil hann
vill reka. Lifandi áhugi Murdochs á
miðlum sínum er að því leyti hróss
verður.
Þegar ég starfaði á DV fyrir rúm-
um áratug fékk ég nokkurs konar
erindisbréf frá þáverandi útgef-
endum og eigendum blaðsins, Herði
Einarssyni og Sveini R. Eyjólfssyni.
Þar var skilgreint fyrir hvað blaðið
stæði. Það þótti mér til fyrirmyndar.
Dagblöð þurfa á góðum ritstjórum
að halda. En það er ekki síður mikil-
vægt að þau hafi góða og metnaðar-
fulla útgefendur.
Meira: gudmundurmagnusson.blog.is
BLOG.IS