Morgunblaðið - 06.05.2007, Side 67
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. MAÍ 2007 67
KVÓTAKERFINU var, illu heilli,
komið á fyrir um 24 árum. Yfirlýstur
tilgangur þess var að vernda fiski-
stofnana og tryggja byggðir við
sjávarsíðuna.
Skemmst er frá því
að segja að hvorugt
markmiðið hefur
náðst. Vegna kvóta-
kerfisins er þorsk-
stofninn ekki svipur
hjá sjón og margar
byggðir eiga í vök að verjast. Þrátt
fyrir að fiskverð hafi margfaldast að
raungildi hafa skuldir sjávarútvegs-
ins aukist með enn risavaxnari
skrefum. Þannig hafa skuldir sjáv-
arútvegsins aukist um 350% á tíu ár-
um þótt umsetningin sé nánast sú
sama. Eina leið stjórnvalda til að
taka á brottkasti og sóun í kvóta-
kerfinu er að setja upp rándýrt en
gagnslaust eftirlitskerfi og refsa
þeim sem eru svo heiðarlegir að við-
urkenna brot sín. Þrátt fyrir þetta
augljósa árangursleysi hefur verið
haldið áfram á sömu braut. Ekki hef
ég getað varist þeirri hugsun að
raunverulegur tilgangur þeirra er
réðu för hafi verið sá að koma á léns-
skipulagi í sjávarútvegi. Eða eigum
við kannski að trúa því að það sé
hrein tilviljun að guðfaðir kvótakerf-
isins hafi komið þeim breytingum á
að „sameign þjóðarinnar“ erfðist og
hann yrði þannig sjálfur lénsherra í
fyllingu tímans? Óvenju lítið fer þó
fyrir umræðu um sjávarútvegsmál
þótt sá atvinnuvegur skili enn meira
en helmingi þjóðartekna okkar Ís-
lendinga. Ekki er öll sú umræða
frumleg enda hafa allir flokkar að
undanskildum Frjálslynda flokknum
gefist upp fyrir þeirri sögulegu
nauðsyn að brjótast út úr kerfinu.
Þessa dagana eru flokkarnir í óða-
önn að viðra fjaðrirnar fyrir kjós-
endum. Sumir flokkarnir reyna, að
því er virðist, fremur af vilja en
mætti að hafa skoðun á öllum mál-
um, s.s. sjávarútvegsmálum. Jafnvel
Vinstri grænir eru þar engin und-
antekning. Kosningaloforð þeirra í
sjávarútvegsmálum er að gera upp-
tæk í ríkissjóð 5% af leigukvóta.
Þetta myndi draga úr framboði
leigukvóta og hækka hann til muna.
Hagsmunir okkar leiguliðanna eru
þeir, að meðan við þurfum að búa við
þetta kerfi sé nægt magn kvóta til
leigu og á skikkanlegu verði. Í dag
þurfum við að borga 7 krónur af
hverjum 10 til kvótagreifanna. Af
þessum 30% sem eftir eru þurfum
við að greiða allan útgerðarkostnað.
Af þessu má sjá að þetta forrétt-
indakerfi hefur ekki skapað okkur
neitt sældarlíf. Ef Vinstri grænir
gefa sig út fyrir vera flokkur jafn-
aðar, þá heggur sá er hlífa skyldi,
því tillögur þeirra miða að því að
auka á þjáningar okkar leiguliðanna
og skaða byggðirnar. Leiguliðar, oft
var þörf en nú er nauðsyn. Upp-
lýsum vini og vandamenn. Kjósum F
fyrir frelsi 12. maí.
Leiguliðar
athugið
Eftir Ólaf R. Sigurðsson
Höfundur er skipstjóri.
www.heimili.is
Finnbogi Hilmarsson,
Einar Guðmundsson og
Bogi Pétursson
löggiltir fasteignasalar
LAUGARNESVEGUR 104
OPIÐ HÚS Í DAG
Opið mán.- fös. frá kl. 9-17
Sími
530 6500
Glæsileg um 124 fm 4ra herb. íbúð á 2. hæð í góðu fjölbýli.
Rúmgóð stofa og þrjú stór herbergi. Uppgert eldhús og allt
nýtt á baði. Hús nýlega viðgert og málað.
Aukaherbergi ásamt geymslu í kjallara. V. 25,9 m.
Róbert og Díana taka vel á móti gestum frá kl. 15-17 í dag.
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur
og lögg. fasteignasali
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
GRÍMSSTAÐIR - MÚLABYGGÐ
Vorum að fá í einkasölu fjögur sumarhús í landi
Grímsstaða ( Múlabyggð ) í Borgarbyggð. Um er
að ræða tvö 44,4 fm sumarhús, m/ tveimur
svefnh. og svefnlofti, tvö 50,5 fm sumarhús m/
þremur svefnh. Húsin eru geysilega vel staðsett
á fallegri lóð.undir Grímsstaðarmúla, ca. klukku-
stundar akstur frá Reykjavík. Húsin eru byggð
1984 og 89. Húsin standa á 40.000 fm leigulóð
möguleiki að fá lóð keypta. Húsunum fylgir stór
verönd og heitur pottur. Verð 10.9 og 11.9 millj.
