Morgunblaðið - 06.05.2007, Qupperneq 69
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. MAÍ 2007 69
Frá því Ómar Ragnarsson, hinn
ástsæli skemmtikraftur og sjón-
varpsmaður, „kom út úr skápnum“
og ákvað að beina öllum sínum kröft-
um í þágu íslenskrar náttúru, svo
ekki sé nú talað um að skipta sér af
þjóðmálum almennt,
höfum við orðið vitni
að ótrúlegum við-
brögðum gegn þess-
ari ákvörðun hans.
Hvað er þessi góði
maður að skipta sér
af pólitík? Ómar sem
hefur staðið sig svo vel og unnið
ómetanlegt starf fyrir þjóðina sem
frétta- og þáttagerðarmaður. Hann
sem hefur vakið athygli á svo mörgu
sem oft vill gleymast og sýnt okkur
myndir af einstæðri náttúru. Af
hverju gat hann bara ekki haldið
þessu áfram án þess að „óhreinka"
sig í pólitík? spyr fólk. Auðvitað
svarar Ómar þessu best sjálfur og
hann hefur gert það. Ég var með for-
dóma um Ómar, að vísu mjög já-
kvæða, ég sá hann ekki fyrir mér
sem stjórnmálamann.
Nú hefur þjóðin orðið vitni að því
að Ómar er miklu meira en óháður
fréttamaður og skemmtikraftur.
Hann er ótrúlega næmur á allt sem
skiptir okkur máli. Sjálfur hef ég
verið þess aðnjótandi að kynnst hon-
um í starfi með Íslandshreyfingunni.
Ég er ósvikinn af þeim kynnum og
sífellt kemur Ómar mér á óvart með
yfirgripsmikilli þekkingu og mann-
kærleika. Kynnin staðfesta svo ekki
verður um villst að drifkraftur þessa
manns og allt hans starf innan hreyf-
ingarinnar er vel ígrundað og bygg-
ist á hugsjónum um nauðsyn þess að
bjarga Íslandi frá eyðileggingu af
mannavöldum og um betra mannlíf í
öllum landshlutum. Ef fleiri stjórn-
málamenn tileinkuðu sér viðhorf og
vinnubrögð Ómars væri pólitíkin vit-
rænni og skemmtilegri en raun ber
vitni.
Stóriðjudraugurinn
Það voru fleiri en Ómar sem gerðu
sér grein fyrir því að umhverfismál á
Íslandi eru í sjálfheldu, en til að fá
þar einhverju breytt yrði að stofna
stjórnmálaflokk með þau mál í fyr-
irrúmi. Sá flokkur yrði að sækja fylgi
sitt inn í raðir þeirra sem kenna sig
við miðju og til hægri. Þessi flokkur
er Íslandshreyfingin – lifandi land.
Kannanir benda til þess að um
60% þjóðarinnar séu mótfallin meng-
andi stóriðju með tilheyrandi land-
spjöllum. Þrátt fyrir vilja fólks nær
þetta viðhorf þó ekki í gegn hjá starf-
andi stjórnmálaflokkum nema hjá
Vinstri grænum. Sá flokkur virðist á
húrrandi uppleið, en hugmyndafræði
þeirra mun takmarka fylgi þeirra og
þeir munu ekki geta kveðið stór-
iðjudrauginn niður einir á báti.
Eins og dæmin sanna er öðrum
flokkum á þingi ekki treystandi í
þessum málum. Fólk með ýmsar
stjórnmálaskoðanir hefur lagt mikið
á sig til að koma vitinu fyrir þing-
menn og verið óþreytandi að benda á
hversu arfavitlaus stóriðjustefnan
er, hvort sem litið er til nátt-
úruspjalla eða efnahags- og fé-
lagslegra þátta.
Að öðrum ólöstuðum kemst þó
enginn með tærnar þar sem Ómar
hefur hælana í þessari baráttu. Eng-
inn hefur lagt eins mikið undir og
það hefur hann gert á eins óeig-
ingjarnan hátt og hægt er að hugsa
sér. Það virðist hins vegar vera sama
hversu góð rökin eru, áfram skal
valtað yfir sérfræðiálit og heitar til-
finningar fólks. Þannig vinnubrögð-
um verður að breyta á Alþingi og það
skal vera hægt.
