Morgunblaðið - 06.05.2007, Qupperneq 38
myndasögur
38 SUNNUDAGUR 6. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Félag um lýðheilsu
boðar til morgunfundar 7. maí nk. í aðdraganda kosninga.
Fundur um nýlega skýrslu forsætisráðherra um samræmdar aðgerðir til að efla lýðheilsu á Íslandi.
Dagskrá:
08:30 Fundur settur
Þorgrímur Þráinsson, formaður faghópsins, kynnir efni skýrslunnar
08:40 Hvaða fjórar af megintillögum faghópsins vil ég og minn flokkur leggja
áherslu á? Stutt erindi Ástu R. Jóhannesdóttur (S), Ástu Möller (D),
Guðfríðar Lilju Grétarsdóttur (V), Guðrúnar Þóru Hjaltadóttur (F),
Margrétar Sverrisdóttur (O) og Sæunnar Stefánsdóttur (B).
09:30 Umræður og spurningar.
Fundarstjóri er Geir Gunnlaugsson, formaður Félags um lýðheilsu.
Staður og stund í Háskólanum í Reykjavík, stofu 201,
mánudaginn 7. maí 2007 kl 08:30-10:00.
Allt áhugafólk um lýðheilsu velkomið!
Teiknimyndasaga JónsKristjáns Kristinssonarbar sigur úr býtum ímyndasögusamkeppni DR
(Danmarks Radio) á netinu ásamt
tveimur öðrum sögum. Jón Kristján
sendi inn fjórar sögur og komst í
topp tíu eftir vinsældakosningu.
Dómnefnd valdi síðan sigursög-
urnar þrjár.
„Mjög gaman að þessu,“ segir
sigurvegarinn ánægður. „Þetta var
úrvalsdómnefnd sem valdi sög-
urnar,“ segir hann og ekki skemmir
að verðlaunin voru peningar, 5.000
danskar krónur eða um 60.000 ís-
lenskar. Dómnefndin var meðal
annars skipuð Anders Morgentaler,
sem margir ættu að kannast við en
hann er þekktur fyrir teiknimynda-
sögur sem hann vinnur með Mikael
Wulff og birtast í Politiken og á vef
þeirra www.wulffmorgenthaler.com.
Verðlaunamyndasagan er hluti af
seríu sem ber nafnið Heimilisfræði,
sem er réttnefni því sögurnar per-
sónugera hluti sem er að finna á
flestum heimilum. Í sigursögunni er
til dæmis sagt frá ævintýrum
brauðristar og í annarri kemst fata-
skápur í hann krappan.
Byrjaði með ljósaperu
„Ég byrjaði á þessum myndasög-
um fyrir tveimur, þremur árum. Ég
er hálfpartinn hættur að teikna þær
núna og er að snúa mér að öðrum
verkefnum. Þetta byrjaði með ljósa-
peru sem labbaði um og brotnaði
alltaf. Hún var aðalpersónan og síð-
an vatt þetta upp á sig.“
Það er vel við hæfi að birta viðtal
við Jón Kristján í dag, á 22 ára af-
mælisdegi hans, og einnig vegna al-
þjóðlegs dags ókeypis myndasagna,
Free Comic Book Day, sem haldinn
var hátíðlegur í gær. Jón Kristján
segist alla tíð hafa haft áhuga á
myndasögum.
„Ég las Andrés Önd þegar ég var
lítill og hafði rosalega gaman af.
Það var byrjunin en uppfrá því þró-
aðist þetta. Heimilisfræði-
myndasögurnar sækja hinsvegar
innblástur til danska myndasögu-
höfundarins Storm P. Ég kynntist
honum þegar ég var lítill og fannst
hann mjög skemmtilegur,“ segir
hann. Storm P hét fullu nafni Ro-
bert Storm Petersen, var uppi
1882–1949 og naut mikilla vinsælda
í heimalandi sínu.
Enginn texti
Enginn texti er í myndasögum
Jóns Kristjáns enda er hann alveg
óþarfur. En skyldi það gera honum
erfiðara fyrir?
„Í nútímamyndasögum er gjarn-
an texti og mikið handrit og það er
vissulega auðveldara að skrifa eitt-
hvað ef maður vill koma ákveðnum
punkti á framfæri. Í myndasögu
sem ég gerði einna fyrst þurfti ég
að láta ljósaperuna kalla og vissi
ekki hvernig ég ætti að leysa það.
Þá skrifaði ég litla blöðru með upp-
Í Danmörku Jón Kristján, myndasöguhöfundur með meiru, er búsettur í
Kaupmannahöfn þar sem hann hefur verið í um tvö ár og líkar mjög vel.
Handlaginn
heimilisfræðingur
Jón Kristján Krist-
insson hefur lag á því
að segja skemmtilega
sögu í örfáum mynda-
römmum. Þessi Kaup-
mannahafnarbúi og af-
mælisbarn dagsins
fékk nýverið verðlaun í
teiknimyndasamkeppni
DR fyrir myndasögu
um brauðrist. Inga Rún
Sigurðardóttir ræddi
við hann um mynda-
sögur og líf og störf í
Danaveldi.
Líflegt og skemmtilegt Jón Kristján fæst einnig við það að teikna
myndir en þessar tvær eru höfundarverk hans.
Fyndni til sigurs Þessar tvær myndasögur eru báðar úr röðinni Heim-
ilisfræði en sagan um brauðristina í sundlaugarheimsókn er sú sem vann
til verðlauna í samkeppni DR (Danmarks Radio) á netinu.