Traust þjónusta í 30 ár
MÝRARKOT - SUMARHÚS
Fallegt 50 fm sumarhús á 8.000 fm eignarlóð á
fallegum stað í landi Mýrarkots rétt við
Hraunborgir og Kiðjaberg. Í húsinu eru tvö svefn-
herbergi, Baðherbergi með sturtu, eldhús og
björt stofa. Gesthús með svefnplássi fyrir tvo.
Stór timburverönd. Lóðin er falleg með miklum
gróðri. Bústaðurinn selst með öllu innbúi.
Verð 11,5 milljónir.
HAFNARSKÓGUR - SUMARHÚS
Sumarhúsið skilast fullbúið að utan en tilbúinn til
tréverks að innan með 80 fm sólpalli. Innan
hússins er gert ráð fyrir tveimur svefnher-
bergjum, baðherbergi, eldhúsi og stofu samtals
um 68 fm, auk 30 fm svefnlofts. Möguleiki að
setja lóð upp í.
Áhv. 7 m. Verð 12,8 millj.
HEKLUBYGGÐ - SUMARHÚS
Vorum að fá í sölu fallegan 87 fm sumarbústað á
1,8 h eignarlóð í landi Svinhaga í Heklubyggð.
Húsið afhendist fullbúið að utan og lóð í því
ástandi sem hún er í í dag. Að innan afhendist
húsið fokhelt. Húsið er byggt á steyptri plötu.
Rafmagn og kalt vatn við lóðarmörk. Húsið er til
afhendingar strax
Verð 10,5 millj.
HVAMMSKÓGUR - SKORRADAL
Vorum að fá í einkasölu 3.400 fm fallega vel
staðsetta lóð í Hvammsskógi í Skorradalshreppi.
Lóðin er vel staðsett með glæsilegu útsýni og fal-
legum trjágróðri
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu Gimli.
ÖNDVERÐARNES
Sumarhús í landi Öndverðarness sem verið er að
byggja. Bústaðurinn er í landi Múrarafélagsins
og þar er þjónustumiðstöð og Golfvöllur. Húsið er
á steyptum sökkli og verður húsið afhent fullfrá-
gengið að utan og plastaður að innan. Grunnfl. er
83.fm og svefnloft sem er með 38 fm gólfrými. Hiti
er kominn í gólf og verður fullfrágengin verönd.
Inntök hitaveitu og rafmagns eru komin. Myndir
eru af bústaðnum í byggingu og síðan mynd sem
sýnir samskonar bústað fullbúinn.
HÆÐARENDI - LÓÐ
Vel staðsett sumarhúsalóð í Grimsnes og
Grafningshreppi. Lóðin er 10.150 fm að stærð,
hægt er að byggja tvö hús á lóðinni. Heitt og kalt
vatn komið að lóðarmörkum. Verð 7,5 millj.
HVERAGERÐI
Sumarhús Hjallakrókur Ölfusi
Til sölu nýlegt hús á fallegum stað skammt frá
Hveragerði. Eignin skiptist í góða stofu, tvö
svefnherbergi, svefnloft, eldhús og baðherbergi.
Verönd á tvo vegu og útsýni yfir allt Ölfusið.
Eignarland 3.300 fm.
Verð 13,8 millj.
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
Sveinbjörn Grétar Gísli Rafn Ellert Bragi
s: 892-2916 s 696-1126 s: 893-8323 s: 661-1121
OPIÐ HÚS - FÍFUSEL 25
Fallegt og mikið endurnýjað 200 fm endaraðhús innst í húsagötu ásamt góðu
stæði í bílageymslu. Rétt fyrir neðan húsið er barnvænt, opið svæði með bolta-
leikvelli o.fl. Verð 37,9 m.
Birgir og Erla taka á móti gestum í dag, sunnudag milli kl. 14 og 15.
Fallegt 137,8 fm raðhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr.
Húsið skiptist í forstofu, tvö barnaherbergi, eldhús, stofur, hjóna-
herbergi, baðherbergi, sjónvarpshol, þvherb. og innb. bílskúr. Stór
verönd og garður sólarmegin við opið svæði. V. 39,7 m. 6570
Hér er gott að búa. EIGNIN VERÐUR TIL SÝNIS Í DAG
(SUNNUDAG) FRÁ KL. 15-16.
Óttar og Hlín taka vel á móti ykkur.
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
OPIÐ HÚS REYRENGI 34 RAÐH. Á 1.H.
Fréttir
í tölvupósti
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
mbl.is
smáauglýsingar