Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2004, Blaðsíða 50

Náttúrufræðingurinn - 2004, Blaðsíða 50
Náttúrufræðingurinn merki um hærri sjávarstöðu eru bæði sunnart og norðan við hólana. I lækjarfarvegi við veiðihúsið, rétt sunnan við Vatnsdalshóla (4. mynd), fannst siltríkur jökulruðningur. Þessi jökulruðningur er ekki í hólunum sjálfum, sem óneitanlega bendir til þess að þeir hafi lagst yfir hartn og séu yngri. Nokkuð líklegt verður einnig að telja að ef jökull hefði skriðið yfir Vatnsdalshóla, hefði hann borið með sér brot úr inn- skotunum við Hnjúk og Breiðaból- stað og blandað þeim saman við annan mulning hólanna, en engir slíkir molar fundust í hólunum. Brotsárið í hlíðinni Berggrunnurinn í skriðusárinu í hlíðum Vatnsdalsfjalls hefur ekki enn verið nákvæmlega kannaður, en með samanburði á berggerðum í fjallinu og hólunum má væntanlega fá upplýsingar um það hvaðan úr fjallinu efnið í Vatnsdalshólum er komið. Með athugunum í hlíð Vatnsdalsfjalls og skoðun á útliti hennar á flugljósmyndum má leiða líkur að því hvar efnið brotnaði úr fjallinu þótt ekki sjáist þar greinilegt brotsár. Líklegast þykir að bergstálið sem myndaði hólana hafi verið ofarlega í hlíðinni á milli Hlassins og Hrafnakletta (3. mynd). Það er í samræmi við hugmyndir Olafs Jóns- sonar5 um brotsárið en Jakob H. Líndal3 taldi það nokkru stærra og ná frá Skriðuskarði (skarð sunnan við Hrafnakletta) og suður að skarði rétt fyrir norðan Jörundarfell. Aldur Vatnsdalshóla Allt frá því að aldursákvarðanir með geislakolsaðferð náðu almennri útbreiðslu upp úr miðri síðustu öld hafa niðurstöður slíkra aldurs- ákvarðana verið nær einráðar í fom- leifafræði og jarðfræði síðustu 20.000 ára. Geislakolsaldur reiknast frá árinu 1950 þannig að öskulag sem skv. geislakolsaldursákvörðun er 6100 ára gamalt myndaðist þetta mörgum geislakolsámm fyrir árið 1950. Geislakolsárið er lítið eitt lengra en almanaksár þannig að raimvemlegur aldur jarðmyndunar er hærri en geislakolsárin segja til um auk þess sem við bætast árin sem liðin eru frá 1950. Aldurs- tölumar sem notaðar em hér á eftir em í geislakolsámm fyrir árið 1950. Ekki hefur enn reynst unnt að ákvarða aldur Vatnsdalshóla ná- kvæmar en að þeir hafi myndast eftir að meginjökull síðasta jökul- skeiðs var horfinn af láglendi.3,6 Jarðfræðirannsóknir á Vesturlandi og víðar á Islandi hafa leitt í ljós að jökull síðasta jökulskeiðs hvarf af láglendi á tímabilinu fyrir 12.600 til 9400 ámm.14,15 Olafur Jónsson5 leitaði að þekkt- um öskulögum ofan á berghlaupum og taldi hann þau flest hafa myndast snemma á nútíma í kjölfar þess að jökull hvarf af landinu. Vatnsdals- hóla taldi hann vera í flokki „mjög ellilegra" berghlaupa sem líklega féllu fyrir 10.000 til 7000 ámm. Nær aldri Vatnsdalshóla komst Olafur Jónsson ekki. Ýmsar aðrar vísbendingar em um myndunartíma Vatnsdalshóla. Má þar nefna myndun fjömmarka í allt að 65 m y.s. en nær öll fom fjöm- mörk á Islandi mynduðust á um 1000 ára tímabili fyrir 10.300 og 9400 ámm. Þannig em efstu fjömmörk á höfuðborgarsvæðinu um 10.300 ára en á Suðurlandi um 9700 ára.16,17 Með samanburði við önnur land- svæði má telja nokkuð víst að efstu fjömmörk í 60-65 m y.s. í Vatnsdal séu um 10.300 ára gömul og alls ekki yngri en 9700 ára. Japanskur jarð- vísindamaður, Hiroshi Moriwaki,13 hefur með geislakolsaldursákvörð- unum sýnt fram á að fyrir um 9550 ámm var sjávarborð á þessum slóð- um í Húnaþingi ömgglega komið niður fyrir 14 m y.s. Þar sem Vatns- dalshólar hafa fallið og lagst yfir fjömmörk í um 20 m y.s. vestan Vatnsdalsár, er næsta augljóst að hólamir em yngri en myndun fjöm- markanna og hámarksaldur hólanna því um 9550 ár. Leit að öskulögum í jarðvegi í Vatnsdalshólum varð árangurslaus. Leit að öskulögum í jarðvegi og mýrum allra næst hólunum bar nokkum árangur. I grunnum skurði við norðvesturjaðar hólanna sáust þrjú ljós öskulög í jarðvegi ofan á mulningi, sem talinn er vera hluti jaðarhulu hólanna. Eftir því sem næst verður komist er hér líklega um að ræða súr öskulög úr Heklu, H3, H4 og H5,18 en þessi öskulög hafa verið aldursákvörðuð allnákvæm- lega og em þau um 2800, 4000 og 6100 ára.19,20 Séu öskulögin í skurðbakkanum rétt greind má ætla að Vatnsdalshólar hafi myndast einhvem tíma á tímabilinu frá 9550 til 6100 ámm fyrir 1950. Umfjöllun OG NIÐURSTÖÐUR Rannsóknir höfunda benda til að Vatnsdalshólar hafi myndast við að stórt bergstykki úr Vatnsdalsfjalli hljóp fram, brotnaði og náði miklum hraða vegna massa og fallhæðar efnisins. Hugsanlega hefur berg- stykkið átt uppmna sinn á svæði því sem nær frá Hlassi og norður í Hrafnakletta og farið af stað sökum ójafnvægis í fjallshlíðinni eftir að jökla leysti. Það sem hleypti því af stað gæti hafa verið jarðskjálfti eða breyting á vatnsþrýstingi, sem minnkaði viðnám bergstykkisins við undirlagið og jók þannig á fall- hættuna. Líklega hafa spmngur og halli berglaga einnig dregið úr stöðugleika hlíðarinnar. Sökum þess hve langt hlaupið hefur náð út frá hmnstað, má reikna með að um svonefnt bergflóð hafi verið að ræða. Hér er átt við tilgátu sem byggist á því að titringur koma í neðsta hluta hlaupandi urðarmassa dragi svo úr viðnámi, að hann geti ferðast svo kílómetmm skipti út frá hmnstað.7 Þessi tilgáta gerir ráð fyrir að efri hluti urðarmassans taki ekki nándar nærri eins miklum breyting- um og neðri hlutinn, þannig að upphafleg afstaða berglaga og byggingarlag bergmassans geti að einhverju leyti varðveist allt þar til massinn hefur staðnæmst. Um miðbik Vatnsdalshóla hefur þetta mikla berghlaup verið þykkast og þar hafa stórir rhýólítflekar náð að vera tiltölulega samhangandi. Minni bergflykki mynda aftur á móti jaðarhólana. Þegar framhluti 136
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.