Ekki eins máls flokkur
Sem stjórnarmaður hjá Íslands-
hreyfingunni get ég fullvissað kjós-
endur um að mikil vinna hefur verið
lögð í að skapa raunhæfa stefnu þar
sem sérstök áhersla er lögð á frelsi
til athafna og að skapa umgjörð fyrir
einstök byggðarlög til að þau geti
eflst á eigin forsendum. Við ætlum
ekki að ákveða hvar hver skal búa og
við hvað hver starfar, en frjór er
frjáls maður og við viljum tryggja að
fólk geti búið með reisn hvar sem er
á landinu. Til þess þarf fólk að geta
sótt nauðsynlega þjónustu á auð-
veldan hátt og þar dugar ekkert
minna en stórátak í samgöngu-
málum. Fjarskiptamálum þarf einn-
ig að koma í viðunandi horf. Jöfnun
búsetuskilyrða er hagur allra.
Þá viljum við losa um ýmsa fjötra,
t.d. opna glugga (gera litla rifu
framhjá kvótakerfinu umdeilda) til
þess að fólk geti róið til fiskjar án
þess að greiða milljónir fyrir fisk-
veiðiheimildir. Mörkin þar yrðu smá-
bátar undir 6 tonnum með hámark 2
handfærarúllur. Sumarveiði á slík-
um bátum myndi gjörbreyta bæj-
arlífi víða um land. Afli yrði langt
innan vikmarka þess sem Hafró gef-
ur sér þegar veiðiheimildir kvóta-
skipa eru ákveðnar og ætti því ekki
að hafa áhrif á þær heimildir. Þá
þyrfti einnig að losa um fjötra sem
torvelda fólki aðkomu í hefðbundinn
búskap. Æska og elli verða ekki af-
gangsstærðir hjá okkur. Við höfum
ekki gleymt því hverjir komu þjóð-
inni yfir erfiðustu hjallana og við vit-
um hverra er framtíðin.
Ómar stendur ekki einn
Til forystu og á framboðslista hjá
Íslandshreyfingunni hefur valist ein-
stakur hópur hugsjónafólks sem
stendur þétt saman. Þessi hópur býr
yfir víðtækri þekkingu og reynslu á
ýmsum sviðum og hefur tekið
ábyrga afstöðu í helstu málaflokkum
sem skipta þjóðina máli.
Endilega, kíkið inn á heimasíðu
okkar www.islandshreyfingin.is og
kynnið ykkur stefnumál og glæsilega
framboðslista. Svo er bara að kjósa
karlinn og hans ágæta fólk, hann á
það skilið og það sem meira er um
vert, landið og þjóðin þurfa svo sann-
arlega á þessum kröftum að halda.
Hvað vill Ómar upp á dekk?
Eftir Snorra Sigurjónsson
Höfundur er lögreglufulltrúi og
í stjórn Íslandshreyfingarinnar.
Laugavegi 170, 2. hæð.
Opið virka daga kl. 8-17.
Sími 552 1400 ● Fax 552 1405
www.fold.is ● fold@fold.is
Þjónustusími eftir lokun er 694 1401.
SUMARHÚS
Í ÞINGVALLAÞJÓÐGARÐI
Höfum til sölumeðferðar 59,3 m² sumarhús á einstökum stað í landi Gjá-
bakka við Þingvallavatn. Bústaðurinn stendur fjarri öðrum sumarhúsum og
verður ekkert byggt nærri honum. Frábært útsýni er til allra átta, mikil fjalla-
sýn og útsýni yfir vatnið. Bústaðurinn er innan Þingvallaþjóðgarðs sem hef-
ur verið á Heimsminjaskrá frá árinu 2004. 7612
Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofunni
NORÐURBAKKI 23 -25
HAFNARFIRÐI
Sýningartími mán. & fimmtud. milli kl. 5 og 6
Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali
Glæsilegar íbúðir við sjávarsíðuna í Hafnarfirði.
Húsið er teiknað af Birni Ólafs arkitekt.
LANGALÍNA 10-14
GARÐABÆ
Fallegar íbúðir í þremur húsum á sjávarlóð í Sjálandi. Húsið er
hannað af Birni Jóhannessyni. Lyfta er í húsunum frá bílakjallara
og upp í íbúðirnar. Glæsilegt útsýni.
BJALLAVAÐ
NORÐLINGAHOLTI
Sýningartími þriðjud. & fimmtud. milli kl. 5 og 6
Glæsilegar 2ja, 3ja og 4ra
herbergja íbúðir í einkasölu.
Allar íbúðirnar eru fullbúnar,
án gólfefna og til
afhendingar strax.
Efsta hæðin er inndregin og
með stórum svölum og
glæsilegu útsýni til
Bjáfjalla, Esjunnar,
Rauðavatns og víðar.
Í næsta nágrenni er ósnortin
friðuð náttúra með fallegum
gönguleiðum.
Sýningaríbúð er parket- og
flísalögð og með húsgögnum
sjá nánar á heimasíðu
Eignamiðlunar,
eignamidlun.is
Byggingarmeistari:
Guðleifur Sigurðsson
smáauglýsingar
mbl